Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Mynd / ál
Fréttaskýring 28. ágúst 2026

Megináherslan að tryggja Íslandi sem mest ákvörðunarvald

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Mikið hefur verið rætt um áhrif ESB aðildar á landbúnað en samkvæmt skýrslu Bændasamtakanna og reynslu annarra landa líkt og Finnlands yrðu áhrifin á landbúnað áþreifanleg. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, svarar hér nokkrum spurningum er varða landnotkun, landbúnað sem auðlind og hvaða áherslur þarf að hafa ef til samningsviðræðna kemur.

Hvaða auðlindum sem tengjast bújörðum eru bændur mest á varðbergi gagnvart ef til samningsviðræðna kæmi? Hver er mikilvægasta auðlind íslensks landbúnaðar?

„Landið sjálft er einna mikilvægasta auðlind íslensks landbúnaðar en við erum ekki eingöngu að tala um ræktunarland heldur líka beitilönd, vatnsréttindi, hlunnindi og þá framtíðarmöguleika sem fylgja þessum auðlindum. Ísland býr enn yfir verulegu ónýttu landi sem gæti nýst til matvælaframleiðslu í framtíðinni og við vitum ekki hvaða verðmæti vatn, ræktunarland og aðrar auðlindir munu hafa eftir 20 eða 30 ár. Landbúnaðarstefnan hér á landi hefur mótast af því að landið sé ekki aðeins framleiðsluþáttur heldur auðlind sem beri að nýta af ábyrgð, framsýni og virðingu. Þess vegna er mikilvægt að varðveita fullt svigrúm til þess að Ísland ráði sjálft hvernig landinu er og verður ráðstafað.“

Hverjar eru ykkar rauðu línur þegar kemur að eignarhaldi á landi og finnst ykkur núverandi reglur um kaup erlendra aðila á jörðum nægilega sterkar?

„Við búum við þann raunveruleika að Ísland er eitt vatnsríkasta land í heimi og á sama tíma vara alþjóðlegar stofnanir við auknum vatnsskorti og skertu aðgengi að ferskvatni. Þess vegna snýst heildarmyndin ekki aðeins um landbúnaðarland og að halda því í notkun heldur einnig um þau réttindi sem fylgja eignarhaldinu á landinu, eins og vatn, hlunnindi og aðrar auðlindir framtíðarinnar.

Það þarf að vera hægt að tryggja að gott ræktunarland haldist í landbúnaðarnotkun, að koma í veg fyrir samþjöppun eignarhalds og að vernda vatnsréttindi og önnur gæði sem fylgja jörðum. Spurningin snýst ekki bara um hver má kaupa land heldur hvort Ísland hafi áfram fullt svigrúm til að setja reglur um eignarhald og nýtingu lands í samræmi við íslenska hagsmuni.“

Nú er landbúnaður hluti af innviðum þjóðarinnar og gegnir lykilhlutverki í fæðuöryggi. Hversu langt á Ísland að ganga í að viðhalda eigin framleiðslugetu?

„Mjög langt. Fæðuöryggi snýst ekki um að geta keypt mat að utan þegar allt gengur vel og treysta að svo verði um ókomna tíð, enda sýnir sagan okkur annað. Þetta snýst einfaldlega um að hér séu bændur og að þekking á búskaparháttum og framleiðslu á matvælum haldist. Ef framleiðslugeta tapast tekur mörg ár að byggja hana upp aftur. Það á að vera kappsmál að öflugri innlendri matvælaframleiðslu sé ekki einungis viðhaldið heldur að hún verði aukin svo unnt verði að mæta þörfum þjóðfélagsins hverju sinni.“

Hvaða áhrif hefði fækkun búa á samfélög í dreifbýli?

„Áhrifin ná langt út fyrir búin sjálf. Hvert bú styður við vinnslu, flutninga, þjónustu, verslun og fjölmörg störf í nærumhverfinu. Ef búum fækkar mikið veikist rekstrargrundvöllur þessarar starfsemi líka. Það getur haft áhrif á búsetu, atvinnulíf og þjónustu í heilum byggðarlögum. Landbúnaður er því ekki bara framleiðsla matvæla heldur hluti af samfélagslegum innviðum landsbyggðarinnar.“

Hvaða lærdóm teljið þið að Ísland eigi helst að draga af reynslu Finna við að ganga í Evrópusambandið?

„Það að varanlegar sérlausnir innan stefna sambandsins breyta ekki grundvallarreglum sambandsins. Finnland fékk varanlega heimild til sérstaks norðlægs stuðnings landbúnaðar norðan 62. breiddargráðu en þurfti að taka sameiginlegu landbúnaðarstefnuna upp í heild sinni. Strax við inngöngu Finna í sambandið lækkaði afurðaverð til bænda verulega og síðan þá hefur Finnland þurft að beita umtalsverðum innlendum stuðningi til að viðhalda landbúnaði á norðlægum svæðum landsins. Finnska leiðin, aðdragandi hennar og endanleg niðurstaða sýnir hvað lengst verður komist innan grundvallarreglna sambandsins án þess að gengið sé í berhögg við þær. Á sama tíma er óumdeilt að Ísland þyrfti víðtækari lausnir en Finnar, enda þurfum við að auka framleiðslu matvæla en ekki eingöngu viðhalda henni. Hvort slíkar varanlegar lausnir fengjust innan þeirra þröngu marka sem innri markaðurinn og reglur um ríkisaðstoð setja séu raunhæfar, þá verð ég bara að vera hreinskilinn um að það er afar fátt sem bendir til þess að svo gæti orðið.“

Hvaða áherslur þyrftum við að ganga með inn í samningsviðræður þegar kemur að eignarhaldi og nýtingu lands og að nálgast landbúnað sem auðlind? Hvaða undanþágur væri mikilvægt fyrir bændur að fá?

„Megináherslan yrði að tryggja Íslandi sem mest ákvörðunarvald til að móta eigin stefnu um nýtingu lands, auðlindir, búskaparhætti og matvælaframleiðslu í samræmi við íslenska hagsmuni og aðstæður. Við þurfum að horfa til framtíðar. Fólki fjölgar og við þurfum að efla og auka við innlenda matvælaframleiðslu en ekki frysta hana eða viðhalda.

Verði vilji þjóðarinnar sá að hefja viðræður um aðild að nýju munu Bændasamtökin að sjálfsögðu axla þá ábyrgð að gæta hagsmuna íslensks landbúnaðar af fullum þunga og vinna að því með stjórnvöldum að sækja bestu mögulegu niðurstöðu úr því sem komið væri“.

Skylt efni: esb

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...