Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
„... helgasta efnið sem hjartað elur“
Menning 4. júlí 2023

„... helgasta efnið sem hjartað elur“

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Orðsins list kemur að þessu sinni frá ungu ljóðskáldi sem heitir ágúst(a).

Ljóðskáldið ágúst(a).

Regína bókaútgáfa gaf út ljóðabókina Hrjóstugt hálfsumarland 2022 og er það fyrsta bók höfundar sem skrifaði ljóðin á nítjánda aldursári í alvarlegum veikindum en er í dag 26 ára. Í bókinni er að finna um 200 íslensk nýyrði og hefur Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur lýst ljóðskáldinu sem „nýrri dúndurrödd“ og að ljóðin búi yfir einstökum „tilfinningahita og orðkynngi“.

Í lýsingu útgefanda segir: „Fyrst var ungskáldið keðjulaus drengur; svo kom heiftúð helsærðrar fjölskyldunnar og félagsleg einangrun, þar á eftir skömm og líkamleg veikindi, þeim næst hugarmengun og síðast sjálfsvígsskylt bjargarþrot, eins og skáldið lýsir best: „ég er þokubundið stöðuvatn / ég er hrjóstugt hálfsumarland. Leitin að heilun og hlýju stigmagnast í síðasta kaflanum; andakt í garð ungrar konu og kvenleikans gjörvalls ríkir („í griðanótt / held ég stálfast um þig“) og þannig örlar kannski á varkáru æðruleysi, þrátt fyrir allt.“

Hrjóstugt hálfsumarland er heillandi bók, mjög nærgöngul og sár en um leið full af andríki. 

Ljóðin sem hér birtast eru úr kaflanum brennimarksljóð.

nánd í náttdaggarhögum

i.
rauðsóllituð kvöld
hringast upp rósgróna stigann
alskugglaus æska, fæðingarhvít

ég man öll danssporin þín
alheimsþorstann
heysátuna
aldingarðinn
dúnalognið
huldufólksbyggðina, vegina þeirra
almættið í lófa mér
undirleitt alnættið
nafnlausir akrar plægðir
nánd í náttdaggarhögum

þreyttur bóndi reytti arfa
úr djúpri mold í mátulegum fjarska
hvítfuglar um myrkgleyminn
kannski föður blámann
suðurland, stúlkuland, ljóðaland
þú varst ég
ég var þú
við vorum nánd í náttdaggarhögum

ii.
innst inní grasinu grétum við
allslífsnautnina
sem sönglaði glatt þetta sumar í hverri
suðurlandsnáttu
tær eins og lindarvatnið, nautnin tær
eins og lindartárin
í hverjum einasta móvindótta hesti á
beit og brjóstrauða farfugli
í hverri einustu heyrúllu og fljúgandi
hvítri vonóvon
þar lifði allslífsnautnin sem okkur var gefin
og gefin aðeins einu sinni

í okkur lifði sú græðislind, til þess eins
að deyja
um gullsólardagana þegar helgasta
efnið sem hjartað elur
holdgaðist í þér og brosti eitt
stundarkorn að mér

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 16. apríl 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn mun finna fyrir óvæntri spennu í kringum sig á næstunni. Framtíðarsý...

Alþjóðlega Kópavogsmótið
Líf og starf 14. apríl 2026

Alþjóðlega Kópavogsmótið

Alþjóðlegt skákmót fór fram í Kópavogi í mars. Skákmót með þessu fyrirkomulagi h...

Hart barist um gullið fyrir austan
Líf og starf 14. apríl 2026

Hart barist um gullið fyrir austan

Austurlandsmótið í sveitakeppni fór fram á dögunum á Eiðum og fór sérlega fram. ...

„Þakkir í myrkrinu“
Líf og starf 13. apríl 2026

„Þakkir í myrkrinu“

Ég rifja upp ljóðabók Ísaks Harðarsonar, Rennur upp um nótt, frá 2009. Fyrstu or...

Gvendardagurinn haldinn hátíðlegur
Líf og starf 13. apríl 2026

Gvendardagurinn haldinn hátíðlegur

Sunnudaginn 15. mars var Gvendardagurinn haldinn hátíðlegur á Hólum í Hjaltadal ...

Vísnahornið
Líf og starf 13. apríl 2026

Vísnahornið

Ég fór ekki rétt með vísu Heiðreks í síðasta blaði, að sögn kunngugra. En hún á ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 7. apríl 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að ýmislegt sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthv...

Landmannalaugar í myndagetraun blaðsins
Líf og starf 30. mars 2026

Landmannalaugar í myndagetraun blaðsins

Rétt svar við myndagetraun 6. tbl Bændablaðsins var Landmannalaugar.