Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Matarsóun hvers íbúa 160 kíló
Fréttir 11. október 2023

Matarsóun hvers íbúa 160 kíló

Höfundur: Þórdís Anna Gylfadóttir

Talið er að matarsóun á Íslandi á árinu 2022 hafi verið rúmlega 60.000 tonn. Matarsóun hvers og eins íbúa landsins jafngildir 160 kílóum á ári, sem er þó undir Evrópumeðaltali.

Í frétt Umhverfisstofnunar má lesa um niðurstöður mælinga sem gerðar voru á matarsóun hérlendis en niðurstöðurnar voru birtar á alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna gegn matarsóun, þann 29. september sl.

Í fréttinni kemur fram að þetta er í fyrsta sinn sem mæld hefur verið matarsóun í allri virðiskeðju matvæla hérlendis eftir staðlaðri aðferðafræði Evrópusambandsins.

Á það við allt frá frumvinnslu matvæla til vinnslu, framleiðslu, dreifingu og smásölu matvæla, til veitingahúsa, matarþjónustu og heimilanna í landinu.

Sóun heimilanna dýrust

Sóunin er mest í frumframleiðslu, eða því sem nemur 29.000 tonnum, en minnsta sóunin á sér stað við vinnslu og framleiðslu, um 1.600 tonn. Heimili landsins sóa næstmest, eða tæplega 24.000 tonnum. Ekki er þó talið að matarsóun heimilanna hafi aukist milli ára heldur standi nokkuð í stað.

Vegna hækkandi vöruverðs matvæla er talið mikilvægast að ná tökum á sóun heimilanna því þar er talið að mestu verðmætin tapist. Auk þess eru umhverfisáhrifin sem hljótast af sóun heimilanna mest.

Markmið íslenskra stjórnvalda er að minnka matarsóun hérlendis um 30% fyrir árið 2025 og um 50% fyrir árið 2030. Markmiðin eru hluti af áætlun varðandi loftslagsmál sem og hluti af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn matarsóun. Árið 2021 var sett á laggirnar aðgerðaáætlun hérlendis sem ber heitið „Minni matarsóun“ og inniheldur 24 aðgerðir sem eiga að stuðla að því að þessum markmiðum verði náð.

Atvinnulífið taki virkari þátt

Þó nokkrar aðgerðir hafa nú þegar verið framkvæmdar eða eru í framkvæmd en aðgerðaáætlanirnar eru bæði á ábyrgð stjórnvalda og atvinnulífsins. Matvælaráðuneytið hefur falið Umhverfisstofnun að hefja tvær nýjar aðgerðir í baráttunni við matarsóun. Sú fyrri snýr að auknu samstarfi milli atvinnulífs og stjórnvalda um að ná niður matarsóun og virkja atvinnulífið til enn frekari þátttöku. Sú seinni snýr að því að auka menntun og fræðslu í landinu um matarsóun og hringrásarhagkerfið.

Í tilkynningu frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni ráðherra að íslensk stjórnvöld vilji vera í fararbroddi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og að lágmörkun matarsóunar sé mikilvægur liður í að ná þeim árangri.

Skylt efni: matarsóun

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.