Þráinn frá Flagbjarnarholti stóð efstur til heiðursverðlauna og hlaut Sleipnisbikarinn.
Þráinn frá Flagbjarnarholti stóð efstur til heiðursverðlauna og hlaut Sleipnisbikarinn.
Á faglegum nótum 26. ágúst 2026

Magnað Landsmót 2026

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson
Þorvaldur Kristjánsson.

Landsmót hestamanna 2026 fór fram að Hólum í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí. Falleg sýning á gæðingi er eitt það magnaðasta sem heimurinn býður upp á. Þegar allt fer saman; létt og náið samspil manns og hests, mýkt og gegnumflæði, léttleiki og fjaðurmagn í spori og tign í reisingu og hreyfingum. M a r g a r listasýningar litu dagsins ljós á mótinu og einkenndist hestakosturinn af mikilli breidd og gæðum. Á hverju Landsmóti upplifum við framfarir í íslenskri hrossarækt en á þessu móti var ákveðið stökk tekið fram á við.

Það var 181 hross sem vann sér þátttökurétt á mótinu og alls voru sýnd 175 hross í kynbótadómi. Margar háar einkunnir litu dagsins ljós á sýningum fyrr um vorið og afar ánægjulegt var að sjá hvað hrossin stóðu vel við sitt á mótinu sjálfu og gott jafnvægi var í öllum aldursflokkum, en það lýsir vel styrk hestakostsins og góðu utanumhaldi sýnenda. Knapar sem sýndu hross í einstaklingssýningum voru 47 en það er aukning frá fyrri mótum og afar ánægjulegt og verðmætt hve margir ungir knapar hafa komið fram á síðastliðnum árum og eru að standa sig vel í sýningum kynbótahrossa.

Ef fjöldi feðra sem stóð að baki hrossa á kynbótabrautinni er skoðaður kemur í ljós að þeir voru alls 71 sem er drjúgur hópur. Þráinn frá Flagbjarnarholti átti flest afkvæmi á mótinu, eða 22 talsins. Þá átti Skýr frá Skálakoti 16 afkvæmi á mótinu, Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum ellefu afkvæmi, Kveikur frá Stangarlæk 1 níu afkvæmi, Draupnir frá Stuðlum sjö talsins og Adrían frá Garðshorni á Þelamörk sex afkvæmi.

Caption

Þegar meðaltöl einkunna eru skoðuð sést hvað kynbótahrossin voru almennt vel gerð hvað sköpulag varðar, en meðaleinkunn þeirra hrossa sem sýnd voru á mótinu var 8,47 sem er hreint magnað. Þá var meðaleinkunn sýndra hrossa fyrir hæfileika 8,60 og sjö hross fóru yfir 9,00 fyrir hæfileika sem er einmitt lýsandi fyrir þann sterka hestakost sem sýndur var á mótinu.

Meðaleinkunn fyrir tölt var 8,77 sem er afar sterkt og margar listasýningar á tölti glöddu augað. Þau Sparta frá Eystra-Fróðholti, Nótt frá Tjaldhólum, Aspar frá Hjarðartúni og Baldvin frá Margrétarhofi hlutu 10 fyrir tölt á mótinu. Einnig hlutu þau Sparta, Aspar og Seytla frá Íbishóli einkunnina 10 fyrir hægt tölt. Þá var meðaleinkunn fyrir brokk 8,50 og þeir Miðill frá Hrafnagili og Aspar frá Hjarðartúni hlutu 10 fyrir brokk. Um 19% hrossa á mótinu voru sýnd sem klárhross með tölti en heldur fleiri klárhross voru á þessu móti samanborið við það síðasta, þar sem ákveðinn hópur hrossa var nú valinn inn á mót á grundvelli aðaleinkunnar án skeiðs. Alls voru 76 hross sem hlutu 8,5 fyrir skeið eða hærra og því margt flugvakra hrossa á mótinu en Svartur frá Vöðlum hlaut 10 fyrir skeið. Þau Móna frá Þúfum og áðurnefndur Aspar hlutu 10 fyrir greitt stökk. Þá hlutu þau Hugsýn frá Ketilsstöðum, Sparta frá EystraFróðholti, Seytla frá Íbishóli og Miðill frá Hrafnagili einkunnina 10 fyrir samstarfsvilja enda frábær í þeim eiginleika og Álfadís frá Höskuldsstöðum hlaut 10 fyrir fet.

Afkvæmasýningar stóðhesta voru afar skemmtilegar og eru í raun eitt verðmætasta sýningaratriðið í hrossaræktinni; að sjá hvers konar hestgerð stóðhestarnir eru að gefa og heildaryfirbragð afkvæmahópanna. Þeir hestar sem hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á mótinu voru Þráinn frá Flagbjarnarholti og Adrían frá Garðshorni á Þelamörk. Þráinn stóð efstur og hlaut Sleipnisbikarinn sem er æðsta viðurkenning í íslenskri hrossarækt. Þá hlutu alls tíu hestar fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á mótinu. Það var Hannibal frá Þúfum sem hlaut Orrabikarinn en hann er veittur þeim stóðhesti sem efstur stendur. Í öðru sæti var Skarpur frá Kýrholti, í þriðja sæti Veigar frá Skipaskaga, í því fjórða var Pensill frá Hvolsvelli og í fimmta sæti var Útherji frá Blesastöðum 1A. Í sjötta sæti var Safír frá Mosfellsbæ og í því sjöunda Kjuði frá Dýrfinnustöðum, í áttunda sæti var Rauðskeggur frá Kjarnholtum 1, í níunda sæti Vökull frá Efri-Brú og í tíunda sæti var Dofri frá Sauðárkróki.

Ræktendum, eigendum og sýnendum þeirra hrossa sem komu fram á mótinu er óskað innilega til hamingju með frábæran árangur. Þá vil ég einnig fyrir hönd Ráðgjafarmiðstöðvarinnar þakka mótsnefndinni og starfsfólki Landmóts innilega fyrir afar gott samstarf. Landsmóti, afkvæmahestum mótsins og sýningarárinu í íslenskri hrossarækt verða gerð ítarlegri skil í næstu blöðum.

Höfundur er ráðunautur í hrossarækt hjá RML.

Skylt efni: Landsmót hestamanna

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...