Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Hvað eru víðerni og hvar?
Menning 13. maí 2026

Hvað eru víðerni og hvar?

Höfundur: Þröstur Helgason

Við þurfum að endurhugsa víðerni og verndun þeirra nánast frá grunni á Íslandi, segir Þorvarður Árnason í bók sinni Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands sem kom út árið 2024 og hefur farið óþarflega hljótt.

Þetta er ein af meginniðurstöðum bókarinnar en Þorvarður segir að víðernavernd á Íslandi sé „enn í skötulíki“. Og hann bætir við: „Á meðan það ástand varir standa víðerni landsins að mestu varnarlaus gagnvart þeim öflum sem vinna, beint eða óbeint, að eyðingu þeirra.“ Um vernd víðerna þurfi nú að mynda samfélagslega sátt.

Niðurstöður bókarinnar koma að mörgu leyti á óvart. „Við vitum ekki enn almennilega hvað víðerni eru í íslensku samhengi vegna þess að okkur skortir orð sem nær að hugtaka innsta kjarna málsins – það er að víðerni grundvallist á tilvist hins villta í náttúrunni,“ segir Þorvarður.

Skilgreiningu á hugtakinu víðerni er fyrir vikið ábótavant í íslenskum lögum. Afleiðingin er sú að það er óljóst hvar þau er að finna á landinu. „Við vitum ekki hvar víðerni landsins fyrirfinnast, hversu mörg þau eru, hvar draga skuli mörkin á milli þeirra, hversu umfangsmikil þau eru í heild né hvað sérkennir þau, í það minnsta í náttúrulegu tilliti,“ segir Þorvarður.

Hann leiðir sömuleiðis í ljós að kortagerð hafi heldur ekki tekið mið af þessu hugtaki og raunar ekki náttúrunni sjálfri. Kortin sýna fyrst og fremst hvar villta náttúru sé ekki að finna á landinu. Hann segir mikilvægt að þróa „heildstæðari nálgun á kortlagningu víðerna á Íslandi“ sem grundvallist „á raunverulegum náttúrufarslegum einkennum víðerna“.

Þetta er ákaflega áhugaverð og hugvekjandi bók. Þorvarður nálgast viðfangsefnið úr ýmsum áttum og tekst að fá lesandann til þess að hugsa upp á nýtt um það. Eftir áratuga langa baráttu fyrir verndun víðerna Íslands, sem stundum eru sögð þau mestu innan Evrópu, er mörgum vafalaust farið, eins og þessum lesanda hér, að finnast hún sjálfsögð. Bókin færir hins vegar sannfærandi rök fyrir því að svo er alls ekki og enn mikið verk að vinna.

Það sem kannski flækir málið verulega er að víðernaverndun er ekki bara praktískt úrlausnarefni heldur snertir það tilfinningar og gildismat fólks, hugmyndir þess um það hvað skiptir máli. Að auki koma hugmyndir um það hvað fólki þykir fallegt við sögu. Um þetta flókna samspil ræðir Þorvarður sérstaklega í löngu máli í bókinni en það er kannski meginástæða þess að við „höfum, enn sem komið er, allt of takmarkaðan skilning á því hvers vegna okkur beri að vernda víðerni á Íslandi“, eins og Þorvarður bendir á.

Það er óhætt að mæla með því að allir sem koma að umræðu um náttúruvernd á Íslandi lesi þessa bók, hvort sem það er áhugafólk eða stjórnendur fyrirtækja og stofnana eða stjórnmálafólk. Hún er gott upplegg að þeirri umræðu sem nú þyrfti að hefja af fullum krafti á ný um það hvað skiptir okkur máli í þessu samhengi. Sú deyfð sem verið hefur yfir náttúruverndarumræðunni síðustu ár getur ekki haldið áfram enda skapar hún svigrúm fyrir óheillavænlegar ákvarðanir eins og nýleg dæmi sanna.

Skylt efni: Hrifla | Viðerni

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði
Líf og starf 10. nóvember 2026

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtist í 20. tölublaði Bændablaðsins. 

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 9. nóvember 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á l...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 5. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Sporðdrekinn hefur beðið spenntur eftir einhverju sem hann taldi dramatískt, en ...

TR trónir á toppnum
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helga...

Rosaleg blöð að norðan
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“ Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspi...

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Líf og starf 3. nóvember 2026

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts

Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til a...

Frumsýning á Kvennaráð
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfun...

Herdís Kolka stendur vaktina
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í ...