Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót
Mynd / Úr safni
Fréttir 15. apríl 2026

Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson
Þorvaldur Kristjánsson.

Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2026 og er hún komin inn á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Ákveðið var að byrja viku fyrr sunnanlands en verið hefur og einnig að bjóða upp á heldur fleiri sýningar norðan heiða. Þá verður kynbótasýning á Mið-Fossum á Vesturlandi en í fyrra var haldin sýning þar í fyrsta skipti síðan 2016 og tókst vel. Afar spennandi sýningarár er í vændum og miðað við framfarir síðustu ára er mikils að vænta af kynbótahrossum þessa lands.

Landsmót 2026 – inntökuskilyrði kynbótahrossa

Landsmót verður haldið í þriðja sinn að Hólum í Hjaltadal og hefst það 5. júlí og endar laugardagskvöldið 11. júlí. Síðustu vorsýningum lýkur miðvikudaginn 24. júní en reynt er að teygja þær eins nálægt mótinu og hægt er. Að þeim loknum tekur við útreikningur á kynbótamati en röðun afkvæmahesta á Landsmóti grundvallast á því og annar undirbúningur vegna sýninga kynbótahrossa á mótinu.

Fagráð í hrossarækt tók ákvörðun nú í febrúar um val kynbótahrossa inn á Landsmót 2026. Fyrirkomulag við val kynbótahrossa inn á mótið verður að mestu leyti sambærilegt og síðast. Nú er þó sérstaklega lögð áhersla á að auðvelda þátttöku fleiri úrvals klárhrossa. Ákveðið hefur verið að velja 160 hross inn á mótið samkvæmt aðaleinkunn (sjá nánar um fjölda í hverjum flokki í töflu). Í flestum flokkum er fjöldinn sá sami og á síðasta Landsmóti. Hins vegar hefur verið fækkað um fimm hross í elsta flokki stóðhesta og um fimm í elsta flokki hryssna, þannig að nú verða valin 10 hross í hvorum þeirra flokka. Auk þess verða 10 hross valin sérstaklega af stöðulista miðað við aðaleinkunn án skeiðs, óháð kyni og aldri. Hér er um að ræða 10 efstu hrossin eftir aðaleinkunn án skeiðs sem ekki eru þegar á meðal þeirra 160 sem þegar hafa verið valin. Gera má ráð fyrir að þar verði um að ræða úrvals klárhross á ýmsum aldri, bæði hryssur og stóðhesta. Þannig verður heildarfjöldi kynbótahrossa sá sami á mótinu eins og síðast eða 170 hross.

Þegar kynbótasýningar byrja í vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið (til dæmis fleiri en ein hryssa í 10. sæti í flokki 7 vetra og eldri hryssna) þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir ákveðna dagsetningu, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.

10 hross valin eftir aðaleinkunn án skeiðs:

Heildarfjöldi á mótinu er því 170 hross.

Höfundur er ráðunautur í hrossarækt hjá RML.

Skylt efni: RML | Hrossarækt

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...