Ólafur Þórisson í formannsframboð
Mynd / Úr safni
Fréttir 16. mars 2026

Ólafur Þórisson í formannsframboð

Höfundur: Þröstur Helgason
Ólafur Þórisson

Ólafur Þórisson í Miðkoti í Landeyjum Rangár þngi eystra býur sig fram til formanns hrossaræktardeildar Bændasamtaka Íslands. Ólafur segir í Facebookfærslu að þónokkrir einstaklingar hafi haft samband við sig og skorað á hann a bjóða sig fram til formanns. „Ég lifi og hrærist í hrossarækt og tengdri starfsemi og þekki starfssviðið töluvert eftir að hafa verið í félagsmálum hestamanna á mörgum sviðum. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að sýnileiki hrossaræktarinnar í samfélaginu verði sem mestur og við munum halda áfram að þróast og fylgja þeim málefnum sem munu hjálpa hrossaræktinni að lifa og dafna sem best í framtíðinni. Virkja grasrótina, styrkja grunnstoðir og vera sýnileg á sem flestum stöðum. Hestamennska á Íslandi og úti um allan heim byggist á því að hrossarækt sé stunduð og til hennar sé vanda til verks þannig að sem flestir fái a njóta íslenska hestsins til framtíðar,“ segir Ólafur enn fremur.

Ólafur rekur ásamt konu sinni, Söru Maagaard Nielsen, hrossaræktar- og tamningarstöð í Miðkoti. Þau hjón eiga saman þrjú börn. Nanna Jónsdóttir er sem stendur formaður deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands en hún hefur ekki gefið upp áætlanir sínar um það hvort hún bjóði sig fram til áframhaldandi setu sem formaður.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...