Loftslags- og orkupólitík sem gagnast bændum
Mynd / Úr safni
Skoðun 13. apríl 2026

Loftslags- og orkupólitík sem gagnast bændum

Höfundur: Jóhann Páll Jóhansson
Jóhann Páll Jóhansson.

Frá því að ný ríkisstjórn tók við höfum við beitt Loftslags- og orkusjóði með markvissum hætti til þess að ýta undir framþróun og tæknivæðingu í landbúnaði. Um leið höfum við unnið að lagabreytingum til þess að tryggja fulla jöfnun dreifikostnaðar raforku í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar og verður frumvarp þess efnis lagt fyrir Alþingi í lok marsmánaðar. Með þessu mun raforkureikningur fjölda bænda um allt land lækka.

Síðasta vor réðumst við, í fyrsta skipti í áratugi, í skipulegan fjárfestingarstuðning við framleiðendur garðyrkjuafurða vegna kaupa á LED-ljósum og öðrum orkusparandi búnaði í gróðurhúsum. Samtals höfum við stutt garðyrkjubændur um 260 milljónir króna og samkvæmt mati Umhverfis- og orkustofnunar nemur raforkusparnaður af aðgerðunum 17,8 GWst sem jafngildir árlegri raforkunotkun 3.900 heimila.

Nú á öðru ári ríkisstjórnarinnar göngum við lengra og horfum til fleiri greina landbúnaðarins. Nýlega gerði ég breytingu á reglugerð um Loftslags- og orkusjóð og fól sjóðnum að annast úthlutun styrkja til loftslagsvænna tæknilausna í landbúnaði, meðal annars til þess að styðja við skilvirka áburðardreifingu með tilheyrandi sparnaði vegna áburðarkaupa. Ekki veitir af þessa dagana þegar horfur eru á hækkandi áburðarverði vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum.

Nú í mars úthlutaði Loftslags- og orkusjóður samtals 80 milljónum króna til 42 slíkra verkefna. Þetta eru kaup á GPS-stýrðum áburðardreifurum, bættri tækni fyrir lífrænan áburð, dráttarvélum, sáningarvélum og svona mætti áfram telja. Áætlaður samdráttur vegna þessarar loftslagsaðgerðar nemur 1.007 tonnum CO2-íg/ ári. Það samsvarar um 18% af allri losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar árið 2024. Ávinningurinn er fjölþættur. Hann felst ekki aðeins í minni losun gróðurhúsalofttegunda heldur líka í rekstrarsparnaði í búrekstri, betri meðferð á takmörkuðum auðlindum og minni vistkerfisröskun.

Tækifærin til orkusparnaðar, aukinnar sjálfbærni og samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda eru gríðarleg í íslenskum landbúnaði. Frá því ég tók við embætti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hef ég reynt að nýta öll þau verkfæri sem ég hef til þess að styðja bændur á þessari vegferð. Þetta er loftslags- og orkupólitík sem er góð fyrir bændur, góð fyrir hinar dreifðu byggðir á Íslandi og skilar sér í aukinni framleiðni, fæðuöryggi og verðmætasköpun.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...