Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Launagreiðslugeta sauðfjárbúa er óásættanleg
Mynd / Jón Eiríksson
Af vettvangi Bændasamtakana 5. maí 2023

Launagreiðslugeta sauðfjárbúa er óásættanleg

Höfundur: Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda.

Árið 2022 stóð íslenskur landbúnaður frammi fyrir miklum áskorunum vegna gífurlegrar hækkunar á framleiðslukostnaði.

Trausti Hjálmarsson.

Þessi staða var ekkert einsdæmi á Íslandi. Stjórnvöld hér á landi, líkt og um allan heim, komu til móts við bændur með auknum stuðningi. Enda hverri sjálfstæðri þjóð mikilvægt að standa vörð um matvælaframleiðslu og þau störf sem henni tengjast.

Þrátt fyrir aðgerðir á síðasta ári er því miður ekki hægt að segja að betur líti út með rekstur sauðfjárbúa árið 2023. Viðbótarstuðningur stjórnvalda á síðasta ári var einskiptis aðgerð. Á síðasta ári hækkaði afurðaverð til bænda um 35%. Sú hækkun gerði lítið annað en að leiðrétta, fordæmalaust hrun afurðaverðs á árunum 2016-2017. Verðhækkanir á helstu rekstrarvörum hafa aðeins gengið til baka að litlu leyti. Í sumum tilvikum hækkað enn frekar. Það er því áfram vert að hafa áhyggjur af afkomu þeirra sem stunda sauðfjárbúskap. Frá haustinu 2016 hefur framleiðsla á dilkakjöti dregist saman um 20%. Farið úr 9.283 tonn niður í 7.408 tonn. Verði ekki brugðist við mun enn aukast á samdrátt í greininni.

Í greiningu Bændasamtaka Íslands á afkomu sauðfjárbænda árið 2023 er, að óbreyttu, gert ráð fyrir því að það vanti um 400-600 kr/kg dilkakjöts í tekjur til að reksturinn skili ásættanlegri afkomu og standi undir eðlilegri launagreiðslugetu.

Gert er ráð fyrir því að rekstrarkostnaður sauðfjárbúa hækki um 5% milli ára. Munar þar mestu um hækkun fjármagnskostnaðar og aðkeypt vinnuafl. Stórir rekstrarliðir eins og áburður, fóður, olía og plast eru nær óbreyttir milli ára.

Sauðfjárrækt á Íslandi byggir, líkt og aðrar búgreinar, á Búvörulögum sem ramma inn það samkomulag sem stjórnvöld og bændur hafa gert um starfsskilyrði landbúnaðarins. Markmið þess samkomulag er að tryggja innlenda framleiðslu á landbúnaðarvörum og um leið skapa bændum viðunandi afkomu. Nú er í gangi endurskoðun á búvörusamningum. Í þeirri vinnu verður að horfa til þess hvort þessum grunnmarkmiðum Búvörulega sé náð.

Það felast mikil verðmæti í þeirri þekkingu og framleiðslugetu sem sauðfjárræktin býr yfir. Með samdrætti í greininni tapast þessi verðmæti. Á sama tíma og unnið er að því að skapa sauðfjárrækt viðunandi rekstrarskilyrði má ekki gleyma að kröfur samfélagsins til landbúnaðar hafa breyst. Verkefni landbúnaðarins snýr ekki eingöngu að framleiðslu hefðbundinna afurða. Landbúnaðurinn gegnir einnig mikilvægu hlutverki á sviði umhverfis-, loftslags- og byggðamála. Öllum þessum hlut- verkum þarf landbúnaðurinn að sinna. En á sama tíma verður að tryggja þeim sem stunda landbúnað afkomu í samræmi við aðrar stéttir þessa lands. Þar þarf að byrja og þar liggur grunnur að farsælli lausn allra verkefna landbúnaðarins

Tryggjum bændum sanngjörn laun fyrir sín störf.

Skylt efni: Afkoma sauðfjárbúa

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.