Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Gucci haust '23 hér, fyrstu tvö módelin talin frá vinstri, svo uppblásið mynstur hönnuðar Burberry. Til hliðar má sjá hina margumræddu tösku Bottega Veneta, en sami hönnuður vann með það mynstur á árum áður. Svo má ekki gleyma staðalútbúnaði haustsins, gullstígvélunum.
Gucci haust '23 hér, fyrstu tvö módelin talin frá vinstri, svo uppblásið mynstur hönnuðar Burberry. Til hliðar má sjá hina margumræddu tösku Bottega Veneta, en sami hönnuður vann með það mynstur á árum áður. Svo má ekki gleyma staðalútbúnaði haustsins, gullstígvélunum.
Menning 21. mars 2023

Litríkt og lokkandi

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Svo virðist sem litagleðin allsráðandi í tískuheiminum, en meðal þess sem var á toppnum á tískuvikunni nýverið er bæði gult, bleikt, gull og loðið.

Nýyfirstaðin tísku­vika hausts 2023 (fyrir þá sem vilja hafa vaðið fyrir neðan sig) bauð upp á ýmis skemmtilegheit en frá Milan sýndi m.a. Gucci skærbleika loðfeldi, silfurdress og aðra gleði.

Tískuvikan í London var að sama skapi skrautleg og kom sígilda merkið Burberry skemmtilega á óvart. Löngum þekkt fyrir klassíska jarðartóna skörtuðu nú módel þess skærum bleikum, gulum og bláum litum enda hafði hönnuður línunnar, Daníel Lee, bæði farið offari í litatryllingi auk þess að hafa blásið upp hið köflótta staðalmynstur Burberry. Útkoman kom þó skemmtilega á óvart og ekki annað hægt að segja en litadýrðin sem nú tröllríður merkinu muni ekki fara framhjá neinum. Daníel Lee hefur áður hrist upp í hlutunum á svipaðan hátt, en einhverjir muna e.t.v. eftir tvisti hans á hönnun undir merkjum Bottega Veneta fyrir nokkrum árum. Bottega Veneta er vel þekkt, m.a. fyrir staðalhönnun sína á töskum, þar sem efnið er fléttað saman. Með það í huga útfærði Daníel fatnað þar sem fléttað mynstrið lék stærstan þátt í því sem gladdi augað. Hann leikur nú sama leik undir merkjum Burberry og er útkoman afar áhugaverð.

Hafa fleiri tískuveldi tekið þá ákvörðun að litadýrðin verði allsráðandi í haustlínum sínum og áhugavert að leita þar fanga. Að minnsta kosti geta þeir sem langþreyttir eru orðnir á drapplitum tónum, sem oft ráða ríkjum á þeim tíma árs, sett upp sparibrosið og látið sig hlakka til haustsins.

Í bland við litadýrðina er gull áberandi og hafa gullstígvél skotið upp kollinum vítt og breitt um lendur tískunnar nýverið. Það er því enginn maður með mönnum nema að verða sér úti um a.m.k. eitt slíkt par svona fyrir haustið, en gylltir fylgihlutir eru einnig, eða verða, hæstmóðins er nær dregur hausti. Nú er bara um að gera að fara að leita sér fanga fyrir þessa skemmtilegu árstíð sem fram undan er – grafa upp gyllta fylgi­ hluti og pússa gyllta skartið.

Athuga svo hvort einhvers staðar leynist ekki litríkir gervipelsar sem má bursta rykið af.

Annars fyrir þá sem hata liti þá má alltaf grípa í svart. Góðar stundir. 
 

Skylt efni: tískan

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.