Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Gaman var að sjá að allir landsliðsmenn Íslands í opnum flokki og fjölmargir aðrir ofursterkir spilarar tóku þátt í Kjördæmamótinu á Flúðum á dögunum. Hér eigast þeir Hermann Friðriksson, Magnús E. Magnússon, Rúnar Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson við.
Gaman var að sjá að allir landsliðsmenn Íslands í opnum flokki og fjölmargir aðrir ofursterkir spilarar tóku þátt í Kjördæmamótinu á Flúðum á dögunum. Hér eigast þeir Hermann Friðriksson, Magnús E. Magnússon, Rúnar Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson við.
Mynd / BÞ
Líf og starf 9. júní 2026

Vinningsleið í vondri legu

Höfundur: Björn Þorláksson
Björn Þorláksson.

Þeir voru nokkuð niðurlútir sumir AVspilararnir sem fóru niður á 6 gröndum í spili 17 í 6. umferð. 33 hápunktar og fimmlitur! Nokkrir þóttust óheppnir og nefndu að laufkóngurinn hefði ekki legið fyrir svíningu, hjartað brotnaði ekki 3-3 og lífliturinn tígull, hefði brotnað 4-1. Allt rétt. En samt var leið.

Norður gefur, enginn á hættu. Sagnir voru stuttar og laggóðar við borð umsjónarmanns. Austur opnaði á 14-16 punkta grandi og vetur meldaði sex grönd. 

Út kom spaðatía, sem sagnhafi drap á ás í blindum og sá gosann birtast. Sagnhafi tók tvo efstu í tígli, sá leguna, spilaði litlum tígli, norður drap á gosa og skipti yfir í lítið lauf. Sagnhafi drap á ás og suður setti lítið sem gat verið kall. Nú tók sagnhafi alla tíglana, svo spaðana og þegar hjartað lá eins og það lá, fór spilið einn niður. Í samanburðinum voru spámenn snöggir að benda austri á að ef sagnhafi tímasetur spil sitt með öðrum hætti en hann gerði og tekur hjörtun áður en hann spilar tíglum til enda lendir suður í kastþröng í svörtu litunum.

Sumarbridds farið af stað

Spilað verður í Síðumúlanum, höfuðstöðvum Bridgesambands Íslands, alla mánudaga og miðvikudaga í sumar og eru nýir spilarar ekki síst hvattir til að mæta. Vel er tekið á móti nýliðum og spilurum sem ekki búa yfir mikilli þátttöku. Jafnvel er möguleiki á að redda makker ef fólk mætir stakt, gott væri að láta vita af því með fyrirvara, t.d. á Bridgespjallinu.

Umsjón: Björn Þorláksson

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...