Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Félaginu Líforkuveri ehf. hefur verið fengið það hlutverk að vinna tillögu að útfærslu samræmds söfnunarkerfis dýraleifa í áhættuflokki eitt á landsvísu.
Félaginu Líforkuveri ehf. hefur verið fengið það hlutverk að vinna tillögu að útfærslu samræmds söfnunarkerfis dýraleifa í áhættuflokki eitt á landsvísu.
Mynd / smh
Líf og starf 26. ágúst 2024

Líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð

Höfundur: Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.

Það er ástæða til að fagna því að skriður sé kominn á innviðauppbyggingu förgunar aukaafurða dýra á Íslandi.

Söfnun og ráðstöfun dýraleifa í efsta áhættuflokki og opinbert eftirlit hefur í áraraðir verið ófullnægjandi. Þarna liggja mikilvægir hagsmunir undir varðandi matvælaöryggi, varnir gegn dýrasjúkdómum og umhverfisvernd. Að baki liggja viðskiptahagsmunir enda hefur söfnunarkerfi dýraleifa og ráðstöfun þeirra gengið á skjön við alþjóðlegar skuldbindingar gagnvart EES-samningnum sem er grundvallarstoð fyrir viðskipti með sjávarafurðir og önnur matvæli. Söfnunarkerfi dýrahræja og sláturúrgangs er undirstaða þess að uppfylla skuldbindingar Íslands um tilhlýðilega meðhöndlun og vinnslu aukaafurða dýra og tryggja öryggi manna og dýra hvað varðar smitsjúkdómavarnir.

Frumkvæði stjórnvalda

Aukaafurðir dýra eru sá hluti sem ekki er nýttur til matvælaframleiðslu. Slíkar afurðir falla til við veiðar, slátrun, frumframleiðslu matvæla sem og aðra matvælaframleiðslu, í náttúrunni, á sveitabæjum, í sjávarútvegi, við slátrun og vinnslu á mjólkurafurðum. Fólki og dýrum í nánd getur stafað áhætta af aukaafurðum, sem unnt væri að minnka með viðeigandi meðhöndlun.

Ríkið hefur haft frumkvæði að einu landsbundnu söfnunarkerfi fyrir dýrahræ og sláturúrgang, líkt og tíðkast í nágrannalöndum. Verkefnið fellur að hluta innan lögbundins hlutverks sveitarfélaga varðandi meðhöndlun úrgangs.

Sérstaklega mikilvægt er að koma á útfærslu á söfnunarkerfi dýraleifa á landsvísu í „áhættuflokki eitt“, og tryggja viðeigandi úrvinnslu eða förgun. Efninu verði fundinn farvegur með vinnslu þess á Dysnesi í Eyjafirði.

Verkefni líforkuvers

Félaginu Líforkuveri ehf. hefur verið fengið það hlutverk að vinna tillögu að útfærslu samræmds söfnunarkerfis dýraleifa í áhættu- flokki eitt á landsvísu. Að auki vinnur félagið að undirbúningi innviðauppbyggingar á Dysnesi svo hægt sé að vinna efnið með ábyrgum hætti. Það er í eigu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Akureyrar- bæjar, Hörgársveitar og Kjarnafæðis/Norðlenska. Félagið hefur leitað innlendrar og alþjóðlegrar ráðgjafar til að meta hvaða kröfum þyrfti að mæta hér á landi og hver kostnaðurinn yrði.

Samvinna á Dysnesi

Það er ljóst að ríkisvaldið þarf að tryggja fjármögnun söfnunarkerfis dýraleifa á landsvísu í áhættuflokki eitt. Vegna kostnaðar verður einungis ein slík úrvinnsla reist á Íslandi. Það skyldi vera á Dysnesi í Eyjafirði. Að þessu verkefni verða margir að koma eigi vel að vera. Sveitarfélög, afurðastöðvar og atvinnurekendur í landbúnaði þurfa hér að taka virkan þátt.

Ástæða er að fylgjast með uppgangi félagsins Líforkuvers við Dysnes. Undir liggja miklir hagsmunir matvælaiðnaðar auk þess sem verkefnið er í anda nýrra tíma umhverfisverndar.

Gengi verkefnið eftir yrði það mikil lyftistöng fyrir mikla uppbyggingu hafnarinnviða sem stefnt er að á Dysnesi. Því metnaðarfulla verkefni væri loks hrint af stað. Það væri vel fyrir athafnalíf byggðar við Eyjafjörð. Það yrði gæfuspor fyrir Ísland.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.