Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Aðalsteinn Jörgensen, fyrrum heimsmeistari í bridds, átti gott mót með makker sínum, Birki Jóni Jónssyni, í sveit InfoCapital í undankeppni Íslandsmótsins í bridds. Hlynur Garðarsson í andstöðunni.
Aðalsteinn Jörgensen, fyrrum heimsmeistari í bridds, átti gott mót með makker sínum, Birki Jóni Jónssyni, í sveit InfoCapital í undankeppni Íslandsmótsins í bridds. Hlynur Garðarsson í andstöðunni.
Mynd / Björn Þorláksson
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Höfundur: Björn Þorláksson
Björn Þorláksson.

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og vann Infocapital mótið með fáheyrðum yfirburðum. 28 sveitir víða af landinu börðust um 12 sæti í úrslitum.

Í öðru sæti endaði sveit Doktorsins og í þriðja sæti var sveit Karls Sigurhjartarsonar. Fjórar landsbyggðasveitir komust í úrslit sem hlýtur að vera lesendum Bændablaðsins ánægjuefni. 

Spilaðar voru 12 umferðir eftir Monrad kerfi og tókst mótið vel í hvívetna undir styrkri leiðsögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Bridgesambands Íslands.

Í spili dagsins úr mótinu gekk mikið á. Fimm pör fengu að spila 5 spaða doblaða og unnu sinn samning án vandkvæða. Fjögur pör melduðu 6 spaða yfir 6 tíglum og gáfu aðeins út 100 eftir dobl sem er lítið þegar hálfslemma í hina áttina á hættunni er í boði. 13 pör fengu 3 eða 4 grönd með sterku spilin. 9 pör spiluðu draumasamninginn, 6 tígla, sem gaf 407 stig í butler. Eitt par meldaði 6 grönd yfir 6 spaða fórn andstæðinganna og fékk úr hjartaás sem gaf spilið!

Þeir sem nota Tartan eða sagnvenju sem Íslendingar kalla Jón og Símon, þar sem hálitarsögn lofar einnig láglit, voru með forskot. Þar sem suður gat vakið á 2 spöðum fór alla jafna vel hjá NS. 

19 impar runnu til í þessu eina spili í einni viðureigninni milli SFG og Akureyrar- apóteks. 1370 plús 650 – ekki á hverjum degi sem spilaguðirnir útdeila hendi þar sem 11 slagir eru í aðra áttina og 12 í hina!

Sagnir þar sem Gunnlaugur Karlsson, Kjartan Ingvarsson sátu NS voru þannig að Gunnlaugur opnaði á tveimur spöðum, dobl, 4 spaðar hjá Kjartani. Eftir annað dobl vesturs meldaði Kjartan 5 spaða og eftir einn eitt doblið dóu sagnir út.

Umsjón: Björn Þorláksson

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...