Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Örn Bergsson varar við uppkaupum erlendra einstaklinga og fyrirtækja á jöðrum í sveitum landsins.
Örn Bergsson varar við uppkaupum erlendra einstaklinga og fyrirtækja á jöðrum í sveitum landsins.
Mynd / HKr.
Fréttir 7. apríl 2017

Löggjafinn verður strax að setja skorður við uppkaupum útlendinga á heilu byggðarlögunum á Íslandi

Höfundur: HP
Örn Bergsson, formaður Landssambands landeigenda (LLÍ), var ómyrkur í máli gagnvart mögulegum uppkaupum erlendra einstaklinga eða fyrirtækja á fjölda jarða í sveitum landsins á nýlegum aðalfundi samtakanna í Reykjavík. 
 
Örn sagði meðal annars í skýrslu sinni til félagsmanna á fundinum:
„Kaup breska auðjöfursins á Grímsstöðum og nokkrum jörðum í Vopnafirði, þar sem hann að auki falast eftir hálfri sveit í Þistilfirði, vekur mig til umhugsunar. Er þetta það sem við viljum, erum við tilbúnir að selja landið? Heilu sveitirnar til erlendra auðjöfra? Leggja þær þess vegna í eyði? Eða að við verðum leiguliðar í eigin landi?“ 
 
Þarf að setja skorður
 
„Erlendir aðilar hafa gegnum árin fjárfest í jörðum og reist myndarlega hestabúgarða hér á landi. Það hefur verið bara jákvætt, ég geri enga athugasemd við það, en að auðjöfrar fari að kaupa upp heilar sveitir til að drottna yfir þeim og þá sérstaklega veiðihlunnindum hlýtur að vekja mann til umhugsunar.  Ég tel að þarna þurfi að setja skorður við áður en stefnir í óefni. 
 
Búseta og atvinna í sveitum landsins hlýtur í framtíðinni sem hingað til að byggja á því að bændur eigi ábúðarjarðir sínar.  Verði sveitirnar keyptar af erlendum auðmönnum munu þær eyðast til lengri tíma litið. Fram hjá þessu verður ekki litið og þótt skiptar skoðanir kunni að vera innan okkar samtaka um hvernig skuli bregðast við má öllum vera ljóst að höfðinu verður ekki stungið í sandinn. Hjáseta er einfaldlega ekki í boði.”  
 
Uppkaup munu eyða sveitunum
 
Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að uppkaup jarða í sveitum mun til lengri tíma eyða þeim. Það er almennt viðurkennt að það sé óaðskiljanlegur hluti sjálfstæðis ríkis að eignarréttur á landi og auðlindum hvíli almennt hjá þegnum þess.“
 
Stjórnvöld bregðist strax við hættunni
 
Örn sagði í samtali við Bændablaðið að loknum fundinum að afar brýnt væri að knýja stjórnvöld til að bregðast strax við hættunni á að heilu og hálfu byggðarlögin yrðu í eigu útlenskra auðmanna sem gætu farið sínu fram án þess að landsmenn gætu rönd við reist. Þetta ætti ekki einungis við um búskap og veiðiréttindin heldur væri mun meira í húfi, til að mynda vatnsréttindi, aðgangur að ferðamannastöðum, uppgræðsla og vernd náttúrunnar, svo fátt eitt væri nefnt. 
 
Vísaði Örn meðal annars til fordæmis Dana í þessu efni, sem sett hefðu ríkar skorður við eignarhaldi útlendinga á jarðnæði í Danmörku. Engan tíma mætti missa, eins og Vopnafjarðarmálið sýndi, yfirvöld yrðu strax að taka málið föstum tökum í samráði við hlutaðeigandi aðila. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.