Espihóll í Eyjafjarðarsveit á björtum og fallegum sumardegi.
Espihóll í Eyjafjarðarsveit á björtum og fallegum sumardegi.
Mynd / Aðsend
Viðtal 2. júní 2026

Öflugur búskapur og uppbygging til fyrirmyndar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nýlega heiðraði Búnaðarsamband Eyjafjarðar bændurna á Espihóli með því að veita þeim nautgripaverðlaun sambandsins fyrir síðasta ár, en það eru þau Ástþór Örn Árnason og Svana Ósk Rúnarsdóttir.

Þau keyptu Ytra-Fell undir árslok 2021 eftir að hafa búið í Miðdal í Skagafirði í tæpan áratug. Þegar þau hófu búskap í Ytra-Felli hækkuðu afurðir kúnna umtalsvert og hafa verið í fremstu röð síðan. Á síðastliðnu vori keyptu Ástþór og Svana Espihól og fluttu þangað. Það er kunnara en frá þurfi að segja að þar hafði verið rekið mikið myndarbú um áratugaskeið með snyrtimennsku og góðum afurðum.

Byggt við fjós og hlöðu

Um leið og Ástþór og Svana tóku við búinu á Espihóli var hafist handa við stækkun á aðstöðu fyrir kýrnar og byggt við fjós og hlöðu og bætt við öðrum mjaltaþjóni.

Á búinu eru rúmlega 120 árskýr sem mjólkuðu að meðaltali 7.983 kg sem skipaði þeim í þriðja sæti í Eyjafirði og á búinu eru um 240 gripir í uppeldi.

Svana og Ástþór með börnum sínum, þeim Viktori Árna og Sóldísi Tinnu í fjósinu á bænum.

Fjölskyldan

Til að kynnast fjölskyldunni og átta sig á henni þá eiga þau Ástþór og Svana 3 börn, Lilja Dóru, sem lést ung af slysförum, Viktor Árna, 12 ára og Sóldísi Tinnu, 9 ára. Þau keyptu Espihól fyrir rösku ári en þau hófu kúabúskap í Eyjafirði í árslok 2021, þá á Ytra-Felli.

Auk Espihóls eiga þau jörðina Möðrufell í Eyjafjarðarsveit. „Ég ólst upp á kúabúi í Miðhvammi í Aðaldal í Þingeyjarsveit en Svana ólst upp á Akureyri. Við náðum saman fyrir tvítugt og eftir að ég lauk búfræðiprófi frá LbhÍ og Svana stúdentsprófi frá VMA þá bauðst okkur að taka við rekstri á kúabúi á Austurlandi. Síðan höfum við búið víða, bæði með kýr og kindur en erum nú lent hér í hinum blómlega Eyjafirði og mjög sátt við það,“ segir Ástþór.

Hafa búið víða

Fjölskyldan hefur búið víða eins og kemur fram hjá Svönu.

„Já, við höfum búið ansi víða. Ætli við séum ekki dæmi um að það sé hægt að vinna sig upp í búskap ef fólk er tilbúið til berjast alla daga. Við byrjuðum með tvær hendur tómar, fyrst sem starfsmenn sem sáu um rekstur á kúabúi á Skriðufelli í Jökulsárhlíð, síðan fórum við inn í rekstur kúabúsins í Fremstafelli í Þingeyjarsveit. Þaðan lá leið í Lækjavelli í Bárðardal þar sem við tókum við sauðfjárbúi um tíma en keyptum síðan sauðfjárbúið Fjósatungu í Fnjóskadal, allt í Þingeyjarsveit. 

Þaðan lá leiðin í Miðdal í Lýtingsstaðahrepp í Skagafirði þar sem við bjuggum lengst með upp undir þúsund fjár þegar mest var. Þegar okkur bauðst tækifæri til að selja þá jörð og kaupa kúabú í Eyjafirði, Ytra-Fell, létum við verða af því þótt sú jörð og byggingar væru ekki alveg draumastaðurinn.

Svo opnaðist tækifæri til að kaupa Espihól og eftir nokkurt bras gekk það upp og hér erum við lent í dag, mjög ánægð. Þetta er nú yfir tuttugu ára ferill, og hefur auðvitað gengið á ýmsu og oft tekið á. Við erum sannarlega komin með alls konar reynslu í farteskið og höfum kynnst mörgu frábæru fólki.

Hér í Eyjafirði höfum við eignast dýrmæta vini og nágrannarnir eru frábærir, skólinn er til fyrirmyndar og já, hér er gott að vera,“ segir Svana alsæl.

Svana og Ástþór þegar þau fengu viðurkenninguna frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Með þeim er Alexandra Rún Jónsdóttir, verðandi framkvæmdastjóri sambandsins.

Framsækin og skipulögð

Ástþór kemur hér inn í umræðuna og segir: „Við látum ekkert duga. Ef aðrir negla tvo nagla neglum við fjóra,“ segir hann og glottir. „Svo bara erum við framsækin og skipulögð, við hugsum áfram og upp, ekki til í dæminu að staðna. Það er sóknin sem er skemmtilegust við að vera bóndi, að bæta og sækja fram,“ bætir hann við.

