Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
MP banki kannar kaupáhuga
Fréttir 20. nóvember 2014

MP banki kannar kaupáhuga

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Á síðustu mánuðum hafa margir fjárfestar haft samband við Bændasamtök Íslands (BÍ) og lýst yfir áhuga á að kaupa fasteign og rekstur Hótels Sögu. Í ljósi þess hefur stjórn Bændasamtaka Íslands ákveðið að ráða fyrirtækjaráðgjöf MP banka til þess að sjá um söluferlið.

Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, segir mikilvægt að athugun á hugsanlegri sölu á þessari eign Bændasamtakanna sé í gegnsæju ferli og ekki á könnu stjórnarinnar einnar.

− Nú hefur á undanförnum árum margoft verið varpað upp hugmyndum á búnaðarþingi og víðar meðal bænda, hvort ekki væri rétt að skoða framtíðarfyrirkomulag varðandi reksturinn á Hótel Sögu og jafnvel að selja hótelið. Hvað veldur því að málið er tekið upp núna?

„Á síðasta búnaðarþingi ákváðum við að setja málið í ákveðinn farveg. Við kynntum fyrir búnaðarþingsfulltrúum samkomulag sem gert var við Arion banka. Þá gáfum við mönnum kost á að ræða aðeins framtíð Hótels Sögu og stilltum þar upp nokkrum kostum. Það væri að reka hótelið áfram, leigja reksturinn eða hugsanlega að selja allt saman. Þessar hugmyndir voru bornar saman og þegar menn höfðu fengið tækifæri til að segja sínar skoðanir á því tók stjórn BÍ ákvörðun um í hvaða farveg ætti að setja málið.

Í ljósi þess að nokkrir aðilar settu sig í samband við okkur og lýstu áhuga sínum á að kaupa hótelið, þá vildum við koma því í ákveðinn farveg. Þar sem um er að ræða stór félagasamtök er mikilvægt að slíkt ferli sé framkvæmt með gegnsæjum hætti. Við sömdum því við MP banka um að annast þessi samskipti við áhugasama fjárfesta.“

Hótel Ísland framselt til Arion banka

Varðandi uppgjör á erfiðri skuldastöðu hótelsins í kjölfar hruns krónunnar 2008, þá segir Sindri að það mál hafi verið gert upp við Arion banka. Niðurstaðan hafi falist í að BÍ lagði félaginu til nýtt hlutafé og hluti langtímaskulda var endurfjármagnaður. Samkomulagið fól einnig í sér að Bændasamtökin og Hótel Saga framseldu hlutabréf sín í Hótel Íslandi. Segir hann að eftir standi Hótel Saga sem vel rekstrarhæf eining og reksturinn hafi gengið mjög vel.

Hálfrar aldar saga

Hótelið er í eigu Hótels Sögu ehf. sem er 50 ára gamalt fyrirtæki í eigu Bændasamtaka Íslands. Á hótelinu eru 209 herbergi, tíu funda- og veislusalir og tveir veitingastaðir. Þar starfa um 100 manns. Fasteign Hótels Sögu ehf. við Hagatorg er um 19.000 fermetrar að stærð og hýsir hótelstarfsemi, veitingastaði, banka, hárgreiðslustofu, líkams­ræktarstöð og fleira. Skrifstofur Bændasamtaka Íslands eru á þriðju hæð fasteignarinnar.

Sindri segir að samhliða miklum vexti í ferðaþjónustu hafi rekstur Hótels Sögu gengið vel.
„Þá benda áætlanir til þess að enn meiri aukning verði á fjölda ferðamanna næstu árin. Bændasamtökin vilja leita allra leiða til þess að ávaxta eignir sínar með viðunandi hætti. Nú er rétti tíminn til að skoða hvort það geti verið hagfellt fyrir Bændasamtökin að eftirláta sérhæfðan hótelrekstur í hendur aðila sem vilja byggja sig upp á þeim vettvangi en ávaxta þess í stað eignir samtakanna með öðrum hætti.“

Vinna MP banka felst m.a. í að taka saman upplýsingar um hótelið og annast kynningu fyrir áhugasama kaupendur með gegnsæjum hætti. Þannig er að mati stjórnar BÍ tryggt jafnræði meðal áhugasamra fjárfesta. Endanleg ákvörðun um sölu verður síðan tekin af Búnaðarþingi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.