Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Fuglar (og menn)
Viðtal 7. september 2026

Fuglar (og menn)

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Þar sem náttúruöflin mætast og himinninn er blár, þar sem kyrrðin ræður ríkjum stærstan hluta árs, brestur á með samfelldu kvaki og vængjaslætti um tólf þúsund æðarfugla að vori. Í Loðmundarfirði, þessum tignarlega eyðifirði á Austfjörðum eyða hjónin Ólafur Aðalsteinsson og Jóhanna Óladóttir sumrunum sínum.

Kvikmyndin Fuglar (og menn) í leikstjórn Ingvars Þórðarsonar, Ragnars Axelssonar og Mika Kaurismaki segir sögu þeirra hjóna sem hafa í rúma tvo áratugi helgað tíma sínum uppbyggingu og verndun æðarvarpsins við örðugar aðstæður og byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins.

Á meðan örfá hús, tóftir og kirkjan að Klyppstað standa eftir sem þögull minnisvarði um tíma mannlífs og blómlegrar byggðar, fá áhorfendur að upplifa samróm manna og fugla í hrífandi og stórbrotinni frásögn þrautseigju og virðingar.

Rof milli manns og náttúru

Segir Ingvar að sínu mati sé að verða rof á milli manns og náttúru hérlendis. Virðing og tenging manneskjunnar við náttúruna er að rofna og þessu þurfi fólk að gera sér grein fyrir.

Ólýsanleg tilfinning sé að upplifa í raun frumstæða tilveru fjarðarins. Þar náist lítið sem ekkert samband raftækja og lætur náttúran sem slík engan ósnortinn. Þau Ólafur og Jóhanna hafi yfir árin myndað traust og samvinnu við dýrin, gæti þess að fæða bæði mink og hrafna sem annars myndu gæða sér á æðarfuglaungum. Einnig hafi Ólafur byggt hverjum fugli kofa til að auðvelda varpið, en hann er gjarnan talinn einn fremsti fuglafræðingur heims þó án nokkurrar formlegrar menntunar á því sviði.

„Í stað þess að byggja skjólvegg fyrir hvern fugl byggir hann hús,“ segir Ingvar. „Þetta eru sex þúsund hús þannig ef maður beygir sig niður og horfir upp er það ótrúleg upplifun að sjá tólf þúsund fugla steypast niður úr himnunum og hver í sitt athvarf.“ Hann bætir við að þau hjónin séu ótrúleg, enda mikil elja og þrek sem þarf til þess að sinna fuglunum á þennan hátt. Einnig þurfi að gæta þess reglulega að vistir séu nægilegar, því Loðmundarfjörður er svo óaðgengilegur að þangað er nær ómögulegt að komast nema á vissum tímum yfir árið.  

Líklega ein besta mynd sögunnar

„Við frumsýndum myndina erlendis fyrst og hún hefur farið núna í um 15 lönd, verðlaunuð í bak og fyrir auk þess að hafa verið valin besta mynd af áhorfendum á Skjaldborgarhátíðinni sem haldin var á Patreksfirði nú í maí.

Í kjölfarið forsýndum við svo á Seyðisfirði og Eskifirði, alls þrjár sýningar nú í lok ágústmánaðar við mikil og góð viðbrögð. Þetta var metsýning á Eskifirði, mættu fleiri en á Michael Jackson,“ segir Ingvar hlægjandi sem áætlar aukasýningu á Eskifirði um miðjan september. Bætir svo við með hógværð að Fuglar (og menn) sé líklega ein besta mynd Íslandssögunnar. Ískalt mat.

Frumsýning myndarinnar er 9. september í Smárabíó, en almennar sýningar hefjast 17. september bæði í Smárabíó og Bíó Paradís.

Eins og áður kom fram er leikstjórn í höndum Ingvars Þórðarsonar, Ragnars Axelssonar og Mika Kaurismäki, Birgit Guðjónsdóttir sá um kvikmyndatöku, Ni Ijäs um handrit og klippingu, hljóðhönnun var í höndum Addi 800, tónlist sá Magnús Jóuann Ragnarsson um go framleiðandi var Ingvar Þórðarson. Ljósmyndir, RAX.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...