Hluthafar í rekstrinum eru bræðurnir Guðbjartssynir og hin írska Sarah Emma O´Neill, sem er líka verslunarstjóri og tekur á móti gestum, og Ístex sem á 10% hlut.
Hluthafar í rekstrinum eru bræðurnir Guðbjartssynir og hin írska Sarah Emma O´Neill, sem er líka verslunarstjóri og tekur á móti gestum, og Ístex sem á 10% hlut.
Mynd / eks
Viðtal 25. nóvember 2026

Meira mannlíf með tilkomu Álafosskvosar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Saga ullariðnaðarins í Álafosskvosinni er sögð á nýrri sýningu sem verður opnuð í endurnýjaðri verslun við Álafossveg og ber heitið Álafosskvos. Formleg opnun verður laugardaginn 21. nóvember. Fjölnota og hlýlegt kaffihús verður einnig opnað von bráðar í versluninni, glerviðbyggingu verður bætt við og göngubrú byggð sem tengir svæðið við Helgafellshverfið.

Bræðurnir Hafsteinn Valur og Lárus Guðbjartssynir standa að uppbyggingunni en hún er unnin í góðu samstarfi við sveitarfélagið Mosfellsbæ og Ístex, sem er í meirihlutaeigu íslenskra sauðfjárbænda, og er hluthafi í rekstrinum. „Svona skref hefur ekki verið tekið í langan tíma,“ segir Hafsteinn. Hann segir sýninguna þjóna mikilvægu hlutverki í að útskýra af hverju íslenska ullin og ullarvinnslan er sérstök og stórmerkileg og verslunina og kaffihúsið verða kærkominn samkomustað.

Sagan gerð aðgengileg

Álafosskvosin var friðuð árið 2013 vegna náttúrufars, menningar og sögulegs gildis. Uppbyggingin kemur í kjölfar áfangastaðagreiningar sem unnin var fyrir sveitarfélagið Mosfellsbæ þar sem fram kom skýr áhugi á að koma á fót ullarsafni, fræðslu, kaffihúsi og menningarviðburðum í kvosinni. Bærinn kemur ríkulega að uppbyggingunni.

„Hér verður ullarævintýrið til,“ segir Hafsteinn. Markmiðið hafi verið að gera vel og þeir hafi því fengið Basalt arkitekta og Gagarín með sér í lið, „það var ekki annað til umræðu en að fá besta fólkið inn í verkefnið“. Umræddar hönnunarstofur eru báðar margverðlaunaðar.

Ósk þeirra bræðra er að yfirskriftin „Álafosskvos“ nýtist fyrir aðra starfsemi í kvosinni í framtíðinni. „Ég vil kalla þetta fyrsta skrefið í umbreytingu á svæðinu. Það eru allir að tala saman og eru svolítið peppaðir,“ segir Hafsteinn, sem er að vonum ánægður með þann einhug sem ríkir.

Að velja liti í peysu er vandasamt verk. Á sýningunni gefst færi á að leika sér við að máta saman þá liti sem eru í boði.

Ullarsýning, verslun og kaffihús

Basalt arkitektar hönnuðu rýmið sem heldur vel utan um sýninguna, verslun þar sem hægt er að kaupa band og peysur, leiksvæði fyrir krakka og rými þar sem ætlað er að prjónahópar geti hist, jafnvel fleiri en einn á sama tíma.

Kaffihús verður opnað innan skamms í fjölnota rými sem snýr út að Varmánni og býður upp á samveru og viðburði, en verður rekið sér. Útsýni er yfir ána og upp að Álafossinum, sem dregur nafn sitt af álum sem gengu í ána og þar sem ullarþvottur fór áður fram. Hafsteinn segir rekstraraðila opna fyrir hugmyndum að viðburðum en áhersla í fyrstu verði á ullar- og prjónaviðburði.

