Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Mávarnir eru orðnir áræðnari þegar kemur að því að stela mat úr höndunum á fólki og jafnvel steikum af grillinu eins og dæmi eru um hér á landi.
Mávarnir eru orðnir áræðnari þegar kemur að því að stela mat úr höndunum á fólki og jafnvel steikum af grillinu eins og dæmi eru um hér á landi.
Fréttir 9. desember 2020

Mávar tímasetja heimsóknir sínar

Höfundur: Vilmundur Hansen

Nýlegar rannsóknir Háskólans í Bristol á Englandi benda til að mávar tímasetji komu sína og heimsæki ólíka staði þar sem er von um æti eftir því hvenær ætisvonin er mest. Þetta og aukin lífrænn úrgangur er meðal annars talið geta skýrt gríðarlega fjölgun máva í heiminum síðustu 40 ár.

Skoðun á atferli máv­anna sem var gerð sýndi að þeir áttu það til að koma á skólalóðir skömmu áður en frímínútur hæfust og sérstaklega þær frímínútur sem börnin borðuðu yfirleitt nestið sitt utandyra. Um leið og skólabjallan hringdi inn og frímínútunum lauk helltu mávarnir sér yfir skólalóðina og hirtu afganga eða mat sem börnin skildu eftir. Rannsóknin sýndi einnig að um helgar sætu mávarnir um svæði þar sem líklegast væri æti og sniðgengu skólana.

Í rannsókninni var fylgst með hópi máva sem hafa aðsetur í Bristol með GPS-staðsetningartækjum sem komið var fyrir á fuglunum. Niðurstöður rannsóknanna var birt í IBIS, International journal og Avian science.

Auk þess er talið að mávarnir séu orðnir áræðnari þegar kemur að því að stela mat úr höndunum á fólki og jafnvel steikum af grillinu eins og dæmi eru um hér á landi.

Í kjölfar rannsóknanna bárust aðstandendum hennar fjöldi ábendinga víða að í heiminum um svipaða hegðun og að svo virðist sem hegðun mávanna sé orðin ágengari.

Gríðarleg aukning lífræns úrgangs og hæfileiki mávanna til að læra og aðlagast er meðal annars talin vera ástæða þess að mávum hefur fjölgað gríðarlega í heiminum á síðustu áratugum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.