Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Nauðsynlegt að auka sjálfbæra neyslu
Fréttir 29. desember 2014

Nauðsynlegt að auka sjálfbæra neyslu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Forvarnir gegn myndun úrgangs felast í að nýta auðlindir okkar sem best og að koma í veg fyrir framleiðslu eða notkun ónauðsynlegs varnings.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að almennri stefnu um úrgangsforvarnir, „Saman gegn sóun“.

Markmiðið er að þróa samfélag sem hefur skilvirka auðlindanýtingu í fyrirrúmi og að fólk öðlist skilning á gagnsemi fyrirbyggjandi aðgerða sem koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Draga úr hráefnisnotkun

Auk fyrrgreindra markmiða er tilgangur stefnunnar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, að draga úr hráefnisnotkun og að minnka dreifingu á efnum sem eru skaðleg heilsu og umhverfi.

Í drögunum er tilgreind nauðsyn þess að auka sjálfbæra neyslu og stuðla að því að lífshættir haldist í hendur við aðferðir sem auka nýtni. Þá þurfi að nýta hluti betur svo þeir verði ekki að úrgangi, draga úr notkun einnota umbúða, stuðla að hönnun vöru með efnum sem ekki eru skaðleg heilsu og umhverfi og  auka græna nýsköpun. Þá þurfi að setja viðmið um það hvenær úrgangur hættir að vera úrgangur og teljist vera hráefni sem muni stuðla að frekari nýtingu.
Þannig sé mikilvægt að líta á úrgang sem auðlind sem beri að nýta.

Sérstök áhersla er lögð á níu flokka sem skipt er í tvennt. Annars vegar er um að ræða sex flokka sem verða í forgangi tvö ár í senn en það eru matvæli, plast, textíll, pappír, grænar byggingar og raftæki. Hins vegar eru þrír flokkar sem gert er ráð fyrir að unnið verði með til lengri tíma, þ.e. aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og stóriðja. Líta beri á aukaafurðir dýra sem hráefni, svo sem til fóðurgerðar, áburðarframleiðslu og moltugerðar.  Þá sé mikilvægt að hafa regluverkið skýrt og einfalt til að stuðla að nýtingu þessara hráefna og skapa aukin tækifæri á endurnýtingu.

Umsagnir má senda í tölvupósti á postur@uar.is eða í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík til og með föstudagsins 23. janúar 2015.
   

Skylt efni: Sjálfbærni

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.