Sýningahönnun var í höndum Gagarín sem hafa sérhæft sig í gerð gagnvirkra sýninga. Sýningin flæðir um rýmið og þar er saga ullariðnaðarins í kvosinni sögð í einföldu og skýru máli og myndum. Á meðal sýningargripa eru nokkrar gamlar vélar, myndbönd sem veita innsýn inn í vinnsluferlið, svo sem ullarþvottinn, vélprjónaðar peysur, efnisprufur af ull og spunnum lopa og ilmur staðarins sem sameinar nýslegið tún og ull. Ætlunin er að koma upp góðri vefverslun og miðla sögunni líka á vefsíðu verkefnisins, alafosskvos.is.

Ullin eitt af fáu sérstöku á Íslandi

„Af því sem við höfum á Íslandi er ekki margt sem er sérstakt. En ullin er eitt af því. Ég er ekki viss um að allir þekki sérstöðu íslensku ullarinnar, togið og þelið og fituna í ullinni sem gerir hana nær alveg vatnsfráhrindandi. Við reynum að segja þá sögu á sýningunni.“

Hafsteinn er alinn upp við mikinn prjónaskap og hefur ljóslega mikið dálæti á þessu einstaka efni sem íslenska ullin er. Hann er sannfærður um að prjónaskapur sé ekki hnignandi iðja. Yngri kynslóðir séu að læra að meta gildi þess að prjóna frekar en að eyða óhóflegum tíma fyrir framan hina ýmsu skjái. Sama gildir um eldri kynslóðirnar, fyrirmyndir þeirra yngri, sem tók kipp í handverki og sér í lagi prjóni þegar heimsfaraldurinn geisaði. Að þessum menningararfi er nú hlúð í Álafosskvosinni.

Vilja laða fleira prjónafólk að

Hafsteinn segir þau sem standa að verkefninu vera í góðum tengslum við verksmiðju Ístex sem er ofar í götunni. Ístex er í meirihlutaeigu íslenskra sauðfjárbænda og þar er spunnið band í handprjón og einnig í vélprjón.

Verksmiðjan heldur úti skipulögðum ferðum þar sem gestir eru leiddir um ferlið allt frá því ullin kemur inn í verksmiðjuna og þar til bandið er spunnið. „Við viljum tengja þann túr hingað þar sem gestir geta séð söguna og endanlegu afurðina, eins og peysurnar.“ Hann segir þegar mikla ásókn í ferðir í verksmiðju Ístex og eftirspurn þeirra gesta eftir að kaupa band sé þegar til staðar.

Hann bendir á að hér sé tækifæri á að laða að fleira prjónafólk erlendis frá líka. Slík ferðamennska er orðin umfangsmikil í heiminum í takti við endurnýjaða meðvitund um staðbundna framleiðslu, handverk og hæglæti. Á góma ber umfjöllun um íslensku ullina, hefðina og handverkið í finnskum þáttum fyrir nokkrum árum sem hafði í för með sér mikla tímabundna aukningu í eftirspurn eftir prjónabandi frá Ístex, verksmiðjan hafi á tímabili nær tæmst.

Þarf að fjárfesta meira

„Við erum að taka svolítið stóran séns með þessu verkefni. En okkur bræðrum finnst eins og það sé hægt að gera miklu meira með íslensku ullina. Þegar þú horfir út fyrir landsteinana er staðan ansi sterk þegar kemur að gæðum og verði. Prjónafólk veit það en aðrir átta sig kannski ekki á því, en ull er að hækka í verði erlendis og það er aukin eftirspurn eftir náttúruafurðum á heimsvísu. Það þarf að gera miklu meira hér og það gerist ekki af sjálfu sér, það þarf að fjárfesta.“

Hafsteinn vonast eftir að verkefnið verði hvati að fleiri verkefnum sem hafa með ullina að gera. „Það vinnur með okkur að aðrir geri eitthvað líka. Það vinnur með öllum.“

