Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Leikfélagið Lauga hlaut Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar nú í ár.
Leikfélagið Lauga hlaut Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar nú í ár.
Mynd / Af vef Bandalag íslenskra leikfélaga.
Fréttir 8. september 2026

Haustvertíðin að hefjast

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Mikill og stöðugur áhugi hefur verið á starfsemi áhugaleikhúsa landsins, enda kemur þar að fólk úr öllum starfsstéttum og um mikilvægan og merkilegan þátt menningarlífs okkar Íslendinga að ræða. Sálin í hverri sveit, ef svo má segja, og vertíðir vanalegast að vori eða hausti þar sem sett eru upp verk yfir um tveggja mánaða skeið.

Hörður Sigurðarson.

Til dæmis er gaman að segja frá því að Leikfélagið Lauga, sem var endurreist árið 2022 á stoðum Leikfélags Ólafsvíkur, hlaut Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar nú í sumar, á þjóðhátíðardegi Íslands. Í umsögn nefndarinnar segir m.a.

„Leikfélagið Lauga á mikið hrós skilið fyrir sitt ríkulega framlag til menningarmála í samfélaginu. Með metnaðarfullum, fjölbreyttum og skemmtilegum uppfærslum á leikverkum undanfarin ár hefur félagið auðgað menningarlíf í Snæfellsbæ og skapað ógleymanlegar stundir fyrir íbúa og aðra gesti.“

Í maímánuði voru árleg verðlaun Athyglisverðustu áhuga- leiksýningarinnar veitt, í þetta skiptið sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror. Að venju fær leikfélagið þann heiður að flytja verkið á fjölum Þjóðleikhússins, en sú sýning fór fram þann 13. júní sl. við mikinn fögnuð áhorfenda. 

Brot úr umsögn dómnefndar:

Rocky Horror - Húsavík.

„Dómnefndin er snortin að sjá hversu margar, fjölbreyttar, metnaðarfullar og áhugaverðar sýningar fóru upp innan raða BÍL á liðnum vetri. Þetta er magnað út af fyrir sig og stóð dómnefndin því frammi fyrir ómögulegu verkefni. Sýningin sem þó varð fyrir valinu eftir ítarlegar umræður og vandlega umhugsun vakti athygli af ýmsum ástæðum. Ljóst er að mörg handtök fóru í undirbúning þessarar metnaðarfullu og djörfu sýningar. Þarna sást listfengi á mörgum póstum, lifandi tónlistarflutningur, skrautlegir búningar, litrík förðun, glæsileg leikmynd, ævintýraleg lýsing og umgjörðin að öllu leyti til þess fallin að vekja athygli.“

Hörður Sigurðarson, framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga segir almennt góðan anda í félögunum og hefur þá trú að þetta leikár verði mjög sterkt.

Til að mynda ætli nú í haust Leikfélag Sauðárkróks að setja upp leikverkið Bláa hnöttinn, Leikfélag Hveragerðis Pílu pínu, Leikfélag Fjallabyggðar Kardimommubæinn og Leikfélag Kópavogs Jólapakkana svo eitthvað sé nefnt.

Sjálfur stendur Hörður fyrir nýliðanámskeiði hjá Leikfélagi Kópavogs sem hófst nú í vikunni, en þar verður farið í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Mikill áhugi var fyrir námskeiðinu sem er ætlað fólki 21 árs og eldri, og biðlisti myndaðist – enda óhætt að segja að leiklistarbakterían smiti heldur betur út frá sér.

Á síðu Bandalags íslenskra leikhúsa undir flipanum aðildarfélög má finna starfandi áhugaleikhús hérlendis og um að gera að kynna sér starfsemina. Fjölmörg störf eru á bak við tjöldin jafnt sem á sviðinu, ljós, leikmynd, förðun og allt þar á milli. Hér er um gefandi félagsskap að ræða þar sem allir eru velkomnir og ættu að geta fundið sér stað. Áfram áhugaleikhúsin!  

Skylt efni: Áhugaleikhús

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...