Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum ásamt þálfurum.
Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum ásamt þálfurum.
Fréttir 20. mars 2019

Landslið Íslands í hestaíþróttum valið sem keppir á HM

Landssamband hestamannafélaga (LH) kynnti á blaðamannafundi í Bláa Lóninu undir lok febrúar landsliðshóp LH í hestaíþróttum. Þetta er fyrsta skrefið í breyttum áherslum LH í afreksmálum. 
 
Hingað til hefur landslið Íslands á HM verið valið út frá svokölluðum lykli og úrtökumóti. Á úrtökumótinu gátu 5 knapar tryggt sér sæti í landsliðinu og liðstjórinn valdi 2 í viðbót, var þá m.a. litið til árangurs á Íslandsmóti og keppnisárangurs íslenskra knapa erlendis. Landsliðið var svo kynnt rúmum mánuði fyrir HM og má segja að landsliðið hafi verið virkt í rétt rúma tvo mánuði sem er afar stuttur tími og áherslan skiljanlega einungis á þann viðburð. 
 
Landsliðshópurinn verður virkur allt árið
 
Breytingin sem LH hefur gert á landsliðsmálum er að landsliðshópur LH verður virkur allt árið um kring og mun koma að ýmsum viðburðum, mótum og sýningum sem eru til þess fallnar að efla hestaíþróttina og styrkja liðið til árangurs. 
 
Með því að halda úti virkum landsliðshóp gefst tækifæri til að sinna betur markvissu afreksstarfi í hestaíþróttum þar sem áhersla er lögð á knapann sem íþróttamann. Meðal annars verður starfrækt fagteymi sérfræðinga á heilbrigðis- og íþróttasviði, sem verða landsliðsknöpum innan handar í sinni þjálfun. Ætlunin er að halda áfram með þær mælingar sem LH, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, lét gera á landsliðsknöpum 2017 og á afrekshóp ungmenna LH sl. ár. 
 
Það sem felst í markvissu afreksstarfi er meðal annars að byggja upp afreksíþróttamenn, afreksknapa í þessu tilfelli, með langtímamarkmið í huga og skapa umhverfi þar sem afreksknapi getur bætt sig í sinni íþrótt, til að auka líkur á enn betri árangri á komandi stórmótum.
 
Sá landsliðshópur sem er virkur ár hvert verður í forvali þegar valdir eru keppendur fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramót og Norðurlandamót. Landsliðsþjálfari getur þó tekið inn í liðið nýja knapa sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í keppni, með skömmum fyrirvara, ef hann telur að það muni styrkja landsliðið. Markvisst endurval knapa, byggt á keppnisárangri og mati landsliðsþjálfara, er þó sífellt í gangi. 
 
Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari
 
Sigurbjörn Bárðarson, sem ráðinn var liðstjóri landsliðs Íslands í janúar 2018, verður nú titlaður landsliðsþjálfari líkt og í öðrum íþróttagreinum. Arnar Bjarki Sigurðarson, sem var liðstjóri afrekshóps LH, verður landsliðsþjálfari U-21 landsliðshóps LH, það er næsta skref sem LH tekur í afreksmálum og verður U-21 landsliðið kynnt innan tíðar. Sigurbjörn hefur yfirumsjón með báðum hópum en mikið samstarf verður á milli landsliðsþjálfaranna.
 
Heimsmeistaramót í Berlín verður fyrsta stórverkefnið
 
Fyrsta stóra verkefni landsliðsins er Heimsmeistaramót í Berlín í byrjun ágúst. Þar munu keppa sjö landsliðsknapar í flokki fullorðinna, fimm knapar úr U-21 landsliðshópnum og fjórir titilhafar sem munu verja heimsmeistaratitla sína frá því á HM 2017 og eiga því öruggt sæti í liðinu að þessu sinni. Titilhafarnir eru Jakob Svavar Sigurðsson, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Konráð Valur Sveinsson og Máni Hilmarsson. 
 
Valið á landsliðinu sjálfu, þ.e. þeir sem verða valdir til að fara á HM og keppa fyrir Íslands hönd, verður einnig með breyttu sniði. Miðað verður við árangur m.a. á WorldRanking-mótum og Íslandsmóti, en ekki haldin sérstök úrtökumót eins og tíðkaðist áður. Liðið verður tilkynnt fomlega í Líflandi eftir Íslandsmót sem verður haldið fyrstu helgina í júlí.
 
Knapar í landsliðshóp LH eru skyldugir til að mæta á um helming viðburða á dagskrá landsliðsins, skyldumæting er á ákveðna forgangsviðburði, m.a. tiltekin WorldRanking-mót, Íslandsmót og „Þeir allra sterkustu“ sem er fjáröflunarviðburður landsliðsnefndar. Annað sem er á dagskrá landsliðsins er t.d. mælingar, fræðsla, undirbúningsfundir o.s.frv. 
 
19 afreksknapar
 
Landsliðshóp LH skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis og þrír titilhafar í ungmennaflokki frá því á HM 2017 en þeir hafa ekki fasta setu í landsliðshópnum enn sem komið er en tilheyra hópnum fram yfir HM. 
 
Þeir 19 afreksknapar sem valdir hafa verið í landsliðshópinn eru:
  • Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
  • Árni Björn Pálsson
  • Ásmundur Ernir Snorrason
  • Bergþór Eggertsson
  • Guðmundur Björgvinsson
  • Hanna Rún Ingibergsdóttir
  • Haukur Tryggvason
  • Helga Una Björnsdóttir
  • Hinrik Bragason
  • Hulda Gústafsdóttir
  • Jakob Svavar Sigurðsson,
  • titilhafi frá HM 2017
  • Jóhanna Margrét Snorradóttir
  • Jóhann Skúlason
  • Siguroddur Pétursson
  • Sylvía Sigurbjörnsdóttir
  • Teitur Árnason
  • Viðar Ingólfsson
  • Þórarinn Eymundsson
  • Þórarinn Ragnarsson
 
Titilhafar úr ungmennaflokki frá því á HM 2017 eru:
  • Gústaf Ásgeir Hinriksson
  • Konráð Valur Sveinsson
  • Máni Hilmarsson
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.