Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
KIA Niro hybrid.
KIA Niro hybrid.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 20. október 2016

Nýr vistvænn KIA Niro hybrid með 7 ára ábyrgð

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Eins og margir aðrir bílafram­leiðendur hefur KIA bæst í hóp bílaframleiðenda með „hybrid“ bíl (tvinnbíl). Eins og aðrir bílar frá KIA er hann með 7 ára ábyrgð.
 
Uppbyggingin á vélunum tveimur er svipuð hjá öllum bílaframleiðendum, en KIA hefur aðeins bætt rafmagnstæknina til að auka rafmagnsflæði og framleiðslu fyrir rafmagnsvélina og minnka þannig eldsneytiseyðslu bensínvélarinnar. Ég tók góðan hring á blautum vindasömum degi og prófaði KIA Niro.
 
Uppgefin eyðsla hentar ekki mínu aksturslagi eða íslensku roki
 
Niro tekur að öllu jöfnu af stað á rafmagnsvélinni og því nánast alveg hljóðlaus akstur. Fyrir utan veghljóð og umhverfishljóð að utan, mældist hávaði hjá mér við 90 km hraða undir 58 desíbelum (db) að meðaltali þrátt fyrir rok og rigningu. Á flestum hybrid-bílum er mótorinn að fara í gang í kringum 50 kílómetra hraða, en Niro er á töluvert meiri ferð þegar bensínvélin fer í gang og hjálpar til. Með því að fylgjast með aksturstölvu bílsins sem sýnir orkunotkun (bæði af bensíni og rafmagni) komst ég fljótlega í bíl­túrnum að því að mitt aksturslag var ekki að henta til sparaksturs á þessum bíl (og ekki var rokið og rigningin að hjálpa til). 
 
Uppgefin meðaleyðsla er 3,8 lítrar á hundraðið við bestu aðstæður og í byrjun var ég að eyða upp undir 7 lítrum miðað við 100 km akstur. Með því að mýkja aksturslagið á mínum akstursstíl náði ég að minnka eyðsluna í rokinu og rigningunni niður í 5,2 lítra, en neðar komst ég ekki.
 
Nýjung í rafmagnsframleiðslu
 
Flestir hybrid-bílar framleiða rafmagn inn á rafhlöðuna þegar bremsað er, eða hægt mikið á og niður brekkur. 
 
Rafmagnsvélin knýr bílinn áfram í byrjun ökuferðar og hjálpar bensínvélinni á meðan eitthvað rafmagn er á rafhlöðunni. Niro er að framleiða rafmagn í mjúkum akstri á jafnsléttu og þegar slegið er af og bremsað er rafmagnsframleiðslan í hámarki. 
 
Rafmagnsframleiðslan á jafnsléttu (og undan vindi) kemur aðallega frá rafal sem tengist hraða bílsins, en miðað við aðra hybrid-bíla sem ég hef ekið er Niro að framleiða meira rafmagn. Nýja liþíum-rafhlaðan heldur rafmagni lengur og tekur meiri hleðslu. 
 
Rúmgóður og þægilegur í akstri
 
KIA Niro er þægilegur að keyra bæði á bundnu slitlagi og á malarvegum. Það eina sem ég fann að bílnum eftir malarvegaaksturinn var að drullan safnaðist á eina staðinn sem ekki er æskilegt að safna óhreinindum á. Þetta var holan sem maður setur höndina inn í til að opna skottlokið og fyrir vikið urðu hnúarnir á hendinni drulluskítugir.
Fótapláss er gott í framsætum og mjög gott pláss fyrir farþega í aftursætum. Farangursrými er gott, en varadekkið er það sem ég kalla aumingja.
 
Eins og margir nýir bílar er bíllinn ekki með löglegan dagljósabúnað (engin ljós að aftan), en með því að snúa takkanum og hafa alltaf ljósin kveikt og hunsa „dinghljóðið“, viðvörunina, um að ljósin séu kveikt þegar farið er út úr bílnum því ljósin slökkva á sér sjálfkrafa eftir fjórar sekúndur.
Gott verð á bíl sem ætti að
henta mörgum
 
Sem alhliða bíll með góða fjöðrun og á dekkjum með háan „prófíl“ ætti þessi bíll að henta vel jafnt á malarvegum sem bundnu slitlagi.
 
Bensínvélin er 1,6 lítra og skilar 105 hestöflum, en rafmagnsmótorinn skilar að hámarki 43,5 hestöflum. Sé bílnum botngefið úr kyrrstöðu er snerpan hættulega góð í báðum vélunum þegar þær vinna saman.
Sex þrepa skiptingin er mjúk og aldrei fann ég fyrir því þegar bíllinn skipti um þrep fyrir utan þetta eina skipti þegar ég botngaf bílnum úr kyrrstöðu. Verðið á Niro er frá 4.290.777.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd 1.458 kg
Hæð 1.545 mm
Breidd 1.805 mm
Lengd 4.335mm

 

7 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.