Lífrænar áburðarvörur í reglugerð
Fréttir 10. september 2026

Lífrænar áburðarvörur í reglugerð

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Í drögum að reglugerð um áburðarvörur eru í fyrsta sinn settar heildstæðar reglur um lífrænar áburðarvörur. Markmið hennar er að tryggja gæði, öryggi og rekjanleika áburðarvara sem eru framleiddar eða markaðssettar á Íslandi.

Níu athugasemdir bárust í samráðsgátt stjórnvalda. Bændasamtökin telja að ekki sé nægilega skýrt tekið mið af sérstöðu fiskeldismykju frá lokuðu landeldi, sem fellur til í stýrðu og rekjanlegu framleiðslukerfi.

Óvissa um fiskeldismykju

Magn fiskeldismykju mun samkvæmt framleiðsluspám tífaldast á næstu fimm árum. Bænda- samtökin segja óvissu vera um stöðu fiskeldismykju gagnvart lífgasvinnslu.

Land og skógur telur óskýrt hvaða vinnsla þurfi að hafa farið fram svo fiskeldismykja teljist unnin. Það hafi áhrif á leyfi til notkunar, svo sem í beitarlandi.

Matís leggur áherslu á að skýrt verði hvaða kröfur gilda svo fiskeldismykja geti talist örugg og hæf til notkunar til dæmis í matjurtaræktun.

Ísfélagið í Þorlákshöfn, sem framleiðir áburð úr hliðarafurðum laxeldis, segir drögin útiloka fullvinnslu á sinkríkum hliðar- afurðum úr íslensku laxeldi.

Land og skógur gerir athugasemd við að fjallað sé sérstaklega um hámark kadmíums, en ekki fjallað um aðra þungmálma.

Auknar kröfur letjandi

Samband íslenskra sveitarfélaga telur skilning skorta á verðmæti lífrænna áburðarvara, auknar stjórnsýslukröfur séu letjandi fyrir minni jarðgerðarstöðvar og nýja aðila á markaði og einnig fyrir sveitarfélög.

Með lífrænum áburðarvörum er meðal annars átt við moltu, kjötmjöl, svína- og fiskeldismykju og lífkol, sem ekki hafa verið framleidd á Íslandi nema í tilraunaskyni.

Matís gerir athugasemd við ósamræmi á milli þess að óheimilt sé að nota fiskeldismykju til framleiðslu lífkola en að notkun sé heimil til framleiðslu áburðarvara til ræktunar matvæla. Í umsögn Lands og skógar segir engar líkur á að sóttkveikjur lifi af þann háa hita sem er notaður við framleiðslu lífkola. Reglugerðin mun koma í stað reglugerðar um áburð og jarðvegsbætandi efni frá 1995.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...