Þurfum að keppa á gæðum og sérstöðu

„Verksmiðjur eins og Ístex eru margfalt stærri erlendis. Við verðum að keppa á sérstöðunni, við getum það. Það er aukinn áhugi á að eiga flíkur sem eru úr náttúrulegum efnum. Ullin var lengi of ódýr, hún er dýrari núna en hún er mjög samkeppnishæf í verði.“

Í versluninni eru peysur til sölu prjónaðar af prjónakonum á Íslandi. Hafsteinn segir mikilvægt að fullunnin vara sé framleidd á Íslandi og að við missum ekki óunnið hráefni úr landi. „Ætlum við að vera hrávöruframleiðsluríki, eða ætlum við að vera eitthvað annað? Við erum smáþjóð úti í ballarhafi og þetta er sérstakt.“

Sýnishorn af ull, spunnum lopa, prjónaprufum og ullarfitu eru meðal sýningarmuna.

Leikið við hvurn sinn fingur

Skapandi andi ríkir í Álafosskvosinni og góð stemning, segir Hafsteinn. Þar eru auk verksmiðju Ístex, Ásgarður hinum megin við götuna, sem er handverkstæði og verslun, skátarnir með ríkulegt starf og Sundlaugin, eitt þekktasta hljóðver landsins.

Hafsteinn heldur að íbúar í Helgafellshverfinu eigi eftir að verða nokkur þúsund þegar það hefur byggst upp og þegar sé töluvert af ungu fólki með börn. Þau ákváðu því að hafa leikhorn fyrir krakka. Ekki er annað hægt að segja en að það sé hlýlegt og að börnin munu getað leikið við hvurn sinn fingur á meðan foreldrarnir sötra kaffi og prjóna nokkrar umferðir.

Menningarverðmæti í Álafosskvosinni

Ylvolg Varmáin sem líður hjá var uppsprettan að ríkulegri starfsemi í kvosinni. Árið 1896 stofnaði Björn Þorláksson þar tóvélaverkstæði eftir að hafa kynnt sér álíka starfsemi í Noregi. Þarna var stigið eitt af fyrstu skrefunum í iðnvæðingu ullariðnaðar á Íslandi, haganlega staðsett nálægt markaðnum í höfuðborginni.

Mikið hefur dunið á ullariðnaði á Íslandi á undanförnum árum. Iðnaðurinn, sem eitt sinn var umfangsmikill, framleiðslan fjölbreytt og hélt bókstaflega hita á landsmönnum, hefur tekið ýmsum breytingum á tímabilinu og hefur nú dregist mikið saman. Á annað hundrað manns störfuðu hjá Álafossi um miðja 20. öldina, sem þá framleiddi prjónaband, gólfteppi, vaðmál, teppi og fleira úr íslensku ullinni. Eftir gjaldþrot Álafoss árið 1991 var Ístex stofnað og garnverslun var í því húsnæði sem nú hefur verið endurnýjað undir merkjum Álafosskvosar.

Ný göngubrú og útsýnispallur

Uppbygging innviða sem sveitar- félagið ákvað að ráðast í á svæðinu er á næsta leiti, svo sem göngubrú að Helgafellshverfinu og bygging útsýnispalls við Álafossinn.

Mosfellsbær hefur einnig aðkomu að sýningunni í formi leigu á henni til fimm ára. Samhliða hefur farið fram vinna að verkefninu Verndarsvæði í byggð, sem felur meðal annars í sér skrásetningu á húsakosti og ásýnd svæðisins, tengslum byggðar og náttúru, sögulegum minjum og lifandi menningararfi sem á sér þar aldalangar rætur.

Saga kvosarinnar heldur nú áfram og Mosfellingar og gestkomendur geta horft til notalegra samverustunda í Álafosskvos, með rjúkandi bolla og prjóna í hönd, umvafðir íslensku ullinni og fallegu umhverfi innra og ytra.

Skylt efni: álafoss

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...