Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Nýja COP28-samkomulagið þykir marka tímamót.
Nýja COP28-samkomulagið þykir marka tímamót.
Mynd / COP28-Walaa Alshaer
Fréttir 29. desember 2023

Orð verði gjörðir tafarlaust

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Í sögulegu samkomulagi sem hartnær 200 þjóðir heims náðu á COP28-loftslagsráðstefnunni er fjallað um jarðefnaeldsneyti.

Lengi var tekist á um endanlegt orðalag samkomulagsins en miklu þótti skipta að orðið jarðefnaeldsneyti næði inn í það, jafnvel þótt ekki sé talað um að hætta notkun þess, heldur er um að ræða að ríki heims leggi sig fram um að færa sig úr jarðefnaeldsneyti yfir í aðra orkugjafa með skipulögðum hætti. Þetta þykir risastórt skref fram á við þótt margir hafi viljað ganga enn lengra. Þá einkum varðandi að hætta alveg notkun jarðefnaeldsneytis í skrefum en mörg ríki, vísindamenn og félagasamtök höfðu knúið á um slíkt. Stærstu losunarríki heims, Kína og Bandaríkin, samþykktu að uppfæra langtímastefnu sína í orkumálum.

1,5 °C enn innan seilingar

Sultan al-Jaber, forseti þingsins, sagði sáttmálann grunn að miklum umskiptum, þar væru ýmis nýmæli og vísindi höfð að leiðarljósi. Fyrst og fremst væri enn innan seilingar að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 °C og ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Hann minnti þó á að orð væru annað en gjörðir og undir það tók Simon Stiell, yfirmaður loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, sem hvatti öll stjórnvöld og fyrirtæki til að umbreyta orðum í aðgerðir tafarlaust.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fagnaði samkomulaginu og sagði markmið Evrópu um að þrefalda endurnýjanlega orku og tvöfalda orkunýtingu fyrir árið 2030 væru nú sameiginlegt markmið alls heimsins.

Guterres svartsýnn

„Hvort sem ykkur líkar það betur eða verr er óhjákvæmilegt að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Við skulum vona að það verði ekki of seint,“ skrifaði António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á Twitter eftir að samkomulagið var í höfn.

Skylt efni: loftslagsmál | COP28

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.