Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Meistari ævintýrabygginga
Líf og starf 18. desember 2023

Meistari ævintýrabygginga

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Samúel Jónsson, bóndi í Selárdal, skildi eftir sig merkilega arfleifð sem var að hruni komin þegar velunnarar hófu endurreisnarstarf.

Ólafur J. Engilbertsson

Í nýrri bók um Samúel, Steyptum draumum, er fjallað um líf hans og list og ljósi varpað á hver þessi maður var „sem byggði einn síns liðs þessar sérkennilegu byggingar og listaverk á þessum afskekkta stað á hjara veraldar, byggingar sem voru eins og stokknar út úr ævintýri eða komnar um langan veg utan úr heimi ...“, eins og segir í formála Ólafs J. Engilbertssonar, ritstjóra bókarinnar.

Byggði kirkju yfir altaristöfluna

Samúel Jónsson var fæddur 1884 og lést 1969. Hann var bóndi á Brautarholti í Selárdal í Ketildalahreppi í Arnarfirði.

Á bókarkápu segir: „Hann er einn þekktasti alþýðulistamaður sem Ísland hefur alið − þó ekki hafi verið fjallað um hann að neinu ráði í bókum um myndlist.

Samúel var sjálflærður í listinni, en sem ungur maður teiknaði hann talsvert og málaði með vatnslit og olíulit. Listaferill hans hófst þó ekki fyrir alvöru fyrr en hann hafði efni á að kaupa sement fyrir ellilífeyrinn í þeim tilgangi að reisa listasafn og höggmyndagarð og svo bættist kirkja við, með býsönskum turni sem hann byggði einn síns liðs, kominn hátt á áttræðisaldur. Þá kom vel í ljós að Samúel var mikill verkfræðingur í sér.

Kirkjuna reisti Samúel þegar sóknarnefndin vildi ekki þiggja altaristöflu sem hann hafði málað fyrir Selárdalskirkju.“

Mörg verk glatast

„Fjallað er um ævi og listsköpun Samúels og birtar myndir af verkum hans sem flest eru í einkaeigu, en mörg hafa glatast. Einnig eru birtar myndir sem sýna Samúel á síðustu árum hans á Brautarholti og myndir af listasafninu eftir lát hans.

Jafnframt segir af endurreisnarstarfinu frá því Félag um endurreisn listasafns Samúels var stofnað 1998.“

Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til áframhaldandi endurreisnarstarfs og til verndar verkum Samúels.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.