Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Kjúklingur, naut og skyr í grillveisluna
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 21. júní 2019

Kjúklingur, naut og skyr í grillveisluna

Höfundur: Bjarni gunnar Kristinsson
Til að grillveisla í garðinum geti orðið góð þarf vini eða fjölskyldu – og að sjálfsögðu eitthvað gott á grillið. 
 
Það þarf ekki að vera neitt sérstakt tilefni – bara löngunin til að fagna vinskap, góðum mat og sumrinu. Vonandi gefast fleiri dagar en bara helgidagar til þess í sumar.
 
Kjúklingavængir í grillsósu
 
Hráefni
  • 2–3 pakkar kjúklingavængir
  • 200 ml grillsósa (BBQ) 
  • Kjúklingakrydd
  • Salt og pipar
Aðferð
Klippum kjúklingavængina í tvennt á brjóskinu og tökum fremsta hlutann (þann stutta og mjóa) frá og fleygjum honum. Röðum vængjunum í ofnskúffu, kryddum með kjúklingakryddi eða salti og pipar og hitum við 180 gráður í hálftíma. Bökum þá í ofnskúffunni  og hellum vökvanum af bakkanum í vaskinn. Mökum svo grillsósunni yfir vængina og setjum inn í ofninn í um tíu mínútur. Stillum ofninn á grill í lokin og látum grillsósuna karamellast á vængjunum. Líka gott á grillið.
 
Japönsk sósa
 
Hráefni
  • 100 ml sæt sojasósa
  • 50 ml ostrusósa
  • Safi og börkur af einni sítrónu
  • 10 ml sesamolía
Sósan er notuð til að pensla fisk eða grillkjöt fyrir framreiðslu, til dæmis þunnskorinn lax eða lúðu.  Eða allt grillkjötið. Prófið að dýfa kjúklingavængjum í hana.
 
Appelsínugrillsósa
  • 200 g appelsínumarmelaði
  • 50 ml sítrónusafi
  • 50 ml bolli sojasósa
  • 1 saxað hvítlauksrif
Blöndum öllu saman. Frábært að pensla kjúkling og grillkjöt með leginum.

 
Grillað nautafile með kartöflum
 
Hráefni
  • 800 g nautafile
  • 4  kartöflur (sætar eða venjulegar)
  • Grillsósa (BBQ)
  • Olía 
  • Salt og pipar
Aðferð
Skrælum og skerum sætu kartöflurnar í þunnar sneiðar og steikjum þær á pönnu eða á útigrilli á báðum hliðum þar til þær eru fulleldaðar. Penslum með matarolíu á meðan grillað er. Kryddum með salti og pipar. Grillum nautakjötið eftir smekk (fyrir millisteikt kjöt; tvær mínútur á hvorri hlið við snarpan hita og láta kjötið hvíla í um 10 mínútur áður en það er borið fram). Penslum kjötið með grillsósunni í lokin. 
 
Framreiðum með kartöflunni.
 
Skyrmiso
 
Hráefni
  • 3 stk. matarlímsblöð 
  • 300 ml mjólk 
  • 100 g sykur 
  • 170 g skyr 
  • 250 ml rjómi 
  • Hunang eða sykur á berin (má sleppa) 
  • Vanilla (má sleppa) 
Þetta frauð er einstaklega ferskt og fer vel með berjum, eða kaffi.Skraut
  • (Ber)
  • 300 ml kaffi   
  • 100 g svampbotn
  • 100 kakóduft
Aðferð
Leggjum matarlímið í bleyti í kalt vatn í smá stund. Setjum 100 ml af mjólkinni (og vanillu) og sykurinn í pott og hitum. Tökum pottinn af hitanum, setjum matarlímið út í og hrærum þar til það er bráðnað. Hrærum saman skyrið og afganginn af mjólkinni, þeytum rjómann og blöndum varlega saman við.
 
Blöndum svo saman við matarlímið og setjum í ílát eftir smekk og framreiðum með kaffibleyttum svampbotnum eða bara ferskum berjum.
 
Sigtum kakóduft yfir til skrauts.

4 myndir:

Pulsuspartí!
Matarkrókurinn 5. júní 2026

Pulsuspartí!

Ég er alinn upp í Kópavoginum og hef alla tíð sagt pulsa. Hef ekkert þar með yps...

Steikt grálúða, villigrjón, grænmetis- og pintóbaunaragú
Matarkrókurinn 26. maí 2026

Steikt grálúða, villigrjón, grænmetis- og pintóbaunaragú

Grálúða er verðmætasti flatfiskurinn við Íslandsstrendur, hún líkist lúðu sem vi...

Þrísaltaðar sumarkartöflur
Matarkrókurinn 8. maí 2026

Þrísaltaðar sumarkartöflur

Sumarið er komið, í það minnsta samkvæmt dagatalinu, og því ekki úr vegi að hugs...

Þrýstipottur og nautarif
Matarkrókurinn 21. apríl 2026

Þrýstipottur og nautarif

Þrýstipottur er afar handhægt tæki sem að mínu viti á heima í öllum eldhúsum og ...

Páskaeggjasalat
Matarkrókurinn 7. apríl 2026

Páskaeggjasalat

Páskarnir eru oft síðasta tækifæri ársins fyrir vetrarhasar. Skíðaferðir milli l...

Steiktur karfi með risotto, sveppum, vorlauk og ertum
Matarkrókurinn 14. mars 2026

Steiktur karfi með risotto, sveppum, vorlauk og ertum

Karfi er afbragðsgóður fiskur, þéttur í sér, heldur vel forminu eftir eldun og e...

Danskættað rúgbrauð
Matarkrókurinn 11. mars 2026

Danskættað rúgbrauð

Áður en við förum í uppskrift vikunnar, sem er rúgbrauð, þarf að árétta smávegis...

Yljandi súpur
Matarkrókurinn 26. janúar 2026

Yljandi súpur

Nú er sannarlega tíminn fyrir notalega pottrétti og súpur sem ylja okkur inn að ...