Nýr starfshópur um ferjuáætlun
Fréttir 31. ágúst 2026

Nýr starfshópur um ferjuáætlun

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Nýr starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað að greina stöðu ferjusiglinga og móta heildstæða stefnu ásamt aðgerðaáætlun um öruggar og áreiðanlegar ferjusamgöngur á Íslandi. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember næstkomandi.

„Það er brýn nauðsyn að móta fyrstu heildstæðu stefnu til framtíðar um ferjusamgöngur á Íslandi. Mikilvægt er að greina þarfir fyrir slíkar samgöngur og hvernig best fer á því að skipuleggja þær með tilliti til samgönguþarfa, öryggis og orkuskipta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Stefnt er að því að í aðgerðaáætluninni verði m.a. sett fram framkvæmda- og kostnaðaráætlun um endurnýjun ferjuflotans. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að lögð sér áhersla á að starfshópurinn eigi gott samráð við hagaðila. Af þeim sökum hafi sérstaklega verið óskað eftir tengiliðum frá sveitarfélögum sem treysta á ferjusamgöngur. Starfshópurinn muni eiga samráð við tengiliðina og gefa þeim kost á að veita umsögn um drög að niðurstöðum áður en þeim er skilað til ráðherra.

Starfshópurinn var skipaður í samræmi við aðgerð 1.11 í þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040. 

Starfshópurinn er þannig er þannig skipaður:

  • Sóley Ragnarsdóttir, formaður, án tilnefningar,
  • Hilmar Stefánsson, tilnefndur af Vegagerðinni
  • Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu
  • Sunna Þórðardóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...