Lífrænir bændur nota aðallega húsdýraáburð, fiskimjöl og þörungamjöl til að bæta næringu í jarðveginn.
Lífrænir bændur nota aðallega húsdýraáburð, fiskimjöl og þörungamjöl til að bæta næringu í jarðveginn.
Mynd / eks
Fréttir 3. júní 2026

Nota langmest innlend áburðarefni

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Verðhækkanir á áburðarverði koma lítið sem ekkert við bændur í lífrænni ræktun.

Lífrænir bændur nota nær eingöngu innlend áburðarefni. Innfluttur lífrænn áburður er framleiddur víða um heim. Framleiðslan er ekki háð notkun á jarðolíu og gasi.

Stríðsátökin hafa hverfandi áhrif

Verðhækkanir á áburðarverði koma síður við bændur í lífrænni ræktun en hefðbundinni, þar sem þeir nota að mestu leyti staðbundin innlend áburðarefni. Einungis lítið hlutfall áburðar sem þeir nota er innfluttur. Sá áburður sem þó er innfluttur er framleiddur víða um heim, en ekki framleiddur með jarðolíu eins og áburður til hefðbundins landbúnaðar.

„Hækkanir ættu síður að koma fram og hægar því áburðurinn er ekki framleiddur með jarðolíu,“ segir Hjörtur Grétarsson, einn eigenda Vege, sem selur innfluttan lífrænan áburð. Hjörtur segir lífræna áburðinn sem Vege selur vera unninn víða um heim, til að mynda úr vínberjahrati í Evrópu og sykurreyr í Asíu. Hann segir að verðhækkanir kæmu helst úr hækkuðum flutningskostnaði sem þó sé tiltölulega hagstæður í stóra samhenginu. Það hefur þó ekki raungerst enn sem komið er.

„Lífrænir bændur hérlendis nota, að því er ég best veit, nánast eingöngu innlend áburðarefni,“ segir Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, lífrænn bóndi á Breiðargerði og formaður Lífræns Íslands. „Það hefur þó eitthvað færst í aukana að fólk og þar með talinn ég nýti áburðinn frá Vege ehf. samhliða, þó aðeins sem lítið brot af heildar áburðarnotkun, en hann er þægilegur að grípa í, t.d Plöntunæri sem er hár í nitri.“

Breytingar eru hægfara

Inntur eftir því hvort Vege hafi orðið vart við frekari eftirspurn eftir lífrænum áburði, segir Hjörtur það helst vera lífrænu bændurna sem eru að versla hjá þeim, til að nýta sem viðbót við annan áburð sem þeir nota úr nærumhverfinu. Þó séu alltaf einhverjir sem vilja vera vistvænir sem kaupa áburð hjá þeim. Hann segir kúnnahópinn vera nokkurn veginn þann sama ár frá ári en ekkert sé því til fyrirstöðu að stækka hann. „Það er rosalega erfitt að breyta hugarfari hjá fólki, það gerist mjög hægt. Við mættum kannski vera duglegri í sölu, þetta er hálfgert hobbí-fyrirtæki hjá okkur tvennum vinahjónum,“ segir Hjörtur.

Hjörtur segir þá sem hafa verslað við fyrirtækið hafa verið ánægða með árangurinn. „Þessi áburður heldur sér betur í jarðveginum og þú notar því minna af honum, rannsóknir sýna að hann lekur ekki jafnmikið út og kemíski áburðurinn. Mér finnst mjög sniðugt að þeir sem eru nálægt viðkvæmum vötnum eins og Mývatni, Þingvallavatni og víðar noti þennan áburð, þá myndi minna af áburði leka út í vötnin.“

Aðspurð um framvindu aðgerðaráætlunar stjórnvalda um greiningu möguleika á notkun lífræns efnis sem fellur til innanlands til áburðar og fóðurs segir Elínborg: „Ég get ekki sagt að það hafi orðið nein bylting í þeim efnum, en auðvitað hafa verið gerðar einhverjar skýrslur og greiningar.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.