Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Amin Tabatabaei, sigurvegari mótsins.
Amin Tabatabaei, sigurvegari mótsins.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson
Gauti Páll Jónsson.

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllum líkindum stærsta alþjóðlega skákmót í heimi, þar sem teflt er í einum flokki, sem ekki er skipt eftir stigum. Íraninn Amin Tabatabaei vann glæsilegan sigur með átta vinninga úr níu skákum, og það eftir að hafa unnið sjö fyrstu. Vignir Vatnar stóð sig best Íslendinga. Í stað hefðbundinnar frásagnar um mótið ætla ég að tæpa dálítið á fyrirkomulagi og hvernig það getur komið út hjá hinum ýmsu skákmönnum. 

Sé skákmaður með of fá skákstig miðað við styrkleika, þá er Reykjavíkurskákmótið líklega besta skákmót sem hægt er að velja. Stig Kínverjans Liu Bei voru fyrir mót 1963 en eftir mót var árangur hans upp á 2480. Þessu fylgdi áfangi að alþjóðlegum meistaratitli! Hann er einfaldlega mjög sterkur skákmaður og hélt dampi gegn miklu stigahærri. Þá verður mótið frábært.

Hvernig er mótið fyrir skákmann í framför, sem er kannski u.þ.b. 100 stigum sterkari en stigin segja? Ég tek Guðrúnu Fanneyju Briem sem dæmi, unga landsliðskonu með 1993 stig, en hefur oft sýnt styrkleika upp á allavega 2100. Mótið hennar var eiginlega að öllu leyti þannig að hún vann skákmenn 300 stigum lægri en hún sjálf, og tapaði gegn skákmönnum 300 stigum hærri en hún sjálf. Hvernig er þetta gott mót fyrir Guðrúnu? Jú, kannski þarf einfaldlega að ætlast til þess að hún taki punkta af mönnum 300 stigum hærri eins fljótt í mótinu og hægt er, en gangi það ekki eftir, verður niðurstaðan svekkjandi, nánast tilgangslítil. Markús Orri Óskarsson (2049 stig) er í svipuðum sporum og Guðrún en náði þó vinningum gegn stigahærri mönnum. Eftir sigur gegn alþjóðlegum meistara og jafntefli gegn öðrum, parast hann samt sem áður í sjöttu og áttundu umferð gegn skákmönnum tæpum 300 stigum lægri. Þannig að jafnvel þó allt gangi upp þarf að vinna sig aftur inn í mótið.

Niðurstaðan er að mótið er frábært fyrir suma og gott fyrir marga ef allt gengur upp. Ef illa gengur er hins vegar mjög erfitt að vinna sig aftur upp. Það breytir því ekki að mótið er stórskemmtilegt, og kannski er óþarfi að breyta fyrirkomulaginu ef önnur smærri alþjóðleg mót bætast við flóruna meðan risinn Reykjavík Open stendur eftir í óbreyttri mynd.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband. 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...