Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Mikil vinna en erum ánægð og stolt
Fréttir 5. febrúar 2016

Mikil vinna en erum ánægð og stolt

Kjarnafæði hefur fengið staðalinn FSSC ISO 22000 fyrir framleiðsluvörur sínar. Þessi staðall hefur verið til í um það bil áratug og náð miklu flugi, er sá staðall sem mest er horft til í matvælaframleiðslu að sögn Eðvalds Valgarðssonar,  gæðastjóra hjá Kjarnafæði. 
 
Eðvald Valgarðsson.
Í liðinni viku lauk þriggja daga úttekt í fyrirtækinu sem hefur höfuðstöðvar sínar á Svalbarðseyri og gekk hún mjög vel. „Við erum mjög ánægð með niðurstöður úttektarinnar. Fengum fulla vottun án athugasemda og erum því afar stolt. Þetta er vinna þar sem allir verða að leggja sitt af mörkum og starfsfólk Kjarnafæðis hefur verið mjög opið og jákvætt fyrir þeim breytingum sem átt hafa sér stað síðustu misseri,“ segir Eðvald.
 
Langt ferðalag
 
Hann segir að mikil vinna hafi verið lögð í að uppfæra hættumat fyrirtækisins og meðal annars var sérstaklega tekið fyrir meðhöndlun óþols og ofnæmisvalda og meðferð þeirra efna, en hveiti er til að mynda einn af ofnæmisvöldunum. „En við sjáum vel, að það hjálpaði mikið að hafa þegar uppfyllt ISO 9001 staðalinn sem við gerðum á síðasta ári. Sá staðall tekur á öllum rekstri fyrirtækisins og er sterkur grunnur. Við kunnum vinnubrögðin og vitum hvers er krafist. Þetta hefur verið langt ferðalag, hófst árið 2010 þegar við tókum gæðamálin sérstaklega fyrir og settum okkur markmið,“ segir Eðvald. Undirbúningur vegna nýja gæðastaðalsins hófst í október í fyrra.
 
Erum að auka kröfur á okkur sjálf
 
Hann segir að það sem fyrst og fremst fáist út úr því að hafa hlotið þennan nýja gæðastaðal sé sá að kröfur á fyrirtækið og starfsmenn aukist. „Við erum að auka kröfur á okkur sjálf, en það er vilji eigenda Kjarnafæðis að vera í forystu í gæðamálum matvælafyrirtækja hér á landi, að framleiða alltaf heilnæm og bragðgóð matvæli. Það gerum við sem best sést á þessum vottunum.“
 
Þá nefndi Eðvald að það væri mikilvægt að hafa þessar vottanir þegar horft er til útflutnings, það sé nánast krafa að hafa þær. „En hér innanlands viljum við vera best meðal margra góðra fyrirtækja og teljum okkur sýna það í verki.“
 
Kjarnafæði er nú þegar með A vottun Matvælastofunar, A vottun Samtaka iðnaðarins, ISO 9001 vottun frá BSI á Íslandi og nú bætist nýjasta vottunin FSSC ISO 22000, einnig frá BSI á Íslandi við. 
 
Allt undir
 
Eðvald segir að sá staðall feli í sér djúpa hættugreiningu á allri framleiðslu fyrirtækisins með matvælaöryggi í huga. Hvert stig ferilsins sé skoðað og metið hvað farið getur úrskeiðis á hverjum stað og hvernig megi fyrirbyggja það. Byrjað er á að skoða alla birgja Kjarnafæðis, hvaða kröfur séu gerðar samkvæmt Evrópsku matvælalöggjöfinni og hverjar séu sérstaklega gerðar af fyrirtækinu sjálfu. Framleiðsluferlið allt er skoðað, frá móttöku hráefnis, framleiðslu á vörunni, geymsluskilyrði, frágangur og sala. „Í raun er allt undir. Húsnæði og aðbúnaður er skoðaður og umgengni starfsmanna er einnig undir smásjá, enda mikilvægt að hreinlæti sé fyrsta flokks.“
 
Eðvald segir að stjórnendur Kjarnafæðis leggi sérstaka áherslu á gæðamál, með virðingu við menn og umhverfi og hefði öll uppbygging vinnslunnar á Svalbarðseyri sem og uppfærsla tækjabúnaðar tekið mið af því. Þá hefði lengi verið unnið að vöruþróun á hreinum vörum án óþolsvalda, viðbætts sykurs og aukaefna. Þá eru umhverfismálin ofarlega á baugi innan fyrirtækisins og allur úrgangur er flokkaður og nýttur áfram sem kostur er. Þá hefði ötullega verið unnið að jafnréttismálum, vinnuvernd starfsmanna og öryggismálum og iðulega gengið lengra en krafist er. „Rekjanleiki vöru frá Kjarnafæði er algjör með fullkomnu kerfi frá Marel, hægt er að rekja hvað varan inniheldur, hvort sem er erlend eða íslensk krydd, grænmeti eða kjöthráefni,“ segir Eðvald. 

Skylt efni: Kjarnafæði

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.