Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Möguleikar skoðaðir til skilvirkari framleiðslu í sauðfjárrækt
Mynd / smh
Fréttir 10. mars 2021

Möguleikar skoðaðir til skilvirkari framleiðslu í sauðfjárrækt

Höfundur: smh

Um síðustu mánaðamót fór nýtt verkefni formlega af stað hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem hefur það að markmiði að skoða möguleika á skilvirkari framleiðslu og þar með að bæta nýtingu á aðföngum í sauðfjárrækt. Annars vegar verða skoðaðar leiðir, meðal annars með því að fjölga burðum á ársgrundvelli og hins vegar að nýta sauðamjólk til matvælaframleiðslu.

Að sögn Runólfs Sigursveins­sonar, verkefnisstjóra hjá RML yfir verkefninu, sem heitir „Fundið fé – þróun á framleiðslukerfi í sauðfjárrækt“, verður farið yfir þá þekkingu sem til er varðandi líffræðilega og lífeðlisfræðilega þætti sauðfjárræktar, eins og fóðrun, jarðrækt og bútækni til að setja fram sviðsmyndir um mismunandi framleiðslukerfi.

Nýta betur land til sumarbeitar, fjölga burðum og slátra oftar

„Sauðfjárbúskapur hér á landi byggir að mestu leyti á framleiðslu lamba­kjöts innan hins hefðbundna framleiðsluárs, þar sem ær bera í maí, ganga í sumarhögum frá miðjum júní fram í byrjun september með lömbin, sem er síðan slátrað við 4–5 mánaða aldur,“ segir Runólfur.

„Langstærstur hluti tekna sauðfjárbúa koma annars vegar úr sauðfjársamningi og hins vegar af sölu á kjöti til sláturleyfishafa á haustin. Þar sem slátrun er svo árstíðarbundin þarf að frysta megnið af kjötinu til dreifingar og vinnslu á öðrum tímum ársins.

Fjölmargar rannsóknir og athuganir hafa verið gerðar á ýmsum afbrigðum frá þessu framleiðsluferli, sem dæmi má nefna að nýta ræktað land til sumarbeitar, að slátra utan hefðbundins sláturtíma, mjólka ær og nýta til ostagerðar, og fjölga burðum á ári. Þessar athuganir hafa þó í flestum tilfellum haft mjög afmarkað viðfangsefni þar sem ekki hefur verið farið í hagkvæmniathugun eða settar fram leiðir til að nýta niðurstöðuna inn í framleiðsluferil sauðfjárbús,“ segir Runólfur.

Hann segir að markmið verkefnisins sé að setja upp sviðsmyndir sem lýsa leiðum sem hægt er að fara til að auka framleiðslu bænda með betri nýtingu á aðföngum. „Sviðsmyndirnar verða síðan greindar út frá innra og ytra umhverfi þar sem leitast verður við að meta áhrif mismunandi þátta á framkvæmd sviðsmyndanna. Að lokum verður gerð hagkvæmnigreining á sviðsmyndunum út frá þeim upplýsingum sem verður aflað.“

Verkefnið, sem hugsað er til 12 mánaða, er sett fram sem rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem bornar verða saman mismunandi leiðir sem eru frábrugðnar hefðbundnu ferli í sauðfjárrækt, áskoranir og áhrifaþættir kortlögð og hagkvæmni þeirra metið. „Með verkefninu má ætla að verði til þekking sem getur nýst þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og aukinni verðmætasköpun í sauðfjárrækt með vöruþróun og matvælaframleiðslu sem byggir á fjölbreyttara framboði af vörum,“ segir Runólfur.

Verkefnið verður unnið með fjárhagslegum stuðningi úr Mat­vælasjóði og niðurstöður verkefnisins settar fram á formi rafræns bæklings sem verður öllum aðgengilegur, en einnig verða niðurstöðurnar kynntar meðal annars á fundum og með greinarskrifum.

 

Runólfur Sigursveins­son, verkefnisstjóri hjá RML.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.