Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Frá vinstri að ofan; Marilyn Monroe, Jimmy Carter, Bing Crosby og Debbie Harry. Frá vinstri að neðan má sjá verkamenn frá árinu 1930 íklædda gallabuxum og svo kúreka hversdagsins frá aldamótunum síðustu.
Frá vinstri að ofan; Marilyn Monroe, Jimmy Carter, Bing Crosby og Debbie Harry. Frá vinstri að neðan má sjá verkamenn frá árinu 1930 íklædda gallabuxum og svo kúreka hversdagsins frá aldamótunum síðustu.
Menning 27. maí 2024

Kanadísk samkvæmisföt

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Gallaefni fer aldrei úr tísku og hefur verið notað við hin ýmsu tækifæri frá því seint á nítjándu öld þegar straumhvörf urðu í heimi tískunnar.

Í hringiðu iðnbyltinga áður fyrr breyttust ýmsar þarfir manna, en meðal þess sem almenning virtist vanhaga um voru endingargóð vinnuföt. Fyrsta hönnun þeirra bauð upp á klæðnað úr strigaefni sem þótti afar slitsterkur. Upphaf gallaefnisins sem slíks hófst þó eftir kvartanir um að striginn væri harður og óvæginn viðkomu, en í Suður-Frakklandi fékkst bæði sterkt, þolgott og mjúkt bómullarefni sem var í framhaldinu notað í vinnufatnaðinn. Með tímanum dressuðu kúrekar villta vestursins sig í klæðnað úr þessu gallaefni frá toppi til táar auk þess sem námuverkamenn og gullgrafarar heimsins voru meðal þeirra er jusu efninu lofi og prís.

Menningarlegt tákn hersins varð að sýn á betri tíð

Í kringum 1940 ferðuðust bandarískir hermenn víðs vegar um heiminn með sinn ástkæra gallafatnað sem í senn þótti stílhreinn og smart. Þrátt fyrir að framleiðsla á slíkum vinnufatnaði hafi minnkað í stríðinu vegna skorts á hráefni, markaði lok stríðsins breytingu á því að gallafatnaður tengdist síður vinnu og frekar sett í flokk tómstundafatnaðar stælgæja. Þóttu gallabuxnaklæddir hermenn merki um afslappaða sýn á lífið og þá helst í Evrópu og Japan þar sem ekki var litið á þá sem ógn heldur óþvingaða viðbót við menninguna.

Hið klassíska tákn ameríska vestursins varð brátt fastur liður í fataskápum og hefur notið aukinna vinsælda allt frá stríðsárunum. Hetjur hvíta tjaldsins á borð við Marlon Brando og James Dean í myndunum „The Wild One“(1953) og „Rebel without a Cause“(1955) íklæddust gallafatnaði og hristu þannig upp í almúganum enda átrúnaðargoð sem helst allir vildu líkjast. Til viðbótar við þá tvímenningana tók eitt helsta kyntákn allra tíma, Marilyn Monroe, upp á því að klæðast gallabuxum, sem þótti afar djarft en þokkafullt á sama tíma og má dæmi um það sjá í myndinni „The Misfits“ sem gerð var árið 1954. Má nærri geta að sá gjörningur hafi sett tóninn fyrir aðrar kynbombur sem á eftir komu.

Kanadíski smókingurinn kemst á kortið árið 1951

Kúrekar, eins og áður sagði, klæddust gallaefni af miklum móð, svo og vinnandi almúgi um víða veröld, enda bæði hentugt og snyrtilegt. Með það í huga lagði bandaríski söngvarinn, Bing Crosby leið sína á hótel í Vancouver um miðja síðustu öld með félaga sínum, en var meinaður aðgangur.

Segir sagan að söngvarinn hafi verið mjög hrifinn af Levi's gallabuxum og bar með sóma uppáhaldsbuxurnar sínar þegar hann var í veiðiferð ásamt félaga sínum í Kanada. Reyndu mennirnir að skrá sig inn á hótel í Vancouver, en var neitað um herbergi vegna þess að strigaklæddir gestir voru ekki taldir í þeim háklassa sem sæmdi hótelinu. Vegna þess að mennirnir voru gallabuxnaklæddir, leit starfsmaður þjónustuborðsins varla upp og tók alls ekki eftir því að hann væri að vísa frá einum ástsælasta söngvara Bandaríkjanna. Sem betur fer áttaði lyftudrengurinn sig snarlega á mistökunum og fengu félagarnir því þak yfir höfuðið. Forsvarsmenn fyrirtækis Levi Strauss & Co. fréttu af uppákomunni og hönnuðu í kjölfarið smókingjakka úr gallaefni fyrir söngvarann sem honum var afhentur á hátíð í Nevada sem haldin var honum til heiðurs. Varð þarna til kanadískur smóking, eða á frummálinu „Canadian tuxedo“, sem útleggst sem alklæðnaður úr gallaefni, smókingjakki og buxur. Hefur þessi smekklega heilgalla-samsetning nú þekkst í áraraðir og notið afar mikilla vinsælda enda bæði slitsterk, hentug og alltaf jafn móðins.

Þegar tekin eru dæmi um vinsældir kanadíska smókingsins er ekki hægt að líta fram hjá Jimmy nokkrum Carter, settum forseta Bandaríkjanna árið 1977.

Hann var mikill aðdáandi alklæðnaðar gallaefnis almennt og var þekktur í forsetatíð sinni fyrir að spranga um í slíkum heilgalla ásamt frú sinni sem var gjarnan í stíl. Í kjölfarið mátti sjá hina ýmsu forseta íklædda fatnaði úr gallaefni, t.a.m. Ronald Regan, Bill Clinton og Barak Obama.

Stjörnur

Tískugúrúar hvarvetna hafa auðvitað tekið þessa frjálslegu samsetningu upp á arma sína og hannað hin ýmsu galladress í gegnum tíðina. Er mörgum minnisstætt parið Britney Spears og Justin Timberlake sem áttu einmitt stórleik á hátíð amerísku tónlistarverðlaunanna árið 2001, íklætt samsvarandi gallaklæðnaði og ýttu þar með af stað tískubylgju sem vart má segja að hafi enn lokið.

(ps. Rétt er að taka fram að einnig þekkja margir svokallaðan „Texas tuxedo“ en þá er samkvæmisjakki borinn að ofanverðu við gallabuxur, kúrekahatt og kúrekastígvél.)

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...