Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Hólmfríður Þórsdóttir, Holtsmúla, Rangárþingi ytra, Kristbjörg Hilmarsdóttir, Þykkvabæjarklaustri, V-Skaftafellssýslu og Sigurlaug Steingrímsdóttir, Hárlaugsstöðum, Ásahreppi pakka gærum sem sendar voru til Svíþjóðar til vinnslu.
Hólmfríður Þórsdóttir, Holtsmúla, Rangárþingi ytra, Kristbjörg Hilmarsdóttir, Þykkvabæjarklaustri, V-Skaftafellssýslu og Sigurlaug Steingrímsdóttir, Hárlaugsstöðum, Ásahreppi pakka gærum sem sendar voru til Svíþjóðar til vinnslu.
Mynd / Aðsendar
Viðtal 25. nóvember 2024

Metmagn af feldfjárskinnum til vinnslu í Svíþjóð

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Félag feldfjárbænda á Suðurlandi hefur verið starfandi í um áratug og segir formaðurinn, Elísabet S. Jóhannsd. Sörensen í Köldukinn í Holtum, að talsverður uppgangur sé í þessum anga íslenskrar sauðfjárræktar.

Elísabet Sörensen.

Nú í haust fór metmagn frá okkur í félaginu til Svíþjóðar í sútun, eða um 400 gærur af feldlömbum, venjulegum lömbum og geitastökur,“ segir Elísabet.

Bændaferð til Svíþjóðar

Bændur á tíu bæjum eiga skinn sem fóru út til vinnslu. „Áður fyrr fóru skinnin okkar til sútunar á Sauðárkróki en þá var þetta mjög lítið magn, kannski 30–40 skinn. Síðan leggst verksmiðjusútun þar af og um leið hér á landi.

Árið 2017 fórum við feldfjárbændur í bændaferð til Svíþjóðar og hittum þar ræktendur Gotlandsfjár, sem er fyrirmynd íslenska feldfjárins. Í þessari ferð skoðuðum við meðal annars sútunarverksmiðju. Við hrifumst af því hvernig staðið var að öllum málum þar varðandi vinnsluna,“ útskýrir Elísabet.

„Síðan höfum við sent til þeirra okkar skinn og við erum tíu bændur sem höfum verið að senda út skinn í sútun. Þetta hefur aukist bara jafnt og þétt á hverju ári. Hvert skinn er merkt sínum bónda með númeri og ef við hefðum tök á því að einstaklingsmerkja gærurnar í sláturhúsinu þá gætum við fengið skinnin einstaklingsmerkt til baka sem væri mjög gaman, að geta rakið ferlið alla leið. Skinnin seljum við svo flest á okkar búum eða í handverksbúðum í héraði.

Við fáum skinnin bæði klippt og óklippt til baka frá Svíþjóð. Klipptu skinnin hafa verið eftirsótt, til dæmis hjá bólstrurum,“ segir Elísabet, spurð um hverjir séu helstu viðskiptavinir feldbænda. „Líka eru margir áhugasamir um að fá skinn bara til að prýða heimili sín.“

Aukinn áhugi á feldfjárrækt

Elísabet segir að almennt megi segja að hver og einn bóndi sé alltaf í auknum mæli að vinna sínar afurðir meira, til að búa til enn meiri verðmæti úr þeim. „Þá eru það bæði nytjahlutir og skrautmunir alls konar. Við notum þetta hráefni líka til að gera vettlinga, barnaskó og í raun bara eins og gömlu mokkaskinnin voru notuð.

Já, það er óhætt að segja að þessi grein sé mjög vaxandi,“ svarar Elísabet þegar hún er spurð að því hvort hún finni fyrir auknum áhuga bænda. „Núna viljum við fara að huga meira að framleiðslunni og handverkinu. Þá er ég að meina þannig að virðisaukinn verði meira eftir hjá okkur bændum og milliliðum sé fækkað. Þetta er nefnilega ekki aukabúgreinin okkar eins og hjá flestum öðrum sauðfjárbændum. Skinnin og ullin eru aðalafurðin, en kjötið aukaafurð.“

Þær Sigurlaug, Kristbjörg og Hólmfríður ræða málin.


Ullin líka gríðarlega mikilvæg

„Ullin er líka gríðarlega mikilvæg fyrir okkur sem kemur af öllum líflömbum okkar. Ull af feldfé hefur verið eftirsótt í handspuna því hún er svo mjúk og glansandi. Handverksfólk víða um heim hefur sótt í það að kaupa reyfi beint af bónda í handspuna til dæmis. Nú síðast var hollensk kona sem kom hingað á Ullarviku Suðurlands sem fékk senda ull og garn af feldfé til að kynna á 400 manna ráðstefnu handspunafólks í Hollandi.

Við höfum látið spinna fyrir okkur í Uppspuna og Gilhaga, smáspunaverksmiðjum á Íslandi, en einnig í Danmörku. Svo hefur Ístex unnið plötulopa fyrir okkur, en það er ákveðið vandamál fyrir okkur að Ístex þarf svo rosalega mikið magn til að hægt sé að láta vinna okkar hráefni þar.

Þannig að við höfum safnað saman og kannski látið ull frá okkur þriðja hvert ár til vinnslu þar,“ segir Elísabet.

Jónína Þórðardóttir, Lækjarbotnum, Rangárþingi ytra.


Í náinni snertingu við ræktunina

„Það er gríðarlega skemmtilegt að fást við þessa tegund ræktunar því eiginleikarnir eru svo nálægt okkur sem við sækjumst eftir að við getum hreinlega snert á þeim. Við veljum gripina út frá feldeiginleikunum,“ heldur Elísabet áfram.

Hvert lamb er metið að hausti samkvæmt ákveðnum stöðlum. „Nú getum við loksins skráð felddóma inn í Fjárvís sem er nauðsynlegt til að halda utan um ræktunarstarfið,“ segir Elísabet og segist sjálf hafa fjölgað töluvert núna í ásetningi fyrir veturinn, sé með 40 vetrarfóðraðar ær.

Ástríður Lilja Guðjónsdóttir, Vöðlum, Rangárþingi ytra og Sigurður Arnar Sverrisson, Þykkvabæjarklaustri, V-Skaftafellssýslu.


Heimsókn á Vesturland

Að sögn Elísabetar eru nokkrir félagar úr sunnlenska feldfjárræktarfélaginu að ráðgera heimsókn á Vesturland og kynna fyrir feldfjáreigendum þar hvað þau eru að gera. Hún segir að farin hafi verið slík ferð fyrir Covid-faraldurinn og nú sé ætlunin að endurtaka leikinn og funda með bændum þar. Áhugi sé þar einnig að aukast.

Fjölga þarf gripum inn í ræktunarstarfið

„Það er nauðsynlegt að glæða áhuga sem flestra á þessari ræktun til að hægt sé að fjölga hraðar vænlegum gripum inn í ræktunarstarfið. Ég hugsa að við séum kannski að nálgast um 300 vetrarfóðraðar feldær hér á Suðurlandi, þar sem langstærsti hlutinn er,“ segir Elísabet.

Hún bendir á að það sé árangur sem megi þakka Guðna Má Sveinssyni á Melhóli – og í raun að þessi ræktun sé einfaldlega enn til. „Þessi grein á heilmikið inni, því við sjáum á undanförnum árum hvernig áhugi hefur stóraukist til dæmis á prjónaskap og almennt meiri meðvitund að vinna með náttúrulegt hráefni.“

Skylt efni: feldfjárrækt

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...