Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Mynd / ál
Fréttir 7. febrúar 2025

Niðurstöður viðhorfskönnunar áhyggjuefni

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Meirihluti bænda telur stuðningskerfi landbúnaðar flókið en aðeins tæp 14% telja það einfalt, samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem matvælaráðuneytið lét framkvæma meðal bænda.

Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um stöðu bænda og viðhorf þeirra til stuðningskerfis landbúnaðarins. „Tæp 30% telja kerfið þjóna hagsmunum þeirra vel en tæp 23% illa. Afgangurinn telur það vera í meðallagi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Þar kemur fram að meginniðurstöður könnunarinnar séu þær að mikilvægt sé að bæta stuðningskerfið og einfalda það þar sem meirihluti bænda telur það of flókið. Einnig að vaxandi þörf sé á rekstrarráðgjöf, sérstaklega fyrir þá bændur sem eigi í fjárhagslegum erfiðleikum. Þá séu umhverfismál orðin stór þáttur í búrekstri, en margir bændur hafa þegar gripið til aðgerða. Þótt bjartsýni sé nokkur meðal bænda, er þó stór hópur sem hefur áhyggjur af framtíð búrekstursins. Einnig er tiltekin sú meginniðurstaða að mikilvægt sé að þróa áfram stuðningskerfið með hagsmuni bænda í huga og skapa betri skilyrði fyrir sjálfbæran og hagkvæman landbúnað á Íslandi.

Forgangsverkefni að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti

Haft er eftir Hönnu Katrínu Friðriksson matvælaráðherra að niðurstöður könnunarinnar séu áhyggjuefni og ljóst að margar áskoranir séu í núverandi rekstrarumhverfi bænda.

„Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er kveðið á um nokkur forgangsverkefni á sviði landbúnaðar sem eru að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti og breyta jarðalögum til að vinna gegn samþjöppun og stuðla að nýtingu á ræktarlandi til búrekstrar. Auk þessa munum við sérstaklega huga að stöðu ungra bænda. Það þarf að vera raunhæft og eftirsóknarvert fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum í búskap,“ er haft eftir Hönnu Katrínu.

Spurt var einnig um mat bænda á horfum næstu fimm árin og bjartsýni gagnvart rekstrinum. „Í báðum tilvikum reyndust um 30% á sitt hvorum kantinum þ.e. svipað stórir hópar svarenda telja að umsvif muni aukast og að þau muni dragast sama og sömu hópar koma fram þegar spurt er um bjartsýni eða svartsýni í rekstri.“

Fjórðungur nýtir sér rekstrarráðgjöf

Þá var spurt um erfiðleika við að ná endum saman í rekstri á síðustu tólf mánuðum. „Um 44% sögðust hafa átt í litlum eða engum erfiðleikum, 26% í meðallagi en 30% sögðust hafa átt í miklum erfiðleikum. Um fjórðungur hafði nýtt sér rekstrarráðgjöf á síðasta ári, 30% hafði ekki gert það en hafði áhuga. 45% hafði ekki gert það og hafði ekki áhuga.“

Einnig segir að tæpur fimmtungur svarenda segist hafa gert miklar breytingar á búrekstrinum til að draga úr umhverfis- og loftslagsáhrifum, 36% einhverjar breytingar en aðrir litlar eða engar.
„Helstu aðgerðir sem bændur hafa gripið til eru meðal annars:

  • Minnkuð áburðarnotkun og notkun lífræns áburðar
  • Skógrækt og landgræðsla
  • Minni notkun jarðefnaeldsneytis
  • Skipulagsbreytingar til að auka sjálfbærni
  • Betri nýting búfjáráburðar

Könnunin var framkvæmd af Maskínu með það að markmiði að afla upplýsinga um stöðu bænda og viðhorf þeirra til stuðningskerfis landbúnaðarins. Könnunin var lögð fyrir félagsmenn Bændasamtakanna í nóvember og desember 2024. Svarhlutfall var 52%. Í könnuninni voru spurningar frá fleiri aðilum en matvælaráðuneytinu,“ segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.