Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Matur handa öllum
Skoðun 12. nóvember 2024

Matur handa öllum

Höfundur: Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi, fyrrum formaður Samtaka ungra bænda og situr í 2. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi.

Nýlega hafa Eyjólfur Ingvi, formaður sauðfjárdeildar BÍ og Margrét Ágústa, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, kallað eftir því að stjórnmálaöfl skýri sjónarmið sín í málefnum landbúnaðarins.

Jóna Björg Hlöðversdóttir

Það var athyglisvert að heyra málflutning þeirra því staðreyndin er sú að bændum á Íslandi hefur fækkað mikið, sérstaklega í mjólkurframleiðslu, þótt á sama tíma hafi orðið talsverð framleiðsluaukning.

Staða margra bænda er engu að síður þung. Íbúum í sveitum landsins hefur fækkað gríðarlega síðustu áratugi og rekstrarumhverfið er erfitt. Það getur beinlínis hamlað nýliðun ef fólk óttast að einangrast félagslega við það eitt að verða bændur.

Samtök ungra bænda unnu að því fyrir nýja búvörusamninga 2016 að koma inn ákvæðum um nýliðunarstuðning og forgangi nýliða að úthlutun greiðslumarks mjólkurframleiðslu. Frá þeim tíma hefur upphæð nýliðunarstuðningsins nánast staðið í stað og forgangur nýliða að greiðslumarki í mjólkurframleiðslu minnkaður úr 25% niður í 5%. Þó virðast málefni ungra bænda loksins vera að komast á almenna dagskrá eftir kröftugan baráttufund þeirra í Salnum í Kópavogi, fyrir réttu ári, Laun fyrir lífi, sem kjarnar svo sannarlega stöðu bænda, en sýnir líka stöðuna sem ungt fólk er í, að standa frammi fyrir gríðarstórum fjárfestingum til þess að vinna óheyrilega fyrir lífskjör sem eru ekki alltaf sambærileg við aðrar starfsstéttir í landinu. 

Það er bæði hægt að auka framleiðslu í landbúnaði umtalsvert ef pólitískur vilji er til staðar og bæta rekstrarumhverfi bænda mikið.

Ef spár um mannfjölda á Íslandi ganga eftir má reikna með að fæðuþörf þjóðarinnar muni aukast um þriðjung á næstu 30 árum og þeirri þörf verður tæplega mætt með innflutningi eingöngu og það er alls ekki hægt að stóla á hann, óvissa og óstöðugleiki síðustu missera hefur sýnt okkur það.

Það eru því hagsmunir allra sem búa hér að það umhverfi sem landbúnaðurinn býr við sé fyrirsjáanlegt og best væri að áætlun um það hvernig auka skuli matvælaframleiðslu til samræmis við áætlun um fólksfjölgun næstu áratugi.

Ríkja þarf sátt á milli neytenda og framleiðenda matvæla. Oft er vísað til Evrópu í samanburði en þar fara um 30% af útgjöldum Evrópusambandsins í CAP (common agriculture policy) og er rætt um sem sáttmála á milli neytenda og framleiðenda um matvæli, í sátt við umhverfið og þróttmikið dreifbýli. Oft er klifað á því í umræðunni að hérlendis sé stuðningur við landbúnað og matvælaframleiðslu meiri en í öðrum löndum, því fer þó fjarri. Hér á landi leggjum við áherslu á að framleiðsla matvæla sé í sátt við umhverfið, styðji við byggð um allt land og að allir hafi efni á nauðsynjavörum, t.d. með opinberri verðlagningu á sumum mjólkurvörum. Þegar erum við í fremstu röð í heilnæmi matvæla, velferð dýra en fjölmörg tækifæri felast í nýsköpun, tæknilausnum og notkun vistvænni orkugjafa. Matvælaframleiðsla á Íslandi mun aldrei verða samkeppnishæf í kapítalísku markaðshagkerfi þar sem eina markmiðið er lágt verð, án alls tillits til aðstæðna, kjara þeirra sem framleiða, lyfjanotkunar og hvaðan maturinn kemur.

Ég tek heilshugar undir þau sjónarmið sem Bændasamtök Íslands benda á og hvet aðra frambjóðendur og stjórnmálaöfl til að huga vel að því að við getum öll borið íslenskar landbúnaðarafurðir á borð eftir 30 ár!

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.