Sökkuð skel sett á línur.
Sökkuð skel sett á línur.
Mynd / Aðsend
Fréttir 20. apríl 2026

Matarkista Breiðafjarðar í Króksfjarðarnesi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

–Stuðningur við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu

Nýlega fékk nýsköpunarverkefnið Matarkista Breiðafjarðar 20 milljóna styrk úr úthlutun vegna byggðaáætlunar stjórnvalda. Styrkurinn var sá hæsti úr þessari úthlutun en það var eitt 14 verkefna sem fengu stuðning að þessu sinni.

Styrkþeginn er Fjórðungs- samband Vestfirðinga og felst verkefnið í uppbyggingu matvælaseturs í húsnæði gamla sláturhússins í Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi. Engin slík aðstaða er nú til staðar í sveitarfélaginu en óskir um slíka aðstöðu hafa ítrekað komið fram á íbúafundum á vegum sveitarfélagsins síðastliðin ár.

Kræklingur í Króksfjarðarnesi.

Matvælanýsköpun og atvinnuuppbygging

Samkvæmt Bergsveini Grétari Reynissyni, eiganda Nesskeljar, sem ræktaði og seldi krækling í Króksfjarðarnesi, þá mun með styrknum verða unnt að styðja við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu með framleiðslu og sölu beint frá býli. Auk Nesskeljar eru helstu framkvæmda- og samstarfsaðilarnir Icelandic Mussel Company, sem á öfluga vinnslulínu fyrir bláskel í húsnæðinu, Gálgaklettur sem er eigandi húsnæðisins og Fine Foods Islandica – sem er þegar með starfsemi tengda þararækt og vinnslu á Hólmavík.

Stefnt er að mikilli uppbyggingu á þjónustu, atvinnu og íbúðarbyggðar í Króksfjarðarnesi á næstu árum. Verkefni Þróunarfélags Króksfjarðarness hlaut einnig styrk úr byggðaáætluninni, 11 milljónir til að fjármagna félagið til markaðssetningar í Króksfjarðarnesi sem ákjósanlegum fjárfestingarkosti með samningum við uppbyggingaraðila. Verkefni matvælaseturs í Króksfjarðarnesi sé liður í þeirri uppbyggingu.

Verkefni matvælasetursins felst í lagfæringu og standsetningu húsnæðis gamla sláturhússins til þess að koma á fót matvælasetri sem uppfyllir að fullu kröfur matvælaeftirlits og samræmist gildandi gæðastöðlum. Setrið mun bjóða upp á vottaða framleiðsluaðstöðu, framleiðslu- tæki og vinnslurými fyrir bændur og frumkvöðla til þróunar og framleiðslu á frum- og lokaafurðum í atvinnuskyni, svo sem landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum.

Verðmætasköpun og tekjuaukning landbúnaðar- og sjávarafurða

Í gamla sláturhúsinu verður þannig komið upp fullbúinni og vottaðri vinnslu- og framleiðsluaðstöðu matvæla ásamt þurrkunarrými fyrir bændur, ræktendur skelfisks, þangs og þara auk annarra frumkvöðla og fyrirtækja sem vilja nýta staðbundnar auðlindir svæðisins til framleiðslu.

Með matvælasetrinu er skapaður grundvöllur að fjölbreyttari atvinnu- tækifærum og aukinni verðmæta- sköpun afurða með það markmið að byggja upp öflug fyrirtæki í matvælaiðnaði. Stefnt er að því að auka verðmætasköpun og tekjuaukningu framleiðenda landbúnaðar- og sjávarafurða úr héraði en svæðið er sem stendur fyrst og fremst frumframleiðslusvæði fjölbreyttra landbúnaðarafurða.

Pökkun á kræklingi í Króksfjarðarnesi.

Kræklingaræktun og vinnsla endurvakin

Að sögn Bergsveins búa samstarfs- aðilar verkefnisins yfir víðtækri áratuga reynslu og þekkingu á sviði matvælaframleiðslu kjötafurða og ræktun og framleiðslu á krækling, þangi og þara til sölu á mörkuðum. Þeirri reynslu fylgi umfangsmikil þekking á matvælaþróun, vinnsluað- ferðum og markaðssetningu matvælaafurða.

Aðrir aðilar hafi einnig staðfest áhuga sinn gagnvart verkefninu og lýst yfir vilja sínum til að koma að starfsemi matvælasetursins til þróunar landbúnaðarafurða og vinnslu á söfum, olíum og efnum úr plöntum og þangi.

Bergsveinn segir að vinnsla á kræklingi hafi verið starfrækt í hluta húsnæðisins allt til ársins 2021 og þar er nú þegar til staðar fullbúinn tækjabúnaður til vinnslu og pökkun á kræklingi. Þannig að einn liður verkefnis er að endurvekja vinnslu og framleiðslu á kræklingi í húsnæðinu. Telur hann að þegar framleiðslan er farin aftur af stað gæti hún vaxið hratt og farið í þúsund tonna framleiðslu á fimm árum með tilheyrandi fjölda starfa en talið er að allt að 12-15 bein störf skapist við hver þúsund tonn af ræktun og vinnslu á kræklingi.

Fjölþætt samstarf

Bergsveinn segir enn fremur að húsnæðið, aðstaðan og sú þekking sem verði þarna til staðar leggi jafnframt grunn að fjölþættu samstarfi framleiðenda og frum- kvöðla. Þar verði veittur víðtækur gagnkvæmur stuðningur sprota- fyrirtækja og annarra framleiðenda til nýsköpunar og atvinnuþróunar. Samrekstur framleiðenda muni þjóna hlutverki miðlægs kjarna sem mun ná til breiðari hóps neytenda og söluaðila. Auk afurðaþróunar og vinnslu mun matvælasetrið nýtast sem vettvangur fræðslu, samvinnu og ráðgjafar til frumkvöðla.

Með rekstri matvælasetursins í Króksfjarðarnesi er stefnt að því að atvinnuframboð aukist samhliða aukinni vinnslu og afurðaþróunar á kræklingi, þangi, þara og landbúnaðarafurðum.

Þann 28. mars hélt Matarkista Breiðafjarðar kynningarfundi á Hólmavík og í Króksfjarðarnesi, þar sem vekefnið var kynnt og áhugi fólks á verkefninu kannaður. Meira en 30 manns mættu á fundinn og rúmlega helmingur þeirra lýsti strax áhuga á að taka þátt í verkefninu.

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...