Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Bakaður fiskur með avókadó- og tartarsósu
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 2. maí 2018

Bakaður fiskur með avókadó- og tartarsósu

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Hér er uppskrift að bökuðum fiski með stökkri og kryddaðri áferð – með muldum fræjum. Hægt er að nota þorsk eða löngu til dæmis. Avócadosósan fullkomnar réttinn. 
 
Avókadó- og tartarsósa
  • 1 þroskaður avókadó
  • ¼ bolli (60 ml) majónes
  • 2 msk. (30 ml) saxað kóríander 
  • 1 tsk. (5 ml) rifinn hvítlaukur
  • 2 msk. (30 ml) ferskur limesafi
  • 1 til 2 msk. (15 til 30 ml) fínt saxað jalapeño eða chili
  • Salt
Bakaður fiskur
  • 1 msk. (25 g) graskersfræ
  • 1/8 tsk. (1 g)  chiliduft 
  • 4 tsk. (2 g) salt
  • 1/8  tsk. (1 g) pipar
  • 2 msk. (30 ml), um ólífuolía
  • 4 hvít fiskflök eða stykki, hver skammtur um 175 g
Aðferð
Taktu avókadókjötið úr með skeið, setjið í skál og blandið með gaffli þar til það hefur fengið rjómalagaða áferð með smáum bitum. Hrærið majónesinu saman við, kóríander, lime-berkinum, lime-safanum og einni matskeið jalapeño eða chili. Smakkaðu til og kryddaðu með salti og meira chili eftir smekk eða eins og þú vilt (en hafðu í huga að bragðið verður sterkara  þegar sósan fær að standa í kæli). Setjið plastfilmu yfir og kælið í að minnsta kosti 30 mínútur, eða í allt að einn dag.
 
Hitið ofninn í 230 gráður. Hitið ofnhelda pönnu.
 
Blandið graskersfræjum, chili-dufti, salti og pipar saman í litlu mortéli eða matvinnsluvél – og  hakkið saman, þó ekki það mikið að það verði að dufti. Bætið við einni matskeið (15 ml) af olíu og hrærið saman. Bættu meiri olíu við ef þess þarf.
 
Skolið fiskinn og þerrið. Setjið roðhliðina niður á pönnu. Kryddið með fræ- og kryddblöndunni.
Bakaðu í 7 til 10 mínútur, eða þar til flakið er fallega brúnt og fiskurinn eldaður. 
 
Framreiðið með bökuðu graskeri eða meðlæti að eigin vali.
 
 
Caprese-salat með Parmaskinku
Þegar sumarið er á leiðinni kemur Caprese-salat með Parmaskinku manni í sumarskapið.
  • 500 g mozzarella-ostur 
  • 3 stórir tómatar (má nota litla 
  • kokteiltómata)
  • 50 g Parmaskinka (skorið)
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 búnt ferskt basil 
  • 1/4 tsk. flögusalt
  • 1/8 tsk. svartur pipar
Þvoið tómatana og sneiðið í þykkar sneiðar. Þeir eru bestir skornir í að minnsta kosti 0,5 cm ca þykkar sneiðar. Þú getur fjarlægt kjarnann úr til að koma í veg fyrir að salatið verði með of mikinn vökva.
 
Losið vatnið af mozzarella­ostinum. Skerið mozzarella-ostinn í sneiðar með um það bil sömu þykkt og tómatarnir.
 
Raðið lagskipt tómötum og mozzarellaosti í sneiðar. Ef þú vilt getur þú einnig bætt við sneiðum af Parmaskinku. Það getur þó verið góð hugmynd að halda Parmaskinkunni aðskildri ef einhverjir gestir vilja ekki borða hráskinku.
 
Stráið ólífuolíu yfir tómatana, mozzarellaostinn og Parma­skinkuna. Rífið hluta af  ferskum basilblöðum ofan á fatið. Saltið og piprið eftir smekk.
 
Látið fatið eða diskinn standa í um það bil 15 mínútur áður en þið framreiðið. 
 
Rjómarækjupestópasta
Matarkrókurinn 27. október 2026

Rjómarækjupestópasta

Rækjur eru besta próteinið þegar hakk og spagettí-þreytan leggst yfir mannskapin...

Heitasta lifrarpylsan
Matarkrókurinn 21. október 2026

Heitasta lifrarpylsan

Nú með haustinu er ýmislegt sem á alltaf við og hefur verið óhvikult í fjölda ár...

Uppskeruhátíð og menningin, maður minn
Matarkrókurinn 2. október 2026

Uppskeruhátíð og menningin, maður minn

Mér yrði seint fyrirgefið af okkar kæru sauðfjárbændum ef kjötsúpan myndi gleyma...

Tvídýfa
Matarkrókurinn 17. september 2026

Tvídýfa

Stundum verður það bragðbesta til af slysni eða af hreinni tilviljun. Eins og ví...

Núðlur & nautarif
Matarkrókurinn 2. september 2026

Núðlur & nautarif

Fyrr á árinu fjallaði pistill minn um þrýstipotta og það hvernig ódýrari en seig...

Rækjuloka 2.0
Matarkrókurinn 20. ágúst 2026

Rækjuloka 2.0

Samloka með rækjusalati er ein af grunnstoðum X-kynslóðarinnar. Sér í lagi pökku...

Hann setur ekki grillið inn
Matarkrókurinn 7. ágúst 2026

Hann setur ekki grillið inn

Við neitum að víkja frá grillinu hvað sem lægðum og hæðum veðurfarsins líður. Fy...

Bændabrúnka
Matarkrókurinn 30. júní 2026

Bændabrúnka

Súkkulaði er einhver stórkostlegasta uppfinning mannsins. Hvernig bitur kakóbaun...