Nýir búvörusamningar verða að styðja við íslenska nautakjötsframleiðslu
Skoðun 4. júní 2026

Nýir búvörusamningar verða að styðja við íslenska nautakjötsframleiðslu

Höfundur: Sigurbjörg Ottesen
Sigurbjörg Ottesen.

Íslensk nautakjötsframleiðsla stendur á tímamótum. Á sama tíma og eftirspurn eftir innlendu nauta- kjöti eykst, glíma nautakjötsframleiðendur við hækkaðan framleiðslukostnað, óstöðugt rekstrarumhverfi og harðari samkeppni frá innfluttu nautakjöti – í boði stjórnvalda. Í þessu samhengi skipta komandi búvörusamningar sköpum. Þeir verða ekki aðeins að tryggja afkomu bænda til skamms tíma, heldur einnig skapa skýra framtíðarsýn fyrir greinina í heild.

Nautakjötsframleiðsla á Íslandi byggir á sérstöðu sem ekki allar aðrar þjóðir geta státað af. Hreint umhverfi, góð dýravelferð og rekjanleiki alla leið til bónda. Hér á landi búum við með heilbrigða gripi og sýklalyfjanotkun ein sú minnsta sem þekkist í heiminum. Þetta eru verðmæti sem neytendur kunna sífellt betur að meta. En þessi sérstaða stendur og fellur með því að rekstrargrundvöllur bænda sé raunhæfur. Ef afkoma er veik, dregur úr framleiðslunni, nýliðun minnkar og þekking tapast.

Eitt stærsta verkefnið í nýjum samningum er að takast á við þróun framleiðslukostnaðar. Fóður, áburður, rafmagn og kostnaður við fjárfestingar hefur hækkað verulega á undanförnum árum. Á sama tíma hefur þróun afurðaverðs ekki náð að halda í við hækkaðan framleiðslukostnað. Þetta ójafnvægi er ekki sjálfbært til lengri tíma. Búvörusamningar verða að innihalda skýr verkfæri til að jafna þetta bil, hvort sem það er í formi beinna stuðningsgreiðslna, sveigjanlegra viðbragða við kostnaðarbreytingum eða hvata til aukinnar framleiðslu.

Nautakjötsmarkaðurinn á Íslandi, byggt á gögnum Hagstofunnar og skýrsluhaldsgögnum RML. Unnið af Bændasamtökum Íslands.

Það þarf að horfa sérstaklega til stöðu nautakjötsframleiðslu sem oft hefur setið eftir í samanburði við aðrar búgreinar. Ef markmið er að auka sjálfbærni og efla fæðuöryggi þjóðarinnar, þá hlýtur að vera forgangsatriði að styrkja innlenda framleiðslu. Það er einfaldlega óábyrgt að treysta í auknum mæli á innflutning á sama tíma og innlend framleiðslugeta er til staðar – en veik.

Nýir samningar þurfa einnig að styðja við nýliðun og kynslóðaskipti. Ungt fólk hefur áhuga á landbúnaði, en þarf að sjá fram á raunhæfa framtíð í greininni. Skýrari stuðningur við uppbyggingu, fjárfestingar og tækniþróun getur skipt sköpun. Sjálfvirkni, betri nýting gagna og framfarir í kynbótum bjóða upp á aukna framleiðni og bættan rekstur – en aðeins ef bændur hafa bolmagn til að fjárfesta í greininni.

Loftslagsmál eru einnig óhjákvæmilegur hluti af umræðunni. Íslensk nautakjötsframleiðsla hefur alla burði til að vera í fremstu röð þegar kemur að sjálfbærni. Þar þarf að vinna markvisst með bændum, ekki gegn þeim. Stuðningur við kolefnisbindingu, betri fóðrun og landnýtingu getur skilað raunverulegum árangri – en krefst fjárfestinga og langtímahugsunar.

Nýir búvörusamningar eru tækifæri. Tækifæri til að styrkja innlenda framleiðslu, auka sjálfbærni og tryggja að íslenskir neytendur hafi áfram aðgang að hágæða nautakjöti úr íslenskri sveit. En til þess þarf skýra stefnu, pólitískt hugrekki og raunverulegan vilja til að setja íslenskan landbúnað í forgang.

Ef ekki, þá mun þróunin því miður vera í öfuga átt, framleiðslan minnkar, innflutningur heldur áfram að aukast og fæðuöryggið veikist. Það er val sem við eigum ekki að velja.

Höfundur er formaður nautgripabænda BÍ og stjórnarmaður BÍ.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.