Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Skjáskot úr matsáætlun Verkís þar sem horft er til norðausturs yfir jörðina Laxárbakka. Þar stendur til að reisa fimm stjörnu hótel og heilsulind með sundlaug.
Skjáskot úr matsáætlun Verkís þar sem horft er til norðausturs yfir jörðina Laxárbakka. Þar stendur til að reisa fimm stjörnu hótel og heilsulind með sundlaug.
Mynd / Verkís
Fréttir 9. febrúar 2026

Lúxushótel og þyrlupallur við Löngufjörur

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Fyrirtækið Laxárbakki Resort ehf. stefnir að stórtækri uppbyggingu á ferðaþjónustu í Eyja- og Miklaholtshreppi.

Eigendur Laxárbakka Resort samkvæmt fyrirtækjaskrá eru að stærstum hluta hjónin Ólafur Ólafsson athafnamaður og Ingibjörg Kristjánsdóttir.

Í matsáætlun sem unnin var af Verkís segir að áformin feli í sér byggingu á 45 herbergja fimm stjörnu hóteli í hæsta gæðaflokki með heilsumiðstöð, veitingastað, þjónustuog starfsmannahúsi og allt að 19 stakstæðum frístundahúsum. Þar að auki er gert ráð fyrir þyrlupalli þangað sem gera má ráð fyrir allt að fimm flugum á dag. Aðgangur að svæðinu verður almennt takmarkaður við gesti ferðaþjónustunnar.

Jörðin Laxárbakki er 645 hektarar og afmarkast af Laxá í norðri og Stakkhamarsósi í vestri sem er hluti af Löngufjörum. Í austri liggur jörðin að Miklaholti II og Blöndulæk í suðri. Áður var Laxárbakki landbúnaðarjörð en hefur verið í eyði síðan 1947. Gert er ráð fyrir að uppbygging fari af stað árið 2027 og fari fram í áföngum, en fyrsta og stærsta áfanganum verði lokið árið 2030.

Í áðurnefndri matsáætlun er tekið fram að framkvæmdin sé innan svæðis á C-hluta náttúruminjaskrár. Það er svæði þar sem eru náttúruminjar sem ástæða þykir að friðlýsa eða friða og er þar átt við Löngufjörur. Stór hluti framkvæmdasvæðisins sé innan mikilvægs fuglasvæðis samkvæmt gögnum Náttúrufræðistofnunar Íslands og er arnaróðal á svæðinu. Framkvæmdaraðili hyggist hins vegar leggja áherslu á að byggingar, vegir og bílastæði falli vel að landslagi og náttúru svæðisins. Eins verði rask á náttúru á framkvæmdatíma lágmarkað eins og kostur er. Áætlað er að ferðaþjónustan muni skapa 300 langtímastörf, en gert er ráð fyrir að starfsfólk hafi tímabundna búsetu í starfsmannahúsum.

Opið var fyrir athugasemdir um málið í skipulagsgátt til 14. janúar. Í ítarlegri umsögn Ungra umhverfissinna segir að framkvæmdirnar muni vera á kostnað mikilvægra vistkerfa og lífvera. Er þar hvatt til þess að beina uppbyggingu sem þessari að svæðum þar sem innviðir eru þegar til staðar fremur en að raska ósnortnum og alþjóðlega mikilvægum náttúrusvæðum.

Ólafur Ólafsson hefur nokkur tengsl við sunnanvert Snæfellsnes, en í frétt á vef RÚV árið 2019 kemur fram að hann eigi líka jarðirnar Borg, Eiðhús og Miðhraun sem eru skammt frá Laxárbakka. Hjónin Ólafur og Ingibjörg eiga fasteignafélagið Festi, þar sem hann er stjórnarformaður. Eins eiga þau meirihluta í Samskipum og Landflutningum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.