Mikilvægt skref til framtíðar
Skoðun 11. ágúst 2026

Mikilvægt skref til framtíðar

Höfundur: Jóhann Már Sigurbjörnsson
Jóhann Már Sigurbjörnsson.

Það voru mikil gleðitíðindi þegar sjóðsfélagar samþykktu sameiningu Lífeyrissjóðs bænda við Frjálsa á ársfundi sjóðsins 19. júní síðastliðinn. Að mati stjórnar er þar um að ræða mikilvægt framfaraskref sem mun styrkja stöðu sjóðsfélaga og skapa traustari grunn til framtíðar.

Um langt skeið hefur verið rætt meðal bænda og innan stjórnar sjóðsins hvort rétt væri að sameina LSB stærri lífeyrissjóði. Ástæðan er einföld. Þótt sjóðurinn hafi þjónað sjóðsfélögum sínum vel í gegnum árin er hann lítill í samanburði við flesta aðra lífeyrissjóði landsins. Með stærri einingu skapast betri möguleikar til áhættudreifingar, aukið rekstrarhagræði og sterkari umgjörð utan um réttindi sjóðsfélaga.

Leiðin að þessari niðurstöðu hefur ekki alltaf verið greið. Ýmsar hugmyndir og sameiningartilraunir hafa komið til umræðu í gegnum tíðina án þess að ná fram að ganga. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta mikilvæga verkefni loksins komast í höfn.

Í vetur hóf stjórn LSB að nýju vinnu við að kanna möguleika á sameiningu og fóru fram vandaðar viðræður við Frjálsa lífeyrissjóðinn. Frá upphafi var lögð áhersla á að hagsmunir sjóðsfélaga væru í fyrirrúmi og að niðurstaðan yrði metin út frá því hvað væri best fyrir framtíð sjóðsins og þeirra sem á honum treysta.

Niðurstaðan liggur nú fyrir. Sjóðsfélagar hafa samþykkt sameininguna og þar með tekið mikilvæga ákvörðun sem stjórn LSB er sannfærð um að muni reynast farsæl til lengri tíma litið.

Frekari upplýsingar um samrunann, skipulag Frjálsa lífeyrissjóðsins, ársreikning 2025 og samþykktar breytingar, sem staðfestar voru á ársfundinum, eru á heimasíðu LSB, lsb.is.

Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka sjóðsfélögum fyrir traustið og þann stuðning sem þeir hafa sýnt í þessu ferli. Við teljum að með þessari ákvörðun hafi verið stigið mikilvægt skref í átt að öflugri og öruggari framtíð fyrir alla sjóðsfélaga.

Höfundur er nýkjörinn formaður stjórnar LSB.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...