Helen Hekla, Tauras, Gauti Páll, Dagur, Jón Fenrir.
Helen Hekla, Tauras, Gauti Páll, Dagur, Jón Fenrir.
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins í skólaskák sem fram fór í Armeníu. 27 skólar tóku þátt frá 25 þjóðlöndum. Hvaleyrarskóli tók þátt í sama móti í fyrra en þá voru ekki heimsálfuundanrásir. Mótið hefur stækkað mikið og er því haldið í fleiri flokkum. Aðalstyrktaraðili mótsins er Freedom Holding sem er í eigu nýkjörins forseta alþjóðaskáksambandsins, Timur Turlov.

Í sveit Vesturbæjarskóla voru Dagur Sverrisson, Jón Fenrir Ragnarsson, Tauras Nareika og Helen Hekla Priet Eysteinsdóttir. Greinarhöfundur fór með sem þjálfari ásamt foreldrum. Dagskrá mótsins var nokkuð strembin og undirbúningur fór fram fyrir skákir og yfirferð skáka að þeim loknum. Tauras stóð sig best og fékk 4½ vinning úr sjö skákum. Mótið var vel skipulagt, og mikið um hliðarviðburði fyrir krakkana, til dæmis í kennslu í að vefa og baka brauð. Einn helsti kosturinn við mótið er að það fór að öllu leyti fram, og allir gistu, á hóteli langt uppi í fjallshlíð í armenskri sveit. Það gerði það að verkum að fátt annað komst að en skákin. Við þessar aðstæður hugsaði ég að landslið Íslands hefði gott af því að fara eitthvert út í sveit og sinna skákinni í skipulögðum æfingabúðum.

Á stöðumyndinni sem hér fylgir lék Tauras Rxg5! sem gefur unnið tafl. Kóngsstaða svarts opnast enn frekar og margar hótanir eru í loftinu.

En talandi um landsliðin, þau luku á dögunum keppni á Ólympíumótinu. Niðurstaðan var frekar svekkjandi lokasprettur, sem breyttist eiginlega í göngutúr. Mótið endaði með stóru tapi gegn Danmörku og jafntefli gegn Albaníu í opnum flokki, og of stóru tapi gegn Litáen í lokaumferðinni í kvennaflokki. Góðu augnablikin voru þó mörg, hjá báðum liðum, og má nefna að allar landsliðskonurnar hækkuðu á stigum. Það verður spennandi að sjá árangurinn á næstu árum, með skýrri framtíðarsýn og leikáætlun fyrir bæði lið til að hámarka árangur.

Haldir þú nú á nýprentuðu Bændablaði, þá fer fyrsta umferð úrvaldsdeildar Íslandsmóts skákfélaga fram í kvöld í sal TR, Faxafeni 12. Mótið heldur áfram í MH þar sem 1.–4. deild bætast við. Greinarhöfundur mun tefla fyrir B-sveit Taflfélags Reykjavíkur eins og undanfarin ár.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...