Gott frí á hverju ári

Svana segir að þau hafi líka vit á því að fara á hverju ári í gott frí erlendis, kúpla sig alveg út og vera fjölskylda án þess að pæla í hvort einhver kýrin sé veik eða haughúsið að fyllast. Það sé endurnærandi og viðhaldi eldmóðinum.

„Svo tökum við þátt í lífinu í sveitinni og skólanum hjá krökkunum. Það er mikilvægt þegar maður vinnur hjá sjálfum sér að vera vel tengdur, stundum mætti hugsanlega segja að Ástþór sé aðeins oftengdur, sko símanum, með peltorinn á hausnum að spjalla allan daginn, það eru svo mörg mál sem þarf að ræða við hina bændurna,“ segir Svana og lítur á mann sinn.

Samhent hjón

„Við höldum okkar verkfundi og skipuleggjum, erum bæði samhent en líka með okkar verkaskiptingu. Hvers konar gæðastýring, eftirlit, verklag og agi er ríkur þáttur í rekstrinum hjá okkur. Við reynum líka að fylgjast vel með og fræðast jafnt og þétt og leita okkur ráðgjafar,“ segir Ástþór og bætir við.

„Búskapurinn er okkar helsta áhugamál, við höfum áhuga á því að grúska og pæla í því hvernig við getum náð betri árangri. Við ætlum okkur að halda áfram öflugu ræktunarstarfi bæði í nautgriparækt og jarðrækt og efla búskapinn eins og hægt er á næstu árum.“

Formaður eyfirskra kúabænda

Ástþór er virkur í bændapólitíkinni, hefur verið í forsvari fyrir sauðfjárbændur í Skagafirði og er nú formaður eyfirskra kúabænda, fulltrúi eyfirskra kúabænda á deildarfundum nautgripabænda, fulltrúi á Búnaðarþingi ásamt því að vera fulltrúi á Auðhumlufundum.

Þegar hjónin eru spurð hvernig þeim lítist á stöðu íslensks landbúnaðar eins og staðan er í dag er Ástþór fljótur til svars. „Manni finnst nú íslenskur landbúnaður einhvern veginn alltaf standa á krossgötum, en við teljum að óvissan sé með mesta móti núna. Búvörusamningar renna út í lok árs og það er orðið ljóst að ráðherra (ríkið) hefur engan áhuga á að semja um innlenda matvælaframleiðslu við bændur af réttsýni og virðingu.

Það er óboðlegt af ríkinu að stilla innlendri matvælaframleiðslu upp við vegg og segja bara „þið fáið 1 árs framlengingu á núverandi búvörusamningi og engar viðbætur, ef þið sættið ykkur ekki við það þá ætlum við ekki að semja við ykkur“.

Þetta er nú viðmótið sem blasir við okkur frá ráðherra málaflokksins og þessari ríkisstjórn. En alveg óháð umsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu þá verða bændur að fá einhverjar kjarabætur, rekstraröryggi og fyrirsjáanleika. Við þurfum að fá búvörusamninga framlengda um a.m.k. 2 ár með viðbótum sem t.d. kúabændur ályktuðu um á nýliðnu búgreinardeildarþingi. Það reynir mikið á og eru miklar áskoranir fyrir bændur að standa vaktina við framleiðslu úrvals matvæla sem oft og tíðum eru ekki metin að verðleikum, og allt of lítil virðing borin fyrir matvælaframleiðslu hér á landi, þjóðin hefur greinilega aldrei orðið svöng,“ segir Ástþór.

Fagurgali í fjölmiðlum

En hvað segir Svana, hvernig líst henni á stöðuna? „Við erum bjartsýn á framtíð íslensks landbúnaðar. Ef stjórnvöld tækju þá stefnu að hér eigi að framleiða allan þann mat sem við getum og stæðu fast í lappirnar með matvælaframleiðslu á Íslandi.

Því miður er ekki svo í dag og allur fagurgali í fjölmiðlum hjá stjórnmálamönnum, að þeir vilji sjá ,,öfluga innlenda matvælaframleiðslu“, dugar skammt ef enginn er tilbúinn að verja innlend matvæli og standa raunverulega með frumframleiðendum matvæla í landinu. Að þessu sögðu þá munum við samt berjast áfram við að tryggja íslenskri þjóð úrvals matvæli, en við getum því miður ekki óskað þess að börnin okkar fari út í matvælaframleiðslu á Íslandi eins og staðan er í dag,“ segir Svana og bætir strax við: „Það þarf bæði kjark og kraft til að vera bóndi á Íslandi í dag, það er ekki fyrir þá sem vilja kúra í öryggi og þægindum og geta stimplað sig út úr vinnunni. Á hverjum degi eru ótal áskoranir, áföll og átök, en líka áfangar, gleði og sigrar. Starfið er bæði einstaklega fjölbreytt og krefjandi en það er einmitt það sem gefur, við erum á fullri ferð, það eru ótal bændaævintýri fram undan, ekki spurning!“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.