Fjölbreyttur hópur á námskeiði um endurheimt votlendis.
Fjölbreyttur hópur á námskeiði um endurheimt votlendis.
Á faglegum nótum 21. október 2026

Mýralíf fagnar eins árs afmæli

Höfundur: Aron Alexander Þorvarðarson
Aron Alexander Þorvarðarson.

Töluvert hefur farið fyrir málefninu endurheimt votlendis upp á síðkastið, enda er ávinningur slíkra verkefna margþættur. Auk þess að stuðla að bættum vatnsbúskap og auknu vatnsöryggi getur endurheimt votlendis dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi. Losun vegna landnotkunar er stærsti einstaki losunarflokkur Íslands þegar hún er talin með. Endurheimt votlendis getur jafnframt haft jákvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni svæða sem endurheimt eru, og sá þáttur er í brennidepli Mýralífs.

Fyrsta skrefið: ítarleg forkönnun

Mýralíf (Peatland LIFEline), fyrsta LIFE-verkefni Íslands á sviði náttúruverndar og líffræðilegrar fjölbreytni, hófst í september 2025 og fagnaði nýlega eins árs afmæli. Landbúnaðarháskóli Íslands stýrir verkefninu en Land og skógur leiðir nokkra verkþætti þess. Meginhlutverk Lands og skógar er að sjá um endurheimtina sjálfa, en þar er margs að gæta.

Áður en nokkur vinnuvél mætir á endurheimtarsvæði þarf að ljúka ítarlegri forkönnun. Þar er meðal annars athuguð jarðvegsgerð (hvort lífrænn jarðvegur sé til staðar) og jarðvegsdýpt, virkni framræslu, aðrennsli vatns, halli lands, gróðurfar með sérstöku tilliti til votlendisgróðurs, staðsetning og umfang ruðninga og samfella svæðisins. Þegar þessar upplýsingar liggja fyrir er auðveldara að meta vatnshag svæðisins og hugsanleg neikvæð áhrif framkvæmdanna á nærliggjandi svæði. Jafnframt þarf að kanna hvort fornminjar, lagnir eða jarðstrengir séu á svæðinu og hvort þar finnist skilgreind sérstaklega mikilvæg búsvæði fugla og/eða fiska. Ef svo er þarf að taka sérstakt tillit til þess við skipulag endurheimtarinnar.

Gagnasöfnun sumarsins hafin

Frá maí til loka september sinnti Land og skógur reglulegri vöktun á átta endurheimtar- svæðum Mýralífs á Suður- og Vesturlandi. Vatnshæð, hitastig, raki, og flæði gróðurhúsalofttegunda, svo fátt eitt sé nefnt, voru mæld á tveggja vikna fresti allt tímabilið. Reglulegar og ítarlegar mælingar til að meta grunnástand svæðanna eru nauðsynleg forsenda vel heppnaðrar endurheimtar. Undirbúningurinn hefst því löngu áður en vinnuvélar mæta á svæðin.

Eftir endurheimt verður vöktun haldið áfram til 2030 en verkefninu lýkur formlega í febrúar 2031. Áframhaldandi vöktun gerir Landi og skógi kleift að meta gæði endurheimtarinnar og hvort settum markmiðum hafi verið náð. Náttúrufræðistofnun og Hafrannsóknastofnun gegna einnig lykilhlutverki í vöktuninni. Náttúrufræðistofnun sér um vöktun fuglalífs og gróðurfars á svæðunum en Hafrannsóknastofnun um vöktun fiska, með sérstakri áherslu á evrópska álinn sem er ein af lykiltegundum verkefnisins. Auk hans er lögð sérstök áhersla á fuglategundirnar þrjár, stelk, jaðrakan og lóuþræl. Þær tegundir treysta allar á votlendi landsins að hluta til eða öllu leyti til að tryggja afkomu sína. Eitt af aðalmarkmiðum verkefnisins er að bæta búsvæði þessara fjögurra tegunda.

Námskeið í endurheimt votlendis

Margt af þessu og ýmislegt fleira var til umfjöllunar á tveggja daga námskeiði um endurheimt votlendis sem Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hélt í samstarfi við Land og skóg og Mýralíf á Hvanneyri í lok september. Námskeiðið sóttu alls 25 þátttakendur úr fjölbreyttum starfsgreinum og vinnustöðum. Farið var í vettvangsferðir báða dagana á endurheimtar- og viðmiðunarsvæði verkefnisins, en nokkur þeirra eru í göngufæri frá skólanum.

Meðal verkefna vetrarins verður að vinna úr öllum gögnum sumarsins. Áhugasamir lesendur eru hvattir til að skrá sig á póstlista verkefnisins á myralif.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar og reglulegar fréttir af verkefninu.

Aron Alexander Þorvarðarson, verkefnastjóri Mýralífs hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...