Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Aldrei hafa fleiri íslenskir briddsarar farið á erlent stórmót en á Madeira-mótið sem nú er að hefjast á portúgölsku blómaeyjunni í suðri. Á annað hundrað Íslendinga keppa á mótinu, veðrið leikur við gesti og mættu sumir Íslendinganna löngu fyrir mót og tóku slag í sólinni.
Aldrei hafa fleiri íslenskir briddsarar farið á erlent stórmót en á Madeira-mótið sem nú er að hefjast á portúgölsku blómaeyjunni í suðri. Á annað hundrað Íslendinga keppa á mótinu, veðrið leikur við gesti og mættu sumir Íslendinganna löngu fyrir mót og tóku slag í sólinni.
Líf og starf 19. nóvember 2024

Róbóti í stuði

Höfundur: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com

Róbótar Internetsins verða betri og betri í bridds. Þeir eru reyndar oft slakir í vörninni og meldingar ganga oft svona og svona, einkum ef andstæðingar melda.

En útspil þróaðri tegunda eru oft góð og í úrspilinu eru róbótar ansi sleipir. Fyrir kemur að þróaðri róbótar á Bridgebase Online slái mörgum mannsheilanum við er kemur að rökvísi, en veltur á aðstæðum hverju sinni.

Fyrir skemmstu tók umsjónarmaður þátt í briddsmóti á Internetinu þar sem menn og róbótar spiluðu saman. Þá kom eftirfarandi hönd upp:

Sagnir okkar Botta enduðu í 6 spöðum. Útspil tíguldrottning og ég hallaði mér aftur í stólnum og fór yfir möguleikana. Hvernig myndi ég spila í tvímenningi þar sem yfirslagurinn skiptir öllu? Hvernig myndi lesandinn spila? Hver er besta leiðin að jafnvel 13 slögum?

Róbótinn tók sér ekki langa „umhugsun“ hann teiknaði upp að tígulgosinn væri í fylgd með útspilinu. Gott gisk. Drap og spilaði trompi þrisvar, svínaði svo tígli og það gekk vel. Þegar hann vissi af fjórum tíglum hjá útspilaranum, fannst honum líklegra að laufsvíning gengi vegna þess að færri lauf voru þá til skiptanna miðað við aðrar upplýsingar róbótanum á vinstri hönd. Róbótinn kastaði því laufi í fjórða fría tígulinn en ekki hjarta. Vel heppnuð trompsvíning var næst á dagskrá. Innkoma á hjartaás, 13 slagir. Hvað fékkst þú marga slagi?

Briddsarar ræða hvort ofurtölvur muni um síðir sigra mannsheilann í briddsinum. Þar sem briddsíþróttin er leikur mannlegra mistaka og snýst ekki bara um rök eins og skákin, telja flestir ólíklegt að tæknin veiti mannsheilanum verulega samkeppni í þessum leik mannlífsins.

En hvað gott með öðru.

Sjómannadagurinn
Fréttir 3. júní 2026

Sjómannadagurinn

Á þessum árstíma, fara viðburðir um land allt að skjóta upp kollinum og kennir m...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 1. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn við vísnagátunni úr 10. tölublaði Bændablaðsins.

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 1. júní 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á í...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 1. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur hvernig skapandi hugmyndir hans fá nú loksins byr undir báða ...

Kvartbuxur – tímalaus klassi
Líf og starf 27. maí 2026

Kvartbuxur – tímalaus klassi

Eftir nokkra útlegð í tísku- heiminum hafa Capribuxurnar, þessi dæmigerði einken...

Landsmótið í Ólafsvík
Líf og starf 26. maí 2026

Landsmótið í Ólafsvík

Landsmótið í skólaskák fór fram í Ólafsvík í ár. Þetta er merkilegt landsmót  fy...

Vísnahornið
Líf og starf 26. maí 2026

Vísnahornið

Jósep Húnfjörð var vel þekktur á sinni tíð, hér lýsir hann vori: Anga viðir, br...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 26. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni úr 9. tbl. Bændablaðisins 2026.