Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Liður í heildstæðri endur­skoðun löggjafar um jarðir og fasteignir
Fréttaskýring 15. júní 2021

Liður í heildstæðri endur­skoðun löggjafar um jarðir og fasteignir

Höfundur: Guðrún Vaka Steingrímsdóttir

Hinn 18. maí síðastliðinn voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á jarðalögum nr. 81/2004 og taka þau gildi 1. júlí næstkomandi. Breytingarnar eru liður í heildstæðri endur­skoðun löggjafar um jarðir og aðrar fasteignir í íslensk­um rétti og voru undir­búin á vettvangi sérstaks stýrihóps um heildstæða löggjöf varðandi jarðir og aðrar fasteignir.

Guðrún Vaka Steingrímsdóttier, lögfræðingur Bændasamtaka Íslands.

Í störfum sínum beindi stýri­hópurinn sjónum sínum sérstaklega að ákvarðanatöku um jarðir í dreifðri eigu og hvort auka megi vægi landbúnaðar í aðalskipulagsáætlunum. Ekki var lagt til að hreyfa við ákvæðum jarðalaga um fyrirsvar jarða í sameign að sinni en drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um eignarráð og nýtingu fasteigna voru birt í Samráðsgátt í lok mars síðastliðinn. Þar eru m.a. lögð til ítarlegri ákvæði um sameign á landi í óskiptri sérstakri sameign, þ.á m. um fyrirsvar og ákvörðunartöku. Frumvarpið var ekki lagt fram á Alþingi fyrir þinglok.

Breytingarnar sem taka gildi 1. júlí snúa helst að einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands og upplýsingaskyldu er snýr að eignarhaldi lögaðila undir erlendum yfirráðum. Þeim er ætlað að einfalda regluverk og stjórnsýslu jarðamála til samræmis við áherslur í sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kom fram að átak yrði gert í einföldun regluverks.

Aukið sjálfstæði sveitarfélaga við ákvarðanatöku um breytta landnotkun

Felld verður brott skylda ráð­herra landbúnaðarmála til að samþykkja breytta landnotkun á landbúnaðarsvæðum og á sama tíma er leitast við að styrkja sveitarfélög við að takast á við slíkar breytingar þannig að möguleikar þeirra á að gæta að hagsmunum landbúnaðar við skipulagsgerð aukast. Við skipulagsgerð samkvæmt skipulagslögum þar sem ráðgerðar eru breytingar sem fela í sér lausn lands úr landbúnaðarnotum, verði þeim m.a. skylt að líta til þess hvort aðrir valkostir staðsetningar komi til greina fyrir fyrirhugaða nýtingu sem hentar síður til landbúnaðarnota og þá sérstaklega jarðræktar. Í þeim efnum getur haft þýðingu hvernig áformuð nýting samræmist skilgreiningu lands samkvæmt flokkun landbúnaðarlands en leiðbeiningar um slíka notkun voru síðast gefnar út í mars síðastliðinn af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Einnig beri sveitarfélögum að líta til áhrifa breyttrar landnotkunar á aðlæg landbúnaðarsvæði og hvort áformin girði fyrir möguleg búrekstrarafnot síðar meir. Landbúnaðarlegra sjónarmiða skuli þar með gætt á tilhlýðilegan hátt en gangi þó ekki endilega framar öðrum við heildstætt mat. Með lögunum er einnig lögfest skylda sveitarfélaga til að flokka land með tilliti til ræktunarmöguleika.

Þá er enn fremur felld brott skylda ráðherra til að staðfesta skipti á landi sem fellur undir gildissvið jarðalaga. Þess í stað er mælt fyrir um skyldu til að gæta hagsmuna landbúnaðar betur við skipti á landi. Það felur í sér að við beiðni um skiptingu eða sameiningu lands á landbúnaðarsvæðum er sveitarstjórn heimilt að krefjast þess að umsækjandi geri grein fyrir áhrifum skiptingar á búrekstrarskilyrði. Landskipti geta enda varðað miklu um búrekstrarskilyrði, framtíð búsetu og búsetulandslag og miðar breytingin að því að sveitarfélög horfi til þess hvort skipting geti haft neikvæð áhrif á framleiðslugetu jarðar eða landbúnað í sveitarfélaginu í heild sem gangi gegn markmiðum skipulagsáætlunar. Ýmis sveitarfélög hafa þegar sett sér reglur um viðmið þess hvenær fallist verður á skiptingu lands og er breytingunum ætlað að styrkja þá framkvæmd.

Forkaupsréttur ábúenda styrktur

Samkvæmt núgildandi jarða­lögum nr. 81/2004 hafa ábúendur forkaupsrétt að ábýlisjörðum sínum sem hafa haft ábúðarrétt í sjö ár eða lengri tíma. Með breytingum á lögunum er forkaupsréttur ábúenda styrktur þannig að hann verður virkur við sölu eða aðra ráðstöfun eða yfirfærslu á beinum eignarrétti, að hluta eða heild, yfir jörð sem háð er forkaupsrétti. Forkaupsréttur verði einnig virkur við eigandaskipti að a.m.k. 1/3 eignarhlutdeild í lögaðila sem á jörð sem háð er forkaupsrétti. Sama gildir þá ef breyting verður á yfirráðum yfir lögaðila á annan hátt. Við meðferð málsins kom til álita hvort fella skyldi forkaupsrétt ábúenda að ábýlisjörðum sínum úr gildi en þess í stað var ákveðið að lagfæra fyrirmæli um skilyrði þess að forkaupsrétti verði beitt þannig að tryggja mætti að hans verði gætt þegar eigendaskipti verða að lögaðilum sem eiga jarðir enda er slíkt nú algengara en áður.

Skylt efni: Jarðalög, jarðir

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.