Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Langar að flytja lögheimilið mitt í tjaldvagninn
Fólkið sem erfir landið 21. nóvember 2016

Langar að flytja lögheimilið mitt í tjaldvagninn

Hestar eru uppáhaldsdýrin hans  Ernis Daða. Þegar kemur að hljómsveitum er það Amabadama. 
 
Nafn: Ernir Daði Arnberg Sigurðsson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Borgarbyggð.
Skóli: Grunnskóli Borgarfjarðar Hvanneyrardeild.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Þegar Solla kennari les ,,Varið ykkur á Valahelli“.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestar, enda fer ég oft í reiðtúr með pabba og afa.
Uppáhaldsmatur: Lax.
Uppáhaldshljómsveit: Amadabama.
Uppáhaldskvikmynd: Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum. Gói er uppáhaldsleikarinn minn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var að labba með mömmu í leikskólann á nærbolnum og ég var fjögurra ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég spila á gítar, æfi sund og dans og er að fara að æfa körfubolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Leikari. Ég ákvað það þegar ég var tveggja ára!
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég giftist bekkjarsystur minni í 1. bekk og við héldum brúðkaupsveislu með gestum og fengum flottar brúðkaupsgjafir.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ég fór í tjaldvagninn með fjölskyldunni minni sem ég elska. Mig langar að flytja lögheimilið mitt í tjaldvagninn.
 
Næst » Ernir Daði skorar á Óliver Orra Bergmann, vin sinn úr Garðabænum. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.