Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir oft meiri lægðagang í Norðvestur-Evrópu á El Niño vetrum og veður breytilegra.

Hann segir að á El Niño árum séu færri fellibyljir á Norður-Atlantshafi og að í ár hafi engir fellibylir þróast þar. „Veruleg áhrif verða á Norður-Ameríku en Evrópa er undan vindi, miðað við að vestanáttir háloftanna stýra veðrakerfum frá N-Ameríku yfir Atlantshafið.“

Öfgar í veðri

Vísindamenn hafa gefið út viðvaranir um að El Niño í ár verði mögulega sá versti í sögunni. Hann geti fært með sér ofsaveður; flóð, þurrka og gróðurelda. Fréttir berast einnig af því að miklar rigningar í Atacama eyðimörkinni í Chile hafi orðið til þess að nú sé hún í miklum blóma.

Halldór segir El Niño hafa gerst nægilega oft til að búið sé að kortleggja helstu áhrif nokkuð vel. „Stórir El Niño eru hins vegar fágætir.“ Samhliða sé hnötturinn að hitna og erfitt geti verið að aðgreina áhrif hnattrænnar hlýnunar og sérstök áhrif óvenjulega stórs El Niño.

Áhrif sérstaklega breytileg

Halldór segir áhrif El Niño breytileg á milli atburða, sérstaklega þessara stóru, sem gjarnan eru kallaðir Super El Niño. „Veðrið kann að vera breytilegra en hvernig, er ólíkt milli atburða. Þetta hefur verið skoðað mikið og hvað okkar heimshluta varðar þá er það helst að lægðagangur virðist oft meiri í Norðvestur-Evrópu á El Niño vetrum.“

„El Niño hefur bæði áhrif á þróun veðurs í Norður-Ameríku og það hvernig lægðum er stýrt yfir N-Atlantshafið“, segir Halldór. „Þar vaxa lægðir hinsvegar og hnigna á víxl svo áhrif El Niño geta verið erfið að greina þegar skoðuð eru öll veður tiltekins El Niño misseris.“

Engir fellibyljir á Norður-Atlantshafi

„Þegar fellibyljir eiga sér stað á Atlantshafinu þá þróast þeir oft í úrkomulægðir, sem ganga svo á land í Evrópu eða á Grænlandi.“ Halldór segir fara eftir ýmsu hvert úrkomulægðirnar ferðast, þær geti gengið á land hvar sem er á milli Grænlands og Spánar. Engir fellibyljir hafa þróast þar í ár.

Halldór segir ekkert fast í hendi með áhrif El Niño á Íslandi í vetur. Hann segir spár um langtímahorfur sýna að háþrýstisvæði muni myndast yfir Kanada upp úr áramótum og teygja sig yfir Grænland. Það sé ávísun á norðanáttir meðfram Austur-Grænlandi sem gætu valdið norðanátta-tíð á Íslandi. „Langtímaspár svo langt fram í tíman eru þó óáreiðanlegar.“

Skylt efni: El Nino

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...