Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Í nýju frumvarpi er ætlunin að skýra stöðu vindorku innan rammaáætlunar.
Í nýju frumvarpi er ætlunin að skýra stöðu vindorku innan rammaáætlunar.
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Fréttir 16. apríl 2026

Nýting útilokuð á verndarsvæðum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Í frumvarpi sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mælti fyrir á dögunum er lagt til að nýting vindorku verði útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár.

Frumvarpinu er ætlað að skýra stöðu vindorku innan rammaáætlunar og tryggja viðeigandi verndun náttúruverðmæta sem Alþingi hefur verndað.

Lýtur að mestu sömu lögmálum og aðrir orkukostir

Vindorkunýting mun þó í megin- atriðum lúta sömu lögmálum innan rammaáætlunar og aðrir orkukostir. Verkefnisstjórn verður hins vegar gert að horfa sérstaklega til ákveðinna viðbótarþátta, eins og formlegrar afstöðu sveitarfélaga, atvinnuþróunar í viðkvæmum byggðum og til raforkuöryggis og samlegðar við uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Annar þáttur frumvarpsins snýr að verndarflokki rammaáætlunar. Í greinargerð með frumvarpinu segir að markmiðið sé að tryggja að þau svæði sem talin eru svo verðmæt í eðli sínu að rétt sé að flokka þau í verndarflokk áætlunarinnar sæti ítarlegri skoðun með það fyrir augum að fyrsti kostur verði að friðlýsa þau á grundvelli almennra friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga, frekar en einungis gegn orkuvinnslu.

Skýrar leikreglur um vindorkuna

Í tilkynningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins er haft eftir Jóhanni Páli að löngu sé tímabært að skapa skýrari leikreglur um vindorkuna.

„Fallið hefur verið alfarið frá áformum sem uppi voru áður en núverandi ríkisstjórn tók við um sérstaka flýtimeðferð vindorku- garða í nafni orkuskipta og kolefnis- hlutleysis. Í staðinn leggjum við til að vindurinn verði felldur með ótvíræðum hætti undir rammaáætlun, vindorkunýting verði bönnuð á viðkvæmum náttúrusvæðum en að afstaða sveitarfélaga og sjónarmið um atvinnu- og byggðaþróun og styrkingu flutningskerfis raforku vegi þungt við mat á vindorkukostum.

Samhliða þessu komum við verndarhlið rammaáætlunar í betri skorður. Staðreyndin er sú að engin svæði í verndarflokki rammaáætlunar hafa verið friðlýst með lögformlega réttum og bindandi hætti síðan lögin tóku gildi. Við leggjum til nýja nálgun: að eftir ítarlegt ferli rammaáætlunar sé verndað á grundvelli viðeigandi friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga fremur en einvörðungu gegn orkuvinnslu,“ segir Jóhann Páll.

Skylt efni: vindorka | rammaáætlun

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.