Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Íslensk nautgriparækt glímir við mikinn rekstrarvanda.
Íslensk nautgriparækt glímir við mikinn rekstrarvanda.
Mynd / smh
Fréttir 10. júní 2022

Nautakjötsframleiðendur í mjög erfiðri rekstrarstöðu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Verulega kreppir að innlendri nautakjötsframleiðslu, sem virðist sú íslenska búgrein sem býr við einna verstu rekstrarskilyrðin þessi misserin. Þrír rekstrarþættir hafa þar afgerandi áhrif; lágt afurðaverð, hár breytilegur kostnaður og slæm samkeppnisstaða gagnvart innfluttu kjöti.

Herdís Magna Gunnarsdóttir, bóndi á Egilsstöðum og formaður deildar nautgripabænda innan Bændasamtaka Íslands. Mynd / Aðsend

Herdís Magna Gunnarsdóttir, bóndi á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og formaður deildar nautgripabænda innan Bændasamtaka Íslands, samsinnir því að hljóðið sé mjög dauft í bændum í nautakjötsframleiðslu. „Greinin er enda í feikna erfiðri stöðu. Einhverjir hafa dregið úr framleiðslunni meðan önnur bú hafa einfaldlega ákveðið að hætta framleiðslu nautakjöts.“

Kúabændum fækkar líka

Rekstrarhorfur í mjólkurframleiðslunni hafa einnig versnað, eins og fram kom í úttekt Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins um stöðuna í greininni í febrúar síðastliðnum.

Einhver fækkun hefur orðið meðal kúabænda á undanförnum árum en þar hefur orðið samþjöppun á mjólkurkvóta og bú stækkað. Í þeirri grein á verðlagsnefnd búvöru að tryggja það að afurðaverð til bænda fylgi eftir almennu verðlagi og notar til þess tiltekinn verðlagsgrundvöll, sem Herdís hefur haft efasemdir um að þjóni tilgangi sínum nægilega vel í dag.

Herdís segir þó að samkvæmt upplýsingum frá Auðhumlu hafi þó ekki fækkað mikið að undanförnu í hópi kúabænda.

Verðhækkanir á kjarnfóðri vega þyngra fyrir kúabændur

Miklar verðhækkanir hafa orðið á undanförnum mánuðum á fóður

hráefnum á erlendum mörkuðum, sem hefur leitt til þess að tiltekin hráefni hafa hækkað um nærri 50 prósent frá síðasta hausti. Í byrjun árs þurftu bændur að takast á við allt að 120 prósenta áburðaverðshækkanir.

Herdís segir að í samantekt, sem deild kúabænda hefur unnið um áhrif verðhækkana á aðföngum á nautgripabændur, komi skýrt fram að áhrif kjarnfóðurhækkana vegi þyngra í mjólkurframleiðslunni en á móti vegi áburðarhækkanir meira í kjötframleiðslunni.

Fóðurkostnaður vegna innflutts fóðurs sé að meðaltali 37 prósent af breytilegum kostnaði mjólkurframleiðenda en að meðaltali 29 prósent á nautakjötsbúum.

Áburðarkostnaður sé að meðaltali 22 prósent af breytilegum kostnaði hjá nautakjötsframleiðendum en 14 prósent hjá mjólkurframleiðendum.

„Gríðarlegar aðfangahækkanir síðustu misseri reynast auðvitað öllum landbúnaðinum gríðarleg áskorun, sem greinarnar eru svo misvel í stakk búnar til að takast á við.

Staðan er ekki eins slæm í mjólkurframleiðslunni og nautakjötsframleiðslu en uggur er í kúabændum yfir stöðu mála,“ segir Herdís.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.