Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Höfundur: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur matvöruverslana svigna undan hvers konar góðgæti. Hvaða læti eru þetta, hér verður enginn svangur í bráð. En raunveruleikinn er sá að maturinn birtist ekki tilbúinn til neyslu um leið og hillan tæmist.

Hvenær fæddist kvígan sem gekk með kálfinn sem lagði til nautasteik gærkvöldsins?

Hvenær var rófunni plantað sem bar fræið sem síðan varð að uppskeru morgundagsins?

Á bak við hverja einustu máltíð, hverja einustu vöru, er saga. Vissulega mislöng eftir því um hvaða matvæli ræðir, en maturinn er þó aldrei úr lausu lofti gripinn. Oft er að baki margra mánaða eða ára vinna og ekki síður metnaður og hugsjón bænda og framleiðenda. Hreinlega ævistarf, byggt á þekkingu sem telja mætti til raunverulegustu verðmæta landbúnaðarins. Hver bóndi sem hættir störfum er ekki bara einstaklingur að skipta um vettvang, heldur þekkingartap úr atvinnugrein sem við okkar íslensku aðstæður getur ekki talist annað en mjög sérhæfð. Innflutningur getur verið skemmtileg viðbót við vöruúrvalið, en ef í harðbakkann slær hljóta allir að átta sig á því að við verðum að geta framleitt matvæli innanlands.

En snýst þetta bara um hámarksmagn hér og nú?

Við tölum líka oft um fæðuöryggi eins og það snúist eingöngu um að framleiða meira og hraðar. Það er vissulega mikilvægt að horfa til magntala, en við þurfum líka að spyrja okkur hvernig við framleiðum og hvaða aðföng við þurfum til framleiðslunnar. Ef innlend framleiðsla er alfarið háð innfluttum aðföngum hlýtur að hrikta aðeins í stoðum fæðuöryggisins. Starfsemi langt út fyrir landsteinana getur haft áhrif á matvælin sem hér eru framleidd.

Í þessu samhengi er lífrænn landbúnaður mikilvægur hluti af lausninni. Lífrænn landbúnaður reiðir sig til dæmis hvorki á innfluttan tilbúinn áburð né varnarefni. Þess í stað er lögð áhersla á að nýta næringarefni úr nærumhverfinu sem áburðarefni, vinna með þær aðstæður sem til staðar eru og rækta hraustar og þolnar plöntur og búfénað. Að stuðla að uppbyggingu og verndun jarðvegs og vatnsauðlinda; forsendu framtíðar ræktunar. Það sem samfélagið kallar lífrænan úrgang og flokkar jafnvel sem vandamál sem þarf að leysa (eða urða), notar lífrænn landbúnaður sem hráefni í ferli sem skilar af sér matvælum.

Auðvitað notast lífrænn landbúnaður líka að hluta til við innflutt aðföng, allar búgreinar eru að einhverju leyti háðar innflutningi frá öðrum löndum. En ef okkur er alvara með að vilja efla fæðuöryggi Íslands ættum við að leggja áherslu á að fjárfesta í lífrænum landbúnaði, þeim aðferðum sem þar er beitt og síðast en ekki síst fólkinu sem kann að beita þeim.

Við viljum nefnilega ekki bara eiga nóg til, það þarf líka að vera meira frammi.

Höfundur er formaður Vor - verndun og ræktun, félags um lífræna ræktun og framleiðslu.

Skylt efni: Vinkill